Fréttablaðið - 31.12.2019, Page 19

Fréttablaðið - 31.12.2019, Page 19
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sighvatur Arnmundsson sighvatur@frettabladid.is Við þurfum einfaldlega að minnka sóun og óþarfa neyslu. Við þurfum að velja um- hverfisvæna kosti þótt það sé meiri fyrirhöfn. Það hafa ekki allir foreldrar ráð á að leita sér aðstoðar með börn sín hjá sjálfstætt starfandi sálfræðing- um. Á fundi velferðarráðs í desember voru lagðar fram biðlistatölur barna sem bíða eftir sér-fræðiþjónustu skóla. Það eru 489 börn sem bíða eftir fyrstu þjónustu og 340 börn sem bíða eftir frekari þjónustu. Alls er því 641 barn að bíða. Með sérfræðiþjónustu skóla er átt við sálfræðiviðtöl, kennslufræðilegt mat, talkennslu og sértækar grein- ingar á vanda barnanna sem foreldrar, kennarar og fleiri telja að barnið þurfi nauðsynlega á að halda. Fulltrúi Flokks fólksins hefur lagt fram formlega fyrirspurn um stöðu barnanna sem bíða eftir þessari þjónustu og sundurliðun á ástæðu tilvísunar. Grípa verður til aðgerða Ráðast verður til atlögu með markvissum og kerfis- bundnum hætti til að stytta biðlista. Það verður einungis gert með því að fjölga fagfólki skólanna og skipuleggja störfin þannig að meiri skilvirkni náist. Við síðari umræðu um fimm ára áætlun Reykjavíkur- borgar lagði Flokkur fólksins fram fimm breytingar- tillögur. Ein þeirra var tillaga um að fjárheimildir skóla- og frístundasviðs verði hækkaðar til að stytta biðlista. Lagt var til að ráðið yrði fagfólk tímabundið, tveir sálfræðingar og einn talmeinafræðingur til eins árs. Gert er ráð fyrir að kostnaður við þessi þrjú stöðugildi nemi 40,5 m.kr. Tillagan var felld. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur lengi talað fyrir því að aðsetur skólasálfræðinga sé í skólunum þar sem sálfræðingarnir eru nálægt börnunum og til stuðnings og ráðgjafar við kennara og starfsfólk. Það myndi bæta skipulag og auka skilvirkni. Bið eftir þjónustu skapar óvissu og veldur börnum og foreldrum þeirra oft miklu álagi. Það hafa ekki allir foreldrar ráð á að leita sér aðstoðar með börn sín hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum. Við eigum að geta gert kröfu um að börn hafi gott aðgengi að allri þjónustu borgarinnar, þar með talið sérfræði- þjónustu skólanna. Yfir 600 börn bíða eftir sérfræðiþjónustu skóla Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins Þú færð þennan kappa á næsta flugeldamarkaði björgunarsveitanna Þessi kappi er með þeim flottari. 64 öflug skot með fjölbreyttri ljósadýrð og flottheitum skot 30 SEK 3 5 6 64 kg Þessa árs sem senn er liðið verður ekki síst minnst fyrir þá gríðarlegu vakningu sem orðið hefur í umhverfismálum og þá sérstaklega loftslagsmálunum. Þeir sem taka afstöðu með umhverfinu eru ekki lengur einhver jaðarhópur aðgerðasinna heldur er þetta orðin öflug fjöldahreyfing. Það veitir heldur ekki af því viðfangsefnin eru stór og tíminn naumur. Ársins verður líka minnst fyrir þær miklu veður- öfgar sem íbúar heimsins upplifðu. Hvert hitametið af öðru var slegið víða um heim og stærð ísbreið- unnar á Norðurskautinu var í lágmarki. Í nýrri skýrslu bresku hjálparsamtakanna Christian Aid kemur fram að á árinu hafi hamfarahlýnun valdið minnst fimmtán náttúruhamförum þar sem tjón er metið á meira en einn milljarð dollara eða rúmlega 121 milljarð íslenskra króna. Þarna er um að ræða skógarelda, f lóð, þurrka og fellibylji. Auðvitað hafa náttúruhamfarir alltaf átt sér stað en umfang og eðli þeirra hefur verið að breytast. Hitabylgjur hafa geisað á veturna, skógareldar átt sér stað á óvenjulegum árstímum og stöðum í heim- inum og stórum fellibyljum fjölgað. Á Íslandi var jökulinn Ok kvaddur með táknrænni athöfn. Minnismerki var komið fyrir á toppnum þar sem skrifuð eru skilaboð til framtíðarinnar. Þar segir að við sem nú lifum vitum hvað sé að gerast og hvað þurfi að gera. Aðeins sá sem lesi þetta í fram- tíðinni viti hvort eitthvað hafi verið gert. Þá rann yfirdráttardagur jarðarinnar upp þann 29. júlí en þann dag höfðu íbúar jarðarinnar notað allar þær auðlindir sem jörðin getur endurnýjað á árinu. Hefur þessi dagur aldrei áður verið fyrr á ferðinni en frá lokum júlí höfum við verið að ganga á höfuðstól auðlinda jarðarinnar. Allt þetta ætti að vera skýr áminning um það að brýnna aðgerða er þörf. Að miklu leyti snýst það um hugarfarsbreytingu því allir geta lagt sitt af mörkum með tiltölulega einföldum hætti. Við þurfum ein- faldlega að minnka sóun og óþarfa neyslu. Við þurfum að velja umhverfisvæna kosti þótt það sé meiri fyrirhöfn. Stjórnvöld um allan heim þurfa að herða á aðgerðum sínum og horfa til framtíðar. Það ár sem er fram undan verður afar mikilvægt því að á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í Glasgow í nóvember næstkomandi þurfa þjóðir heims að koma sér saman um aðgerðir og uppfærð markmið um minni losun gróðurhúsa- lofttegunda. Baráttan gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum hefur fært kynslóðirnar saman. Eldri kynslóðir hafa smitast af áhuga og baráttuanda ungu kynslóðarinnar. Þetta sést glöggt í skemmti- legu spjalli Gretu Thunberg og Davids Attenborough á BBC þar sem þau segja hvort annað hafa verið sér innblástur í baráttunni. Ef 2019 var ár vakningarinnar verðum við að trúa því að 2020 verði ár vona. Gleðilegt nýtt ár. Ár vona Verðmætt svifryk Umræðan um svifryksmengun frá f lugeldum eykst ár frá ári. Þeim fjölgar sem vilja að almenn sala verði bönnuð og björg- unarsveitirnar eru farnar að bjóða upp á gróðursett tré sem valkost. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, er þó ekki hrifinn af hugmyndum um tak- markanir á púðurmagni sem skotið er út í andrúmsloftið. Það sé f leira sem hangi á spýtunni en svifryk. Mikil verðmæti séu í ferðamönnunum sem komi hingað til að sjá f lugelda. Stjórn- völd eru augljóslega ekkert að hugsa um hagsmuni ferðaþjón- ustunnar. Það eru örugglega til ríkir ferðamenn sem vilja upp- lifa gamla og góða íslenska siði eins og barnaþrælkun, bjórbann og sjónvarpslausa fimmtudaga. Eðlileg fjármögnun Flugeldasala er auðvitað helsta tekjulind björgunarsveitanna. Hefur salan verið að skila um 800 milljónum á ári sem er um 60 prósent af heildartekjum. Það hljóta að vera til aðrar leiðir til að fjármagna þessa mikilvægu starfsemi sem landsmenn voru enn og aftur minntir á í óveðrinu um daginn. Lyklum landsmanna mun varla fjölga mikið á næst- unni og þörfin fyrir Neyðarkalla ekki aðkallandi. Hér er villt hug- mynd. Setjum bara sveitirnar á fjárlög. 800 milljónir og málið dautt. sighvatur@frettabladid.is 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.