Skessuhorn - 23.01.2019, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019 13
ið inn nefið hjá okkur meðan við
höfum verið að koma verkstæðinu
í gagnið eru jákvæðir og við líka,“
segja þeir. „Af fenginni reynslu frá
fyrri störfum þá eigum við von á
að það verði nóg að gera hjá okk-
ur. Við verðum tveir hérna til að
byrja með. Síðan sjáum við bara til
hvernig þetta fer af stað, hvernig
gangurinn verður fyrstu mánuðina
og þá hvort við þurfum að bæta við
mannskap. Það kemur bara í ljós,“
segja þeir Guðmundur og Grét-
ar hjá Bílasprautun Vesturlands að
endingu.
kgk
Álagning vatns- og fráveitugjalda fyrir árið 2019 liggur nú fyrir.
Viðskiptavinir geta skoðað álagningarseðla á Mínum síðum á veitur.is.
Til að komast inn á Mínar síður getur þú notað rafræn skilríki, Íslykil
eða fengið sent lykilorð í rafræn skjöl í heimabankanum þínum.
Í samræmi við stefnu okkar um pappírslaus viðskipti fá einungis viðskipta-
vinir 70 ára og eldri heimsenda álagningar- og greiðsluseðla. Aðrir fara
sjálfkrafa í netgreiðslur hafi þeir ekki óskað eftir pappír. Hægt er að breyta
greiðslumáta á veitur.is eða í þjónustuveri okkar í síma 516 6000.
Álagning vatns- og
fráveitugjalda 2019
Veitur sjá um rekstur hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu.
Nánari upplýsingar um þjónustu okkar má finna á veitur.is
Þeir Guðmundur Antonsson og
Grétar Jónsson hafa undanfarið
unnið hörðum höndum að opnun
nýs sprautu- og réttingaverkstæð-
is á Akranesi. Ber það heitið Bíla-
sprautun Vesturlands og er staðsett
að Smiðjuvöllum 7. Stefnt er að
opnun verkstæðisins föstudaginn 1.
febrúar næstkomandi. „Núna erum
við að klára að koma okkur fyrir,
setja upp og prófa tækin og koma
öllu í gagnið til að geta opnað 1.
febrúar,“ segja þeir Guðmundur og
Grétar í samtali við Skessuhorn.
Báðir hafa þeir starfað við spraut-
un og réttingar um langt skeið. Þeir
segja hugmyndina að opnun eigin
sprautu- og réttingaverkstæðis ekki
nýja af nálinni, hún hafi skotið upp
kollinum með regluglegu milli-
bili undanfarin ár. Það var hins
vegar ekki fyrr en á síðasta ári að
þeir ákváðu að hrinda henni í fram-
kvæmd. „Ég hef starfað við bíla-
sprautun og réttingar meira og
minna alla ævi. Það er það sem ég
kann og geri best. Ég hef áður rekið
verkstæði á Akranesi og þá var Guð-
mundur starfsmaður hjá mér,“ seg-
ir Grétar og lítur á Guðmund. „Já,
ég hef ekki losnað úr þessu síðan,“
segir Guðmundur léttur í bragði en
bætir við: „Það hefur verið draum-
ur hjá mér í mörg ár að opna eig-
ið sprautu- og réttingaverkstæði,“
segir hann.
Grétar seldi fyrri rekstur sinn
fyrir meira en áratug síðan, flutt-
ist búferlum til Reykjavíkur og bjó
þar þangað til hann flutti að Móum
við rætur Akrafjalls á síðasta ári.
Það var þá sem þeir félagar fóru að
íhuga fyrir alvöru að opna sitt eigið
verkstæði. „Eftir að Brautinni var
lokað vorið 2017, þar sem var líka
sprautun og réttingar og alltaf nóg
að gera í því, þá sáum við tækifæri
og ákváðum að láta verða af þessu.
Akranes er stækkandi bæjarfélag
og við mátum það þannig að þörf-
in væri til staðar. Þannig að síðasta
vor fórum við á fullt í undirbún-
ingsvinnu og að leita að húsnæði.
Það var síðan í haust sem hjólin
fóru að snúast. Við fundum þetta
húsnæði og eftir það varð ekki aft-
ur snúið. Þetta hús hentar mjög vel
og staðsetningin er góð. Við keypt-
um Termomeccanica sprautuklefa
og settum upp hér, réttingabekk
og fullkomnar suðuvélar fyrir há-
styrktarstál og getum soðið bæði
punktasuðu og eins kopar og ál.
Núna er þetta allt að smella sam-
an aðeins smá frágangur eftir fyrir
opnunina um mánaðamótin,“ segja
þeir. „Hér munum við sinna öllum
réttingum, sprautun auk framrúðu-
skipta.“
Aðspurðir segjast Guðmundur
og Grétar bjartsýnir á framhaldið
og viðtökurnar. „Ef maður er ekki
bjartsýnn þá framkvæmir maður
aldrei neitt,“ segir Grétar og bros-
ir. „Væntingar okkar eru góðar, við
höfum fengið góð viðbrögð við
þessu framtaki. Þeir sem hafa rek-
Bílasprautun Vesturlands
opnuð um mánaðamótin
Grétar Jónsson og Guðmundur Antonsson, eigendur Bílasprautunar Vesturlands
sem verður opnuð um mánaðamótin.
Bílhurðar í sprautuklefanum. „Núna erum við að klára að koma okkur fyrir,
setja upp og prófa tækin og koma öllu í gagnið til að geta opnað 1. febrúar.“
Bílasprautun Vesturlands er til húsa að Smiðjuvöllum 7 á Akranesi.
Sprautuklefinn. Þeir Guðmundur og Grétar ætla að mála framhlið hans áður en
verkstæðið verður opnað.
Réttingabekkurinn og suðuvélarnar fyrir hástyrktarstál þar á bakvið. Hægt er
að sjóða bæði punktsuðu og eins kopar og ál.