Fréttablaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 9
Lífskjarasamningur
Í byrjun apríl var skrifað undir
kjarasamninga á almennum vinnu-
markaði. Samningar höfðu þá verið
lausir frá áramótum en viðræður
aðila gengu erfiðlega lengst af. Efl-
ing og VR boðuðu til verkfallsað-
gerða. Þann 8. mars lögðu félags-
menn Eflingar sem starfa á hótelum
niður störf og 22. mars bættust
félagsmenn VR við en það verkfall
náði líka til hópbifreiðafyrirtækja.
Frekari verkfallsaðgerðum var svo
frestað þar sem skriður komst á við-
ræður.
Stjórnvöld komu á lokasprettin-
um að kjarasamningum og kynntu
fjölmargar aðgerðir til að styðja
við samninga. Meðal annars voru
boðaðar skattalækkanir, aðgerðir
í húsnæðismálum og lenging fæð-
ingarorlofs. Samningurinn sem var
kynntur sem lífskjarasamningur-
inn gildir til 1. nóvember 2022.
Lægstu laun hækka um 90 þúsund
krónur á mánuði á samningstím-
anum en almenn hækkun verður
68 þúsund. Þá var samið um mögu-
legar útfærslur á styttingu vinnu-
vikunnar.
Þriðji orkupakkinn
Það mál sem var mest áberandi á
Alþingi á árinu var tillaga ríkis-
stjórnarinnar um innleiðingu
þriðja orkupakka ESB. Mjög hart
var deilt um málið innan þings og
utan. Andstæðingar orkupakkans
sögðu að með samþykkt málsins
væri meðal annars verið að skerða
fullveldi Íslands í orkumálum. Einn-
ig væru íslensk stjórnvöld að skuld-
binda sig til að leggja sæstreng.
Þeir sem studdu innleiðingu
þriðja orkupakkans sögðu hins
vegar að framtíð EES-samningsins
væri í húfi. Ríkisstjórnir Íslands,
Noregs og Liechtenstein sendu
frá sér yfirlýsingu þar sem sér-
staða íslenska orkumarkaðarins
var áréttuð. „Ákvæði þriðja orku-
pakka ESB hafa á engan hátt áhrif á
full yfirráð EFTA-ríkjanna í EES yfir
orkuauðlindum sínum og ráðstöfun
þeirra og hagnýtingu,“ sagði í yfir-
lýsingunni.
Inni á þingi var andstaðan borin
uppi af Miðf lokknum. Þingmenn
f lokksins beittu málþófi og sak-
aði Steingrímur J. Sigfússon, for-
seti Alþingis, þá um að hafa rænt
völdum í þinginu. Ekki tókst að
klára málið í vor og var samið um
að taka það fyrir aftur í september,
áður en nýtt þing yrði sett. Það fór
svo að lokum að þriðji orkupakk-
inn var samþykktur á Alþingi með
46 atkvæðum gegn 13.
Fall WOW …
Tæplega átta ára sögu WOW air lauk
í lok mars þegar félagið var úrskurð-
að gjaldþrota. WOW hafði átt í
miklum rekstrarerfiðleikum um
nokkurt skeið og var gripið til hag-
ræðingaraðgerða í desember 2018.
Þá var starfsfólki fækkað, f lugvélar
seldar og leiðakerfið einfaldað. Við-
ræðum um kaup Icelandair á WOW
hafði áður verið slitið og allt stefndi
í að bandaríski fjárfestingarsjóður-
inn Indigo Partners kæmi félaginu
til bjargar.
Viðræðurnar við Indigo drógust
hins vegar og svo fór að fjárfesting-
arfélagið sleit þeim þann 21. mars.
Í kjölfarið hófust viðræður við
Icelandair á ný en ljóst var að lítill
tími væri til stefnu. Þær viðræður
fóru einnig út um þúfur en 26. mars
náðust samningar við lánardrottna
WOW um að breyta skuldabréfum í
hlutafé. Við það hafði Skúli Mogen-
sen, stofnandi félagsins, misst yfir-
ráð sín í WOW.
Stjórnendum WOW tókst hins
vegar ekki á næstu dögum að tryggja
fjármagn til að greiða 300 milljóna
greiðslu sem leiddi til kyrrsetningar
á sjö vélum félagsins. Klukkan hálf
sex að morgni 28. mars var öllu
flugi WOW til og frá Íslandi aflýst.
Um þremur klukkustundum síðar
tilkynnti Samgöngustofa að WOW
hefði hætt starfsemi.
Um 1.100 starfsmenn WOW
misstu vinnuna við fall félagsins en
auk þess tapaðist fjöldi af leiddra
starfa. Alls bárust tæplega sex
þúsund kröfur frá einstaklingum
og lögaðilum í þrotabú WOW og
námu þær alls um 151 milljarði
króna. Í byrjun desember höfðu
forgangskröfur upp á 3,8 milljarða
verið samþykktar en ágreiningur
var enn uppi um kröfur upp á 1,3
milljarða. Ljóst var að ekkert fengist
upp í almennar kröfur í þrotabúið.
… og möguleg endurreisn
Í sumar bárust af því fréttir að
bandaríska athafnakonan Mich-
elle Ballarin hefði hug á því að
endurreisa WOW. Hún keypti eignir
tengdar f lugrekstri félagsins úr
þrotabúinu fyrir 50 milljónir króna
og stefnt var að því að hefja f lug
milli Keflavíkur og Washington DC
í október. Þær áætlanir stóðust ekki
og er hið endurreista félag ekki enn
farið í loftið. Í desember var svo haft
eftir talsmanni Ballarin á Íslandi að
biðin eftir fyrsta fluginu væri mæld
í vikum en ekki mánuðum. Gert er
ráð fyrir að fraktflug verði stór hluti
starfseminnar fyrst um sinn en að
farþegaf lug muni aukast eftir því
sem á líður.
Hópur fjárfesta auk tveggja fyrr-
verandi lykilstarfsmanna WOW
vann einnig að stofnun nýs f lug-
félags á grunni WOW. Félagið bar
upphaflega heitið WAB en síðar var
því breytt í Play. Félagið var kynnt á
blaðamannafundi í byrjun nóvem-
ber þar sem fram kom að í fyrstu
yrði f logið til sex evrópskra borga.
Stefnt var að því að hefja flug á yfir-
standandi ári en það tókst ekki en
fréttir bárust af því að illa gengi að
fá fjárfesta að félaginu. Í desember
var svo haft eftir upplýsingafulltrúa
félagsins að fjármögnunin gengi vel.
Stefnt væri að því að hefja miðasölu
í janúar og að f lug hæfist væntan-
lega næsta vor.
Nýr dómsmálaráðherra
Þann 12. mars kvað Mannréttinda-
dómstóll Evrópu (MDE) í Strassborg
upp þann dóm að skipan fjögurra
dómara við Landsrétt væri ekki í
samræmi við lög. Sigríður Á. Ander-
sen dómsmálaráðherra sagði af sér
embætti daginn eftir.
Forsaga málsins er sú að þegar 15
dómarar voru skipaðir við nýstofn-
aðan Landsrétt árið 2017 fór dóms-
málaráðherra ekki að öllu leyti að
tillögu dómnefndar sem mat hæfni
umsækjenda. Fjórir umsækjendur
voru færðir af listanum yfir þá sem
dómnefndin taldi hæfasta og aðrir
fjórir skipaðir í staðinn eftir stað-
festingu Alþingis. Íslensk stjórn-
völd ákváðu að skjóta málinu til
yfirdeildar MDE og í september var
staðfest að málið yrði tekið fyrir á
næsta ári.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, tók tímabundið við
embætti dómsmálaráðherra eftir
afsögn Sigríðar Á. Andersen. Það var
svo í byrjun september að tilkynnt
var að Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir, ritari Sjálfstæðisf lokksins,
yrði nýr dómsmálaráðherra en hún
tók formlega við embættinu 6. sept-
ember.
Hvarf í Dublin
Þann 9. febrúar gekk Jón Þröstur
Jónsson út af hótelherbergi sínu í
Dublin þar sem hann var staddur
ásamt unnustu sinni. Ekkert hefur
spurst til hans síðan. Þau voru stödd
í borginni til að taka þátt í póker-
móti. Það síðasta sem vitað er um
ferðir Jóns Þrastar er af myndum úr
öryggismyndavélum þar sem hann
sést á gangi í Whitehall-hverfinu.
Hann var hvorki með síma né vega-
bréf á sér þegar hann hvarf.
Fjöldi sjálf boðaliða tók þátt í
umfangsmikilli leit í borginni en
hún bar engan árangur. Bróðir Jóns
Þrastar f lutti á tímabili til Dublin
og aðrir fjölskyldumeðlimir hafa
reglulega farið til borgarinnar. Þá
bárust fréttir af því í desember að
systir og unnusta Jóns Þrastar hefðu
ráðið einkaspæjara til að rannsaka
hvarfið.
Umdeilt fjölmiðlafrumvarp
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, kynnti í
janúar frumvarp um stuðning við
einkarekna fjölmiðla. Var þar lagt
til að fjölmiðlar gætu að ákveðn-
um skilyrðum uppfylltum fengið
hluta ritstjórnarkostnaðar endur-
greiddan.
Illa gekk þó að koma málinu
til Alþingis en þingmenn Sjálf-
stæðisf lokksins gagnrýndu til að
mynda harðlega að ekki væri tekið
á stöðu RÚV á auglýsingamarkaði í
frumvarpinu. Málið var að lokum
afgreitt úr þingf lokki Sjálfstæðis-
f lokksins á vorþingi með miklum
fyrirvörum. Ekki tókst hins vegar
að koma því að í dagskrá þingsins.
Frumvarpið átti svo að leggja
fram að nýju í haust en það tókst
ekki fyrr en í desember og mælti
ráðherra fyrir málinu fyrir jól.
Afgreiðsla þess bíður nýs árs.
Palestínufáni Hatara
Hljómsveitin Hatari var fulltrúi
Íslands í Eurovision sem fram fór í
Tel Avív í maí. Þar f lutti hún lagið
„Hatrið mun sigra“ sem komst
áfram í úrslitakvöldið. Fyrir keppn-
ina í Ísrael spratt upp umræða um
hvort Ísland ætti að sniðganga
keppnina til að mótmæla framferði
Ísraelsmanna gagnvart íbúum Pal-
estínu.
Meðlimir Hatara lýstu í aðdrag-
anda keppninnar yfir stuðningi
við málstað Palestínumanna og
var því fylgst grannt með gjörðum
þeirra í Ísrael. „Hatrið mun sigra“
Árið 2019 á
innlendum vettvangi
Átök á vinnumarkaði, þriðji orkupakkinn, fall WOW, mannshvarf í Dublin,
nýr dómsmálaráðherra, Samherjamál og óveður voru meðal helstu frétta
ársins sem er að líða. Fréttablaðið fer yfir nokkur stærstu mál ársins.
Svona leit upplýsingaskjárinn á Keflavíkurflugvelli út að morgni 28. mars. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sigríður Andersen tilkynnir afsögn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þingmenn Miðflokksins báru uppi lengstu umræðuna í þingsögunni um sama málið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sighvatur
Arnmundsson
sighvatur@frettabladid.is
Nýr dómsmálaráðherra tekur við. FRÉTTABLAÐIÐ/E RNIR
INNLENDUR FRÉTTAANNÁLL
3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð