Fréttablaðið - 31.12.2019, Page 57
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
BAKÞANKAR
FRÍTT KAFFI
Í DESEMBER
Skúbb ísgerð
Laugarásvegi 1 • 104 Reykjavík
Ístertur
Opið til 16:00 í dag
Ég er annálaður annálamaður svo mín mesta skemmtan þessi dægrin er að horfa á annála.
Það er mér líka hollt því á hverjum
degi hellast yfir mann ósköpin öll af
fréttum og fjölmiðlaefni. Þar koma
við sögu menn sem eru handvissir
um hverjum hið góða er að þakka
og hverjum er hið vonda að kenna.
Heilinn er orðinn aumur undan
áreitinu og nánast hættur að taka
eftir öðru fólki sem upplifir sína
fimmtán mínútna frægð þann
daginn. Hann telur skúrkinn vera
þann sem misstígur sig samkvæmt
tíðindum dagsins. Skiptir þá einu
þótt þar á undan hafi hann reist
tíu manns upp frá dauðum. Hetjan
virðist honum sú sem kemur vel út
tiltekinn dag, þótt hún hafi fram
að því verið hið mesta dusilmenni.
Norður-Kórea er fínt land ef for-
setinn er viðkunnanlegur þann dag
og Íran er skelfilegt ef það hentar
hernaðarstefnu Bandaríkjanna
sama dag.
En þegar röðull rís næsta dag er
þetta allt einn tittlingaskítur enda
nýr sannleikur með nýjum fréttum
tekinn við. Tveggja daga gamlar
fréttir eru síðan orðnar að fornleif-
um. Heimsmynd mín er því svipuð
og hjá gullfiskum eða hjá hégóm-
legum kaupanda á bílasölu.
Það er því ágætt að fá annál til að
teygja úr hugsuninni. Ekki er verra
að fá áratuga annál þó svo áratugur-
inn sé ekki úti enn.
Kannski tekst mér að innræta mér
eins konar eilífðarannál sem setur
allar þessar fréttir í samhengi, lætur
mig sjá í gegnum falsfréttir, skúrka
og hetjur. Sannleikurinn kemur
alltaf í ljós en það getur hins vegar
tekið óratíma. Á meðan eru ótal
hégómlegir eða gráðugir áhrifavald-
ar að störfum. En hið mikilvægasta
er að í eilífðarannálnum verði nýja
árið gott fyrir þig. Ég er ekki að óska
þér neins hégóma, eins og fimm-
tán mínútna frægðar, heldur að þú
vaknir á hverjum morgni fullur
tilhlökkunar til þess dags sem er að
renna upp.
Vil alvöru annál