Skessuhorn


Skessuhorn - 23.01.2019, Síða 24

Skessuhorn - 23.01.2019, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 201924 Sumarlesari vikunnar Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR GARÐAÚÐUN REYNIS SIG SÍMI: 899-0304 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is Í framhaldi af umræðu um Vest- fjarðaveg, vil ég koma á framfæri nokkrum atriðum. Hvaða leið sem verður valin, verður samt að lagfæra Reykhóla- afleggjarann á núverandi vegstæði eftir Barmahlíð að byggðinni á Reykhólum enda vegurinn fallinn á prófinu nú þegar. Það talar eng- inn um veginn sem liggur áfram út Reykjanesið meðfram eða í gegn- um lönd þeirra bæja sem eru þar á leiðinni, samtals 8 bæir í byggð. Heldur fólk að sá vegur standist öryggiskröfur í dag? Þar fer um mjólkurbíll, póstur, akstur skóla- barna og annarra íbúa á bæjun- um, sem vinna að hluta til á Reyk- hólum. Það er nefnilega þannig að bændur og búalið vinna mik- ið utan heimilis almennt í dag og sækja vinnu á Reykhólum bæði af Reykjanesinu og innan úr sveit, hjá t.d Þörungaverksmiðjunni, í Saltinu, Dvalarheimilinu og skól- anum, þannig að vegirnir þurfa að standast kröfur og vera vel þjónu- staðir svo allt gangi upp. Umferðin í dag vestur á núver- andi vegi er fyrst og fremst um- ferð ferðamanna innlendra sem er- lendra ásamt íbúum Vesturbyggð- ar og Tálknafjarðar, ekki flutn- ingabíla eins og sumir sumarhúsa-/ jarðareigendur hafa haldið fram. Enda eru flestir þjónustuaðilar á leiðinni búnir að bæta aðstöðuna hjá sér undanfarin ár, eins og t.d Hótel Flókalundur að stækka um 12 herbergi, úr 15 í 27 núna í vet- ur/vor. Væntanlega er það gert til að hýsa ferðamenn en ekki flutn- ingabílstjóra, því ef það hefur far- ið framhjá einhverjum hefur verið gríðarleg aukning á ferðamönn- um á svæðinu undanfarin ár. Tal- ið hafa bjargað þjóðinni eftir hrun með gjaldeyri, orðið stærra dæmi í þjóðarbúið en útgerðin með all- an sinn kvótafisk ef það hefur farið framhjá einhverjum. En hvar á vegurinn að liggja? Fyrir 10-15 árum vildu flest- ir veginn Þ-H um Teigsskóg en fengu ekki. Núna eru margir sem vilja veginn hjá Reykhólum og út Reykjanesið, á eða sem næst nú- verandi veglínu til að koma Reyk- hólum nær umferðinni, væntan- lega til að geta þjónustað ferða- menn innlenda sem erlenda, ekki bara flutningabíla enda lifir eng- inn á því svo fáir eru þeir hér um slóðir og hafa ekki haldið vöku fyr- ir neinum á þessum slóðum frek- ar en fólkinu á Patreksfirði þar sem vegurinn til Tálknafjarðar og Bíldudals liggur við Patreksjar- ðarbæ, milli Aðalstrætis og kirkju- garðsins þar, ef fólk áttar sig ekki á því. Og þá eru farartálmar eftir þar á bæ, vegurinn um Mikladal, Hálf- dán og Kleifaheiði. Af hverju hefur ekkert gerst þar, t.d sameina sveit- arfélögin þar og þrýsta á betri vegi heima í héraði? Og þá er ótalinn fjallvegurinn yfir Klettsháls sem er erfitt er að þjónusta á veturnar enda er það tryggingin fyrir rekstri Baldurs yfir Breiðafjörðinn i Stykkishólm. En ég hef ekki heyrt að nokk- ur hafi kvartað yfir umferðinni i Stykkishólmi enda einungis reynt að þjónusta ferðafólkið. En varðandi veginn gegnum Reykhólasveitina hef ég bent á og skrifað að I-leiðin sem liggur sunn- anmegin í Þorskafirði með brú yfir á Hallsteinsnes framhjá Teigsskógi og áfram yfir Djúpafjörð og Gufu- fjörð á Þ-H leið. Með vegtengingu í Bjarkalund og fyrir Reykjanesið í Reykhóla, þá er komin hringteng- ing um Reykjanesið og búið er að fara með leiðina í umhverfismat, hannað og teiknað af Vegagerð- inni en örlítið dýrara en Þ-H. Þá geta þeir sem ferðast valið að fá sér veitingar í Bjarkalundi eða Reyk- hólum sumar sem vetur ef fært er yfir Klettsháls, eða tekið Bald- ur áfram og fengið sér veitingar í Stykkishólmi. Það þarf enginn að halda það að skipið verði lagt af á meðan Klettsháls er ekki lagað- ur eða boraður, það vitum við sem keyrum eða þjónustum vegina. En kannski eru ljón á veginum á I eins og á Þ-H og R? Það er nefnilega þannig að það vilja allir veg en enginn vill hafa hann. Með kveðju, Gunnbjörn Óli Jóhannsson. Er I-leiðin sáttaleiðin? Pennagrein Tónlistarskólinn á Akra- nesi býður til hádegistón- leika á bóndadaginn í skólan- um. „Hvernig væri að bjóða bóndanum á hádegistón- leika föstudaginn 25. janú- ar klukkan 12.10? Nemend- ur í tónlistarskólanum töfra fram ljúfa tóna og konur úr kvennakórnum Ymi bera fram heita og góða súpu sem seld er á 1000 krónur. Allir velkomnir,“ segir í tilkynn- ingu frá Tónlistarskólanum á Akranesi. mm Ljúfir tónar á bóndadaginn Nú er lokið þriggja kvölda spilakeppni Kvenfélags Staf- holtstungna. Úrslit urðu þau að Brynjólfur Guðmunds- son og Kolbrún Sveinsdóttir báru sigur úr býtum. Hér eru þau ásamt kvenfélagskonun- um Valgerði Björnsdóttur og Ágústu Ólöfu Gunnarsdóttur. ah Kvenfélagsvist lokið Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra opnaði á föstudaginn vefinn tekjusagan.is. Vefurinn veitir að- gang að gagnagrunni um lífskjör landsmanna sem byggir á ópers- ónugreinanlegum upplýsingum úr skattframtölum allra einstaklinga á Íslandi frá árinu 1991 til 2017. Hver sem er getur skoðað þróun ráðstöf- unartekna mismunandi hópa, áhrif skatta og bóta auk félagslegs hreyf- anleika. Verkefnið hefur tvisvar ver- ið kynnt á samráðsfundum stjórn- valda með aðilum vinnumarkað- arins og hefur svo þróast áfram í samskiptum forsætisráðuneytisins og heildarsamtaka á vinnumarkaði en síðustu tvo mánuði hafa 80 ein- staklingar úr ráðuneytum og sam- tökum á vinnumarkaði haft aðgang að vefnum með það að markmiði að gera hann sem bestan úr garði. Katrín segir Tekjusöguna vera mikilvægt innlegg í samráð stjórn- valda og aðila vinnumarkaðar- ins. „Það er þörf á áreiðanlegum og óumdeildum gagnagrunni með launatölfræði sem allir hafa að- gang að til að hægt sé að leggja mat á launaþróun auk áhrifa skatta og bóta með óumdeildum og áreiðan- legum hætti. Ég tel að með Tekju- sögunni séum við komin með styrkan grundvöll undir umræður um kjaramál,“ segir Katrín og bætir við: „Það er lykilatriði fyrir stjórn- völd að hafa aðgang að áreiðan- legum upplýsingum þegar kemur að stefnumótun og ákvarðanatöku. Tekjusagan gerir okkur kleift að sjá hvernig lífskjör mismunandi hópa hafa þróast, hvaða hópum hefur vegnað vel og hvaða hópar þurfa sérstaka athygli.“ mm Gagnagrunnur um lífskjör landsmanna

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.