Fréttablaðið - 21.12.2019, Page 88
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
Á lífsleiðinni eru ótal vega-mót þar sem maðurinn verður að velja og hafna.
Allar ákvarðanir, stórar og smáar,
beina smám saman lífinu inn á
þrengri og þrengri braut. Það
er aldrei hægt að fara til baka
og breyta og byrja upp á nýtt.
Sandurinn rennur aldrei úr neðra
hólfi tímaglassins í það efra.
Lífið er mislöng vegferð sem
smám saman rennur saman við
áfangastaðinn. Hjónaskilnaður
er langt ferli þar sem fjarlægðin
eykst í sífellu milli hjónanna.
Allir sjá hvert stefnir nema hjónin
sjálf. Stundum koma hjón í til-
vistarvanda til mín og biðja um
ráð. Ég segi alltaf: Í þessari stöðu
er þrír kostir, 1. búa saman áfram
en breyta sambandinu, 2. búa
saman áfram og breyta engu eða
3. skilja. Flestir segjast vilja búa
saman áfram og breyta sam-
bandinu en taka ákvörðun um
að taka enga ákvörðun og ekkert
breytist. Nokkru síðar skilja þau
og segja að hjónabandsráðgjöfin
hafi ekki skilað neinu. Þetta
fólk er alltaf jafn hissa þegar illa
gengur og festist venjulega í hlut-
verki píslarvotts. Allt er öðrum
að kenna. Ástæðan er að engin
ákvörðun er tekin.
Á dögunum birtist viðtal við
konu sem sagðist hafa ákveðið
með manni sínum að stunda kyn-
líf daglega. Hún sagði frá þessari
ákvörðun ca 4.000 samförum
síðar. Í þessu tilviki ákveða
hjónin að lifa reglulegu kynlífi
en láta það ekki vera tilviljunum
háð. Þau taka ákvörðun um að
breyta sambandinu. Nánd og
innileiki jukust. Skilnaður varð
fjarlægari.
Lífið er f lókið en mestu
skiptir að taka ákvarðanir að vel
hugsuðu máli og standa við þá
ákvörðun.
Ákvarðanir
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
01
9
Dreifðu
greiðslum,
borgaðu
eftir jól
siminnpay.is
FRÍTT KAFFI
Í DESEMBER