Fréttablaðið - 21.12.2019, Page 80

Fréttablaðið - 21.12.2019, Page 80
Á árinu sem er að líða kom sem fyrr fólk og fór, kvaddi fyrir fullt og allt, gerði alls konar gloríur, f r a md i g læpi og góðverk á víxl og gáraði þannig með brölti sínu hið mikla róman- tíska meginhaf sem við öll rekumst um eins og rótlaust þang. Hér eru nokkrar af þeim öldum sem risu hæst eða rak á fjörur eilífðarinnar á meðan smelludólgar f leyttu kerl- ingar. Lífið elskar Meghan Sjötíu og sex, sjötíu og sjö, sjötíu og átta, sjötíu og níu … HÆTTU AÐ TELJA! Þetta er Meghan Markle. Vel má vera að Meghan Markle sé prinsessa komin af almúgafólki en í sýndarveruleika yfirborðs- mennskunnar er hún drottning músarsmellanna og svo heitt elsk- ar fólkið og Lífið hana að á Frétta- blaðið.is hafa fréttir af henni birst í tugatali þetta árið, rétt eins og í fyrra og mun halda áfram á því næsta. Hápunkturinn á fréttaári Harrys Díönusonar og Meghan, hertoga- ynju af hjólhýsahverfi í Alabama eða eitthvað, var vitaskuld fæðing frumburðarins Archie í maí. „Þetta er það ótrúlegasta sem ég hef upplifað,“ sagði Harry eftir að sonurinn var kominn í heiminn og hann hafði komist að því hvern- ig börnin verða til. „Það er ofar mínum skilningi hvernig konur gera þetta. Við erum bæði í skýj- unum,“ bætti hann við eftir að hafa komist að því að hver barnsfæðing er kraftaverk. Í kjölfarið fylgdu svo fréttaseríur sem eru lengri en nafn prinsins um hvort hann hefði opnað augun og f leira mikilvægt. En auðvitað elskum við Meghan og þetta slekti sem viðheldur vin- sældum sjónvarpsþáttanna The Crown þrátt fyrir meðfædd og inngróin leiðindi og býður upp á fyrirsagnir sem þessar: Meghan mætti óvænt með Harry á hafnaboltaleik, Meghan rífur í sig „ósannar og móðgandi“ fréttir, Munu ræða hvort Harry og Meghan verði svipt titlum sínum, Hárlitur Archie loksins staðfestur, Meghan, Harry og Archie skelltu sér til Ibiza, Meghan og Harry birta mynd af Archie með opin augun. Ekki meir, ekki meir! Þótt Kardashian-klanið sé enn frekt til fjörsins á síðum slúðurblaðanna og í mest lesnu dálkum netmiðlanna verða Kim, Kanye og öll hin í fjöl- skyldunni sem er helst fræg fyrir ekki neitt að sætta sig við að þegar maður ætlar að lifa á slíku er farsælla að vera konungborinn. Af Kim og Kanye var það helst að frétta í ár að þau rifust í raunveru- leikasjónvarpsþætti. Þetta vakti gífurlega athygli og í framhaldinu fengu sögusagnir um yfirvofandi skilnað byr í bleik silkiseglin. Þau ættu þá kannski bara að drífa í því á meðan einhverjir hafa enn áhuga vegna þess að það er ný drottning komin á járnkrúnu slúðurpress- unnar og hún heitir Meghan Markle. Grenjað á sléttum Westeros Talandi um krúnur og leik að þeim þá lauk sjónvarpsseríunni Game of Thrones eftir lygilegar vinsældir og illbærilega bið eftir lokahnykknum með einhverju lummulegasta spennufalli í gervallri sjónvarps- sögunni. Klámið og ofbeldið sem vinsældir Game of Thrones byggðu á í upphafi hafði að vísu löngu verið tónað niður en eftir alla dramatísku uppbygg- inguna lauk þessu í allsherjar sápu- óperu þar sem allar persónur gerðust fávitar og í einhverju sem minnti helst á Húsið á sléttunni í Westeros. Harmakvein æstra aðdáenda sem fengu ekki nákvæmlega þau sögulok sem þeir vildu skullu sem flóð skrill- jón frekra snjókorna á Twitter og ljóst að þegar upp var staðið drukku margir en vissu greinilega ekki rass- gat í bala. Öllu meiri glæsibragur var yfir tilkomumiklu Endataf li Marval- myndabálksins um The Avengers og ef marka má gagnrýnendur Frétta- blaðsins og kvikmyndatímaritsins Empire er Avengers: Endgame besta mynd ársins. Niðurstaðan í Fréttablaðinu var að uppgjörið við fjólubláa títaninn Thanos, smelludólg eilífðarinnar, væri „stórkostleg kvikmynd og frá- bær skemmtun þar sem blautustu draumar allra Marvel-nörda rætast með tilheyrandi gæsahúð, tárum og hlátri“. Minna var hlegið þegar sá mikli og aldni meistari, Nestor gangstera- myndanna, Martin Scorsese, fékk Marvel-myndirnar á heilann og varð háður því að tala þær niður. Hann slúttaði svo árinu með Netflix- myndinni The Irishman, Goodfellas í göngugrindum, einhvers konar gallað meistaraverk sem rennur eiginlega betur kaflaskipt á sjón- varpsskjá en í bíó. Að því sögðu mættu Scorsese og sértrúarhjörð hans alveg sjá það og heyra að Avengers: Endgame er aðeins 181 mínúta og hún er miklu skemmtilegri og nógu spennandi til þess að ríghalda í myrkum sal og hefði þess vegna mátt verða 28 mín- útum lengri. Og reyna síðan að taka Lífið á Fréttablaðinu sér til fyrir- myndar og reyna að gera tilveruna aðeins skemmtilegri. toti@frettabladid.is Að lifa og deyja í sviðsljósinu Fólk er áhugaverðara en brottkast og af- komutölur. Þess vegna eru fréttir kenndar við lífið eða bara fólk alltaf langmest lesnar enda geta þeir sem hæst garga ER ÞETTA FRÉTT? ekki einu sinni látið þær eiga sig. Harry verður líklega ekki konungur miðað við langlífi ömmu hans og hefðbundna goggunarröð en hann er kvæntur drottningu slúðurfréttanna og því kóngur á hverjum einasta fréttadegi sem er auðvitað miklu betri díll en að þurfa að mygla á óþægilegu hásætinu sem bíður Villa bróður. Meghan og Harry eru búin að toppa Kardashian-liðið og því óstöðvandi. NORDICPHOTOS/GETTY 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R56 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.