Skessuhorn - 23.01.2019, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 4. tbl. 22. árg. 23. janúar 2019 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
COMBO
TILBOÐ
PYLSA
OG GOS*
COMBO VERÐ:
549KR
*0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni
Landnámssetur
í janúar
sími 437-1600
Frumsýning
„Farðu á þinn stað“
í flutningi Tedda löggu
Laugardaginn 26. janúar kl. 20:00
Næsta sýning
sunnudaginn 27. janúar kl. 16:00
Nánar um dagskrá og miðasala á
landnam.is/vidburdir
Borðum mat –
Borðum hollan mat !
Setjum okkur heilsusamlegt
markmið, verið velkomin í
Landnámssetrið
Grænmetis-
hlaðborð
í boði alla daga
frá 11:30-15:00
UPPSELT
20 ÁR
Veturinn hefur látið á sér kræla að undanförnu. Snjókoma og umhleypingar hafa einkennt veðráttuna. Til að hreinsa vegi er
hópur fólks til taks þegar þannig viðrar. Meðal annarra Tryggvi Valur Sæmundsson hjá Hálstaki, sem hér sést hreinsa veginn
á heimaslóðum í Skorradal. Ljósm. Kristín Jónsdóttir.
Mannamót Markaðsstofa
landshlutanna var haldið í
Kórnum í Kópavogi síðastlið-
inn fimmtudag. Markmiðið
með viðburðinum er að skapa
vettvang fyrir starfsfólk ferða-
skrifstofa og hótela á suðvest-
urhorninu að kynnast þeirri
fjölbreyttu ferðaþjónustu sem
stunduð er á landsbyggðinni,
en einnig fyrir ferðaþjónustu-
aðila að mynda tengsl sín á
milli.
Að þessu sinni tóku 44 ferða-
þjónustufyrirtæki á Vesturlandi
þátt, sem er 16% fjölgun frá síð-
asta ári og hafa þau aldrei ver-
ið fleiri. Skessuhorn tók nokkra
ferðaþjóna úr landshlutanum
tali. Flestir eru þeir sammála
um að heilt yfir hafi gengið vel
í greininni á liðnu ári eru bæði
bjartsýnir og fullir eftirvænt-
ingar fyrir komandi tíð.
Sjá ítarlega umfjöllun í máli
og myndum á bls. 18-20.
Fjölmennt
Mannamót
Sveitarstjórn Reykhólahrepps sam-
þykkti í gær með þremur atkvæð-
um gegn tveimur að halda áfram
með aðalskipulagsbreytingar sveit-
arfélagsins sem gerir ráð fyrir leið
Þ-H um Teigsskóg. Kosið var um
þrjár tillögur á fundinum. Ingimar
Ingimarsson oddviti lagði fram til-
lögu um að ákvörðun um leiðarval
yrði frestað og boðað til íbúakosn-
ingar um málið. Tillaga Ingimars
var felld með þremur atkvæðum en
einn sat hjá. Karl Kristjánsson lagði
til að sveitarstjórn staðfesti samþykkt
skipulagsnefndar um að setja leið R í
aðalskipulag sveitarfelagsins en Árný
Huld Haraldsdóttir lagði fram til-
lögu um að halda áfram með aðal-
skipulagsbreytingar sveitarfélags-
ins sem gera ráð fyrir leið Þ-H um
Teigsskóg. Tillaga Árnýjar Huldar
var samþykkt með þremur atkvæð-
um gegn tveimur. Þar með var stað-
fest ákvörðun síðustu hreppsnefndar
frá því í mars á síðasta ári, sem einnig
samþykkti Teigsskógarleiðina. mm
Meirihluti hreppsnefndar fylgjandi
vegarlagningu um Teigsskóg
Tólf árum eftir að Gísli Einarsson
fékk gamlan Land Rover jeppa í
afmælisgjöf hafa orðið þáttaskil
í lífi bílsins. Fyrir tíu mánuðum
var honum komið inn á verk-
stæði, bíllinn rifinn í spað og
smám saman hófst endurgerð-
in. Bíllinn er nú einn sá fallegasti
og á leið í skoðun síðar í vikunni.
Sagt er frá Upprisu Land Rovers
Gísla Einarssonar í Skessuhorni
í dag.
Sjá bls. 14-15.
Upprisa Land Rovers