Fréttablaðið - 21.12.2019, Qupperneq 84
Lífið í
vikunni
15.12.19-
21.12.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
JÓLAMIX ÍVARS OG ÖRVARS
Ívar Pétur Kjartansson og Örvar
Smárason úr FM Belfast spiluðu
síðasta miðvikudag á Röntgen.
Þeir gera jólalagamix annað hvert
ár, en þeir segja það
svo tímafrekt að þeir
gerðu ekki fjölskyldum
sínum það að
gera mix árlega.
Mixið er hægt
að nálgast á
Soundcloud-i
Örvars.
PASSAR Á STJÓRNARRÁÐIÐ
Myndlistarmaðurinn Þrándur
Þórarinsson er gjarn á að blanda
harðri ádeilu saman við olíu-
litina og gat ekki stillt sig um að
gera Samherjamálið ódauðlegt
með málverki sem hann telur að
eigi heima á suðurgafli stjórnar-
ráðsins.
RÚRIK HANNAR BOL
Fótboltakappinn
landsþekkti
Rúrik Gíslason
rær á ný mið og
hannar bol með
66°Norður, ágóði
af sölu hans
rennur til
SOS Barna-
þorpa. Rúrik
hefur lengi
haft áhuga
á hönnun
og tísku.
ALGJÖRT MEISTARAVERK
Titringurinn í Mættinum hlýtur að
hafa fundist á jarðskjálftamælum
þegar æstustu Star Wars-aðdá-
endur landsins ruddust í bíó á
Stjörnustríðsmyndina The Rise of
Skywalker fyrstir íslenskra nörda.
SMÁRATORG HOLTAGARÐAR
AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Notalegt í
svefnherbergið
Afgreiðslutímar til jóla
Þú finnur afgreiðslutíma
allra verslana Dorma á
heimasíðu okkar
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
SMÁRATORG HOLTAG
ARÐAR
AKUREYRI ÍSAFJÖRÐU
R
www.dorma.is
ILMKERTI,
LUKTIR OG
KERTASTJAKAR
FRÁ AFFARI
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Fyrir þínar
bestu stundir
JÓLATILBOÐ
AFFARI – RO
Ro ilmkerti. Nokkrir ilmir.
Fullt verð: 2.790 kr.
Jólatilboð aðeins 2.232 kr.
20%
AFSLÁTTUR
AFFARI
Sense ilmkerti.
Nokkrir ilmir.
Fullt verð: 3.590 kr.
Jólatilboð aðeins 2.872 kr.
BIANCO
Bianco ilmkerti. Nokkrir i
lmir.
Fullt verð frá: 990 kr.
Jólatilboð frá 792 kr.
Þú finnur jólabækling Dorma á www.dorma.is
DORMA HOME Sængurföt
Sængurfötin frá DORMA HOME eru ofin úr 300 gsm bómullarþræði
sem gefur frábæra endingu, viðkomu og mýkt. Þau eru með OEKO-TEX®
vottun um að þau séu framleidd án allra skaðlegra efna. Sængurfötin
koma í 7 mismunandi mynstrum/litum og fást í 3 stærðum.
Fullt verð 140 x 200 cm: 8.990 kr.
Jólaverð aðeins: 6.900 kr.
Fullt verð 140 x 220 cm: 10.990 kr.
Jólaverð aðeins: 8.900 kr.
Fullt verð 200 x 220 cm: 15.990 kr.
Jólaverð aðeins: 11.900 kr.
JÓLA-
TILBOÐ
Frikki viðurkennir að teikn séu á lofti um áframhaldandi starf í tengslum við bókina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Nú á dögunum kom út bók in Léttir réttir Frikka eftir tónlistarmanninn geðþekka Friðrik Dór Jónsson, en
hún er ætluð fyrir byrjendur í elda-
mennsku, unga sem aldna. Friðrik
segir jólin leggjast vel í sig.
„Ég var einmitt að fá nákvæmar
útskýringar frá konunni minni
um hvað við ætlum að hafa í jóla-
matinn. Hún var líka að segja mér
hvernig hún ætlaði að bera þetta
á borð og stilla þessu upp. Þetta
hljómar mjög vel, svo ég er orðinn
frekar spenntur,“ segir Frikki.
Lærði af eiginkonunni
Hann segist í gegnum tíðina hafa
komist svo að orði að hann væri
bara í læri hjá Lísu eiginkonu sinni.
„Hún er mjög góð í eldamennsk-
unni og einstaklega dugleg. Við
höfum verið lengi saman svo ég er
orðinn alveg ágætur sjálfur, en alls
ekki jafn góður og hún.“
Eigum við þá von á bókinni Betri
réttir Lísu næstu jól?
„Það væri gaman,“ segir Frikki
hlæjandi. „Ég myndi líka segja að
ég hafi aðeins fengið bakteríuna
þegar ég fylgdist með Sigga Hall
í sjónvarpinu á sínum tíma. Mér
hefur alltaf þótt gaman að fylgjast
með fólki elda og svo finnst mér
líka mjög gaman að borða góðan
mat. Svo síðar fór mér líka að finn-
ast gaman að elda, þannig að bara
matur yfirhöfuð hefur alltaf höfðað
til mín.“
Blikur á lofti
Frikki lagði upp úr því við gerð bók-
arinnar að hafa réttina einfalda og
fljótlega. Bókin er því kjörin fyrir
krakka sem eru að stíga sín fyrstu
skref í eldhúsinu.
„Þetta er fyrir alla sem treysta sér
ekki í mjög f lókna eldamennsku.
Mér þætti mjög gaman ef þetta
höfðar til ungra krakka sem hafa
áhuga á að byrja að elda. En svo
finnst mér þetta líka sniðugt fyrir
fólk sem er að f lytja að heiman
og hefur ekki eldhúsið hennar
mömmu lengur,“ segir Frikki.
Hann segir að það séu teikn á lofti
um áframhaldandi starf í tengslum
við bókina, en hvort það er fram-
haldsbók eða jafnvel sjónvarps-
þættir vill hann ekki staðfesta að
svo stöddu.
„Það getur allt gerst. Ég tek bara
gamla frasann úr boltanum: Bara
einn leik í einu. Við sjáum bara
hvað gerist.“
Erilsamur desember
Frikki var fyrir nokkrum árum með
sjónvarpsþættina Sósa og salat.
„Þar fór ég og borðaði mat,
kannski ég geri bara meira af því?
Það er rosa gott líka,“ segir hann
hlæjandi.
Það hefur verið nóg að gera hjá
Frikka í desember, en törninni
lýkur á Þorláksmessu.
„Við bræðurnir héldum tón-
leika og svo var maður gestur á
nokkrum slíkum. Törninni lýkur
svo á Þorláksmessu þegar ég kem
fram á Julevenner Emmsjé Gauta í
Háskólabíói, sem er skemmtilegur
endir á erilsömum mánuði,“ segir
Frikki.
Bókina Léttir réttir Frikka er
hægt að nálgast í öllum helstu versl-
unum um landið allt.
steingerdur@frettabladid.is
Lærði réttu handtökin
af eiginkonunni
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór gaf út nú fyrir jól bókina Léttir
réttir Frikka. Í henni er að finna einfaldar og góðar uppskriftir fyrir
þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í eldamennskunni.
2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R60 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð