Fréttablaðið - 21.12.2019, Page 46
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
Hafðu samband við okkur og sjáðu
hvað við getum gert fyrir þig.
RÁÐNINGAR
www.skagafjordur.is
Deildarstjóri
fornleifadeildar
Byggðasafn Skagfirðinga auglýsir
stöðu deildarstjóra fornleifadeildar
lausa til umsóknar.
Deildarstjóri annast daglegan rekstur
fornleifadeildar og hefur yfirumsjón með
rannsóknarstarfsemi á sviði fornleifafræði,
í því felst umsjón og fjármögnun verkefna,
stefnumótun, rannsóknarstarfsemi og miðlun.
Umsækjendur skulu hafa lokið mastersprófi í
fornleifafræði. Nánari upplýsingar um starfið,
sem og ítarlegri menntunar- og hæfniskröfur
má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 5. janúar 2020.
Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri svarar fyrirspurnum:
453-6173 eða berglind@skagafjordur.is. Umsókn
um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá, afrit af
prófskírteini og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal
skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu
sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf).
OKKUR VANTAR
TENGIL \
Við leitum að fjölhæfum og kraftmiklum einstaklingi í starf
markaðsráðgjafa (tengils), með sérstaka áherslu á stafræna
markaðssetningu. Viðkomandi mun starfa við fjölbreytt verkefni
í teymi með sérfræðingum á öllum sviðum markaðssetningar.
Starfssvið
- Samskipti við viðskiptavini og utanumhald viðskiptasambanda.
– Markaðsráðgjöf, áætlanagerð, uppgjör verkefna og umsýsla.
– Verkefnastjórnun og vinna með teymi.
Hæfniskröfur
– Þekking og reynsla af markaðs- og auglýsingamálum, auglýsingagerð
og uppbyggingu markaðsherferða.
– Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg ásamt ríkum vilja til að
tileinka sér nýjungar á sviði markaðssetningar.
– Þekking á stafrænni markaðssetningu, samspili og virkni ólíkra miðla.
– Góð enskukunnátta og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknir ásamt ferilskrá berist á umsoknir@pipar-tbwa.is fyrir 1. janúar.
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R