Fréttablaðið - 21.12.2019, Qupperneq 47
Auglýsing um tillögu að breyttu
deiliskipulagi Bygggarða
Seltjarnarnesi. Endurauglýsing
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er
endurauglýst breytt deiliskipulag Bygggarða Seltjarnarnesi.
Bygggarðar
Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti þann 20.
desember 2019, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.
123/2010, að endurauglýsa áður auglýsta tillögu að breyttu
deiliskipulagi Bygggarða Seltjarnarnesi.
Ástæða endurauglýsingar eru breytingar sem gerðar voru á
deiliskipulagi eftir fyrri auglýsingu 21. júní 2019.
Breytingarnar felast í að nú er ekki gert ráð fyrir sameigin-
legri bílageymslu miðsvæðis og fjöldi bílastæða lækkar úr
1,8 stæðum í 1,7 stæði á íbúð. Nánar um tillöguna vísast til
kynningargagna.
Eins og fram kom í fyrri auglýsingu felur breytingin í sér:
- Að minnka einingar frá gildandi deiliskipulagi, bæði hús og
íbúðir. Hæðir húsa og nýtingarhlutfall verður í samræmi við
gildandi deiliskipulag.
- Heimilt verður að byggja tveggja og þriggja hæða fjölbýlis-
hús, eins eða tveggja hæða raðhús og eins eða tveggja
hæða einbýlishús.
- Tvær heitavatns borholur eru innan deiliskipulagssvæðis-
ins, þær eru í fullri notkun. Þeim er útdeilt tilteknu helgunar-
svæði og tryggt að unnt sé að athafna sig við rekstur
holanna.
Tillagan liggur frammi á 1. hæð skrifstofu Seltjarnarnes-
bæjar að Austurströnd 2, virka daga frá kl. 8:00 til 14:00, frá
23. desember 2019 til og með 13. febrúar 2020. Einnig má sjá
tillöguna á heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is undir
liðnum skipulagsmál.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til
að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við
tillöguna skal skila skriflega til Þjónustuvers Seltjarnarnes-
bæjar, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes, merkt b.t. bygg-
ingarfulltrúa, eða á netfangið postur@seltjarnarnes.is eigi
síðar en 13. febrúar 2020. Vinsamlegast gefið upp netfang
fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Seltjarnarnesi, 20. desember 2019.
Skipulags- og byggingarfulltrúi á Seltjarnarnesi,
Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi
Búmenn hsf
Húsnæðissamvinnufélag
Lágmúla 7
108 Reykjavík
Sími 552 5644
bumenn@bumenn.is
www.bumenn.is
Fundarboð
Aukaaðalfundur Búmanna hsf. verður
haldinn á Grand Hótel við Sigtún 38 í
Reykjavík í fundarsalnum Hvammi,
fimmtudaginn 23. janúar 2020 og
hefst kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Kjör fundarritara og fundarstjóra.
2. Tillögur stjórnar Búmanna hsf. um breytingar á
samþykktum Búmanna hsf.
3. Önnur mál.
Tillögur að breytingum á samþykktum Búmanna hsf. hafa
verið birtar á heimasíðu Búmanna,www.bumenn.is.
Einnig er hægt að nálgast tillögur að breyttum samþykktum
á skrifstofu Búmanna að Lágmúla 7, 5. hæð, Reykjavík.
Stjórn Búmanna hsf.
Tillaga að breytingu á
deiliskipulagi
Mosfellsbær auglýsir á ný tillögu að breytingu á
deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010:
21. desember 2019
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
olafurm@mos.is
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Deiliskipulagsáfangi IV - Helgafellsland, Mosfellsbæ
Breytingin felur í sér einföldun á gatnakerfi svæðisins,
austasti hluti Skammadalsvegar færist norðar og nýtt
hringtorg á gatnamótum Liljugötu, Lóugötu og Kolbrúnargötu.
Í gildandi deiliskipulagi voru áætlaðar 113 íbúðir í einbýli, par-
og raðhúsum. Í breytingartillögunni er gert ráð fyrir einnar
hæðar einbýlis- og raðhúsum í suður- og miðhluta svæðisins.
Í norður- og vesturhluta verða tveggja og þriggja hæða fjölbýlis-
hús. Samtals allt að 188 íbúðir. Meðal nýtingarhlutfall er < 0,5.
Tillagan verður til sýnis í Þjónustuveri Mosfellsbæjar,
Þverholti 2, frá 21. desember 2019 til og með 3. febrúar 2020,
svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við
hana athugasemdir.
Tillagan verður einnig birt á vef Mosfellsbæjar á slóðinni:
mos.is/skipulagsauglysingar
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til
skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ,
eða í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 3. febrúar 2020.
ÚTBOÐ
Fjarskiptastöð bandaríska sjóhersins í Grindavík
Stjórnstöð og viðhald
Birgðarstofnun bandaríska sjóhersins hyggst bjóða út við-
hald fjarskiptastöðvar bandaríska sjóhersins í Grindavík.
Gerð er krafa um að fyrirtækin sem bjóða í verkið séu skráð
í íslenska fyrirtækjaskrá og skilyrði eru fyrir óbreytanlegum
fimm ára samningi.
Frekari upplýsingar gefur Rachel Karkane í tölvupósti á
Rachel.karkane@navy.mil.
Radio Transmitter Facility in Grindavik
Operations and Maintenance
The Naval Supply (NAVSUP) Fleet Logistics Center Norfolk,
Virginia intends to procure support for the operation and
maintenance of the Low Frequency Fixed Broadcast System
at Naval Radio Transmit Facility located in Grindavik,
Iceland. This requirement is intended to be a Firm-Fixed-
Price Single Award contract for a five year period.
This work includes operations and maintenance of that site.
In order to be eligible for award, the offeror shall be a qua-
lified Icelandic enterprise.
For full solicitation information, please contact Rachel
Karkane via email at Rachel.karkane@navy.mil.
Auglýst útboð
Fjölnota íþróttahús, Engjavegi, 800 Selfoss
Eftirlit með verkframkvæmdum
Verkís hf., fyrir hönd Fasteignafélags Árborgar slf.,
kt 460704-3590, Austurvegi 2, 800 Selfoss, óskar
eftir tilboðum í eftirlit með uppbyggingu nýs fjölnota
íþróttahúss á íþrótta- og útivistarsvæði við Engjaveg.
Reisa skal fjölnota íþróttahús á íþróttasvæði UMFS að
Engjavegi, 800 Árborg. Húsið er skilgreint sem fjölnota
æfingahús fyrir knattspyrnu ásamt æfingaaðstöðu fyrir
frjálsar íþróttir. Áætlaður mannfjöldi í húsi er 350 manns
við æfingar að jafnaði og allt að 1500 manns á sérstökum
viðburðum. Þó gerir brunahönnun hússins ráð fyrir flótta-
leiðum og reykræsingu fyrir 3000 manns í húsinu.
Hlutverk eftirlits:
• Eftirlitsverk skal unnið samkvæmt útboðlýsingu og
verklýsingu. Eftirlitsmaður aðstoðar umsjónarmann
verkkaupa (byggingarstjóra) við daglegt eftirlit með
verklegum framkvæmdum og sinnir lögboðnum skyldum
byggingarstjóra eftir leiðsögn hans.
• Eftirlitsmaður skal með eftirliti sínu tryggja að fram-
kvæmdir verði í fullu samræmi við útboðsgögn verkfram-
kvæmdar og sjá til þess að tilskyldar gæðakröfur séu
uppfylltar, án þess að ganga inn á verksvið byggingar-
stjóra, ráðgjafa, verktaka, eða verkkaupa.
Farið verður yfir allar umsóknir og verður hæfi og geta
umsækjanda metin út frá þeim upplýsingum
sem þeir leggja fram með umsókn sinni.
Útboðsgögn verða afhent með rafrænum hætti frá og með
03. Janúar 2020. Senda skal ósk um gögn á tölvupóstfang
verkis.selfoss@verkis.is með nafni fyrirtækis, heimilisfangi
og síma.
Tilboðum skal skila til Ráðhúss Árborgar, Austurvegi 2, 800
Selfoss fyrir kl. 11:00, þriðjudaginn 21. janúar 2020, en þá
verða þau opnuð að viðstöddum fulltrúum verkkaupa og
þeim bjóðendum sem þess óska.
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið
Ríkiskaup fyrir hönd
Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi ljósbúnað:
• Hreyfiljós Spot/Profile
• Hreyfiljós Wash
• Fastljós Wash
• Upphengjur fyrir ofangreint
Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða
aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ),
miðvikudaginn 18. nóvember nk.
Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105
Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015,
kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Ríkiskaup
Allar útboðsauglýsingar eru birtar á
utbodsvefur.is
Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur
opinberra útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða
tilkynningar um fyrirhuguð i nkaup opinberra aðila sem falla
undir lög og reglugerðir um opinber innkaup.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 L AU G A R DAG U R 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9