Skessuhorn


Skessuhorn - 23.01.2019, Side 19

Skessuhorn - 23.01.2019, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019 19 og HM, þá var seinni hluti sumars- ins og haustið svakalega gott. Þann- ig að maður var bara ánægður þeg- ar upp var staðið,“ segir hann. „Síð- an er auðvitað aðeins rólegra núna og þá nýtum við tækifærið til að bæta og laga. Við erum auðvitað til- tölulega nýtekin við rekstrinum og nýtum hvert tækifæri til að taka í gegn smám saman,“ segir hann og er bjartsýnn á komandi tíð. „Það er mjög góður gangur í bókunum núna. Janúar og febrúar eru stærstu bókunarmánuðirnir fyrir sumarið. Síðan erum við farin að taka hönd- um saman í Hvalfirði, vinna saman og minna á okkur. Það er skemmti- legra þegar við vinnum saman, fleiri taka eftir okkur og þá verður meira að gera hjá öllum,“ segir Brynjar að endingu. „Gætum ekki verið ánægðari“ Lilja Hrund Jóhannsdóttir á og rek- ur veitingastaðinn Sker í Ólafsvík. Aðspurð lýsir hún Skeri sem stað sem er hægt að fara á með alla fjöl- skylduna og finna eitthvað fyrir alla. „Það er hægt að mæta og fagna sér- stöku tilefni, fá sér gott rauðvín og góða steik, en svo geturðu líka kom- ið og fengið þér pitsu ef þig langar bara í pitsu. Staðurinn hentar öllum aldurshópum við öll tilefni. Það var líka mín markaðssetning þegar ég opnaði staðinn að allir gætu komið og fengið það sem þá langaði í,“ seg- ir Lilja í samtali við Skessuhorn. Staðurinn var opnaður 1. júní síð- asta sumar og Lilja segir viðtökurn- ar hafa verið afar góðar. „Það geng- ur mjög vel og hefur farið fram úr öllum okkar björtustu vonum. Það er miklu meira að gera en við héld- um sem er algjört lúxusvandamál. Sömuleiðis hafa allir viðburðir sem við höfum haldið alltaf verið fullbók- aðir, hvort sem það er jólahlaðborð, skötuveisla eða annað. Við gætum ekki verið ánægðari með það,“ seg- ir hún og hefur góðar væntingar til þessa árs. „Væntingarnar eru mjög góðar, við erum spennt að takast á við sumarið og vonumst eftir góðu veðri. Ef það er gott veður á Nesinu þá er mjög mikið að gera og marg- ir hópar sem koma til okkar, stórir sem smáir og meiri lausatraffík líka. Þannig að við vonumst eftir góðu ís- lensku sumri,“ segir Lilja Hrund Jó- hannsdóttir veitingamaður. Vonast eftir góðu veðri til sjókajakferða Fyrirtækið Kontiki Kayaking hefur frá því þarsíðasta sumar boðið upp á sjókajakferðir frá Stykkishólmi. „Farið er út frá höfninni og eyjarnar á Breiðafirði skoðaðar, skipsflök sem leynast hér og þar og auðvitað fugla- lífið í eyjunum. Það er mikill kost- ur að skoða fugla á kajak. Af því það er enginn mótor komumst við mjög nálægt fuglunum. Síðan rekumst við á stöku sel af og til,“ segir Krist- ján Sveinsson hjá Kontiki Kayaking í samtali við Skessuhorn. „Við höf- um verið að bjóða upp á tveggja til þriggja klukkustunda ferðir með sex manns í einu. Við viljum hafa hóp- ana litla og ferðirnar þægilegar og persónulegar fyrir vikið, en förum þá frekar fleiri ferðir. Almennt eru farnar þrjár ferðir á dag, en í júní og júlí förum við fjórum sinnum því þá bjóðum við einnig upp á kvöldferðir í miðnætursólinni,“ segir hann. Spurður um reynsluna segir Krist- ján að síðasta sumar hafi verið erf- itt til kajaksiglinga, veðurfarslega séð. „Kajakferðir eru auðvitað af- þreying sem er mjög háð veðrinu, af því við bjóðum hverjum sem er að koma og sigla með okkur, hvort sem um er að ræða algera byrjendur eða reynslubolta,“ segir hann. „Þannig að veðrið setti strik í reikninginn en við erum bara jákvæð fyrir komandi tíð og vonumst eftir góðu veðri í sumar. Það getur allavega ekki orðið mikið verra en síðast,“ segir Kristján Sveinsson léttur í bragði. Mikill áhugi fyrir Guðlaugu Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað, kynnti starfsemi Guðlaugar við Langasand og Akranesvita á Manna- móti markaðsstofanna. Hún seg- ir aðsókn að Guðlaugu hafa ver- ið mjög góða síðan hún var opn- uð í byrjun desember. „Hún hefur verið rosalega vinsæl, sjósundsfólk annars staðar frá hefur mikið kom- ið og undirtektir hafa almennt verið mjög góðar. Núna erum við að byrja að leyfa hópum að bóka utan hefð- bundins opnunartíma,“ segir hún. „Þannig að þetta fer mjög vel af stað og við sjáum fyrir okkur að af því að Guðlaug er á þremur hæðum gætu hópar til dæmis haft samband við Smiðjuloftið og fengið þau hjónin til að koma og vera með lifandi tón- list og gera upplifun úr þessu,“ segir Sigríður. Hún segir Guðlaugu enda hugsaða sem innlegg til að styðja við ferðamennsku á Akranesi almennt og segir mikinn áhuga fyrir verk- efninu. „Bara núna í dag hef ég orð- ið var við mikinn áhuga, fólk spyr mikið út í laugina og ferðaskrifstofur hafa áhuga á að koma með hópa. Við erum því mjög bjartsýn á framhald- ið,“ segir hún. „Akranesviti var síð- an nýverið að fá mikla viðurkenn- ingu hjá The Guardian og hann aug- ljóslega trekkir alltaf jafn mikið að,“ bætir hún við. Hvaða telur Sigríð- ur að framtíðin beri í skauti sér fyrir Akranes? „Ég held að það sé hægt að byggja ýmislegt upp í kringum Guð- laugu. Síðan eru hugmyndir uppi sem tengjast Sementsreitnum, sem ég get þó ekki gefið upp núna, en þetta verður mjög flott,“ segir Sig- ríður Jónsdóttir að endingu. Síðasta ár fór fram úr væntingum Kristján Guðmundsson tók við starfi sölu- og markaðsstjóra Hótels Húsa- fells síðasta vetur. Hann var að sjálf- sögðu staddur á Mannamóti. Krist- ján segir að árið 2018 hafi verið gott á Hótel Húsafelli. „Það fór fram úr væntingum og gekk vel, þannig að við erum mjög ánægð með síðasta ár og bjartsýn á árið 2019,“ segir Krist- ján í samtali við Skessuhorn. „Verk- efnið sem við erum að vinna að núna er að fá meiri traffík inn á vormán- uðunum. Til þess munum við bæði markaðssetja okkur fyrir íslenska hópa og samhliða því að fá inn fleiri ferðamenn. Almennt séð er meira en nóg að gera en það koma smá eyður inn á milli sem við reynum að fylla inn í. Vormánuðirnir eru erfiðir en vonandi náum við inn góðum hóp- um,“ bætir hann við. Kristján segir margt að gerast á svæðinu og nefnir sem dæmi sameiningu ísganga Into the Glacier og Arctic Adventures. „Við vonum að það auki enn frekar ferðamennsku í uppsveitum Borgar- fjarðar og skili sér í aukinni afþrey- ingu á svæðinu. Það er gott fyrir alla. Ég held að allir á Vesturland- inu græði á því,“ segir Kristján Guð- mundsson að endingu. kgk Skipulagsauglýsingar hjá Borgarbyggð Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur á 178. fundi sínum þann 13. desember 2018 og á 179. fundi sínum þann 10. janúar 2019, samþykkt að auglýsa eftirfarandi tillögur: Fossatún – Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 Verslunar- og þjónustusvæði stækkar til norðausturs. Forsendur fyrir breytingu er aukin eftirspurn gistingar og fjölbreytni í gistimöguleikum í Fossatúni. Svefnhýsi/skálar verða staðsett á því svæði sem var tjaldsvæði, en sú þjónusta hefur verið lögð niður. Málsmeðferð verður samkvæmt 36. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsing liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá 25. janúar til 25. febrúar 2019 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is. Skriflegum ábendingum vegna lýsingar á breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022, skal komið á framfæri bréflega eða með tölvupósti við umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar, í Ráð- húsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en föstudaginn 25. febrúar 2019. Frístundasvæði í Litlu-Tunguskógi – Tillaga að nýju deiliskipulagi Í skipulagstillögu er 21 frístundahúsalóð og ein lóð undir dæluhús. Hverju húsi hefur verið valinn byggingarstaður sem fellur vel að landinu og veldur lágmarks röskun á gróðri og hrauni. Málsmeðferð verður samkvæmt 41. grein Skipulagslaga nr. 123/2010. Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi frá 25. janúar til 11. mars 2019 og verður einnig aðgengileg á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is. Hverjum þeim aðila sem hagsmuna á að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við skipulag- stillögu. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en mánudaginn 11. mars 2019 í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is. Litlu-Tunguskógur - Kynningarfundur Miðvikudaginn 6. febrúar 2019 milli kl. 17:00 og 18:00 verða starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi þar sem tillögur- nar verða kynntar þeim sem þess óska. SK ES SU H O R N 2 01 9 Mannamót í ferðaþjónustu Sjá myndasyrpu frá Mannamóti ferðaþjónustunnar á næstu síðu. Lilja Hrund Jóhannsdóttir, veitingamaður á Sker restaurant í Ólafsvík ásamt Katrínu Gísladóttur, móður sinni. Ljósm. kgk. Kristján Sveinsson hjá Kontiki Kayaking í Stykkishólmi. Ljósm. kgk. Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri atvinnumála hjá Akraneskaupstað og Sigríður Lína Daníelsdóttir frá Byggðasafninu í Görðum á Akranesi. Ljósm. kgk. Kristján Guðmundsson, sölu- og markaðsstjóri Hótels Húsafells, á tali við Harald Benediktsson, bónda og alþingismann. Ljósm. kgk.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.