Skessuhorn - 23.01.2019, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 201926
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvaða þorramatur
þykir þér bestur?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Páll Matthíasson
Sviðasulta.
Kristjana Halldórsdóttir
Ósúrt slátur og hangikjöt.
Ásgeir Þór Ásgeirsson
Sviðasulta.
Guðmundur Þór Hannesson
Svið og hangikjöt.
Margrét Gunnarsdóttir
Sviðasulta.
Skallagrímur tapaði gegn Stjörn-
unni, 80-94, þegar liðin mættust í
14. umferð Domino‘s deildar karla
í körfuknattleik á fimmtudagskvöld.
Leikið var í Borgarnesi og heima-
menn voru mun betri nánast allan
leikinn. Þeir misstu hins vegar nið-
ur 20 stiga forskot í síðari hálfleik
áður en leikur þeirra hrundi í loka-
fjórðungnum og Stjarnan sigraði.
Skallagrímsmenn byrjuðu leik-
inn af miklum krafti, leiddu 24-5
þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður
og gestirnir virkuðu heillum horfn-
ir. Borgnesingar héldu uppteknum
hætti og staðan var 31-17 eftir upp-
hafsfjórðunginn. Skallagrímsmenn
héldu áfram að spila vel í öðrum
leikhluta, nýttu sér slakan varnar-
leik Stjörnunnar og juku forskot
sitt í 20 stig. Borgnesingar létu vel
í sér heyra á pöllunum og það var
mikill meðbyr með Skallagrímslið-
inu sem leiddi 56-36 í hálfleik.
Gestirnir virtust hafa farið vel
yfir sín mál í hléinu, því þeir voru
mun yfirvegaðri í þriðja leikhluta
en áður. Hægt og rólega náðu
þeir að minnka muninn en Borg-
nesingar gáfu þeim ekki færi á að
jafna. Skallagrímur leiddi með
átta stigum fyrir lokafjórðunginn,
71-63. Það var síðan í fjórða leik-
hluta að leikur Skallagrímsmanna
hrundi. Þeir töpuðu taktinum al-
gerlega í sókninni og skoruðu ekki
nema níu stig allan leikhlutann.
Gestirnir gengu á lagið og náðu að
jafna metin áður en leikhlutinn var
hálfnaður. Síðustu mínúturnar átti
Stjarnan með húð og hári og liðið
sigraði að lokum með 14 stigum,
80-94.
Aundre Jackson var atkvæða-
mestur í liði Skallagríms með 21
stig, níu fráköst og sex stoðsend-
ingar. Domagoj Samac skoraði 20
stig og tók átta fráköst, Matej Buo-
vac skoraði 16 stig og Eyjólfur Ás-
berg Halldórsson var með tólf stig
og fimm fráköst.
Brandon Rozzell fór fyrir liði
gestanna með 28 stig og sjö stoð-
sendingar. Hlynur Bæringsson var
með 15 stig og 17 fráköst, Antti
Kanervo skoraði ellefu og Filip
Kramer skoraði tíu og tók sjö frá-
köst.
Skallagrímur er í ellefta sæti
deildarinnar með fjögur stig, fjór-
um stigum á eftir Val í sætinu fyr-
ir ofan. Næst leikur Skallagrím-
ur gegn ÍR á útivelli á morgun,
fimmtudaginn 24. janúar. kgk
Leikur Skallagríms hrundi í lokafjórðungnum
Eyjólfur Ásberg Halldórsson og félagar hans í Skallagrími urðu að sætta sig við
tap. Ljósm. Skallagrímur.
Meistaraflokkur Grundarfjarðar í
körfubolta tók á móti liði Breiða-
bliks laugardaginn 19. janúar.
Breiðablik er á toppi 3. deildar á
meðan heimamenn voru í sjöunda
sæti fyrir leikinn. Heimamenn
komu ákveðnir til leiks og ætluðu
að selja sig dýrt og var toppliðið í
mestu vandræðum með grimma
Grundfirðina. Grundarfjörður
leiddi 21-19 eftir fyrsta leikhluta og
í hálfleik var staðan 41-34 heima-
mönnum í vil. Gestirnir komu
ákveðnari til leiks í síðari hálfleik
og eftir þriðja leikhluta var staðan
63-63 og Blikar búnir að jafna. Og
þegar tíminn rann út í fjórða leik-
hluta var staðan hnífjöfn 80-80 og
því var framlengt. Breiðablik skor-
aði síðustu körfuna og náðu að
knýja fram 87-88 stiga sigur og
fóru því með bæði stigin með sér í
Kópavoginn aftur. Mikil barátta var
engu að síður í Grundfirðingum og
ljóst að það styttist í næsta sigur hjá
þeim með svona baráttu og góðri
frammistöðu.
tfk
Svekkjandi tap hjá
Grundfirðingum
Snæfellingar lágu gegn toppliði
Þórs Ak., 97-62, þegar liðin mætt-
ust í 1. deild karla í körfuknattleik
á föstudagskvöld. Leikið var á Ak-
ureyri.
Heimamenn byrjuðu af krafti
og komust í 11-2 áður en upp-
hafsfjórðungurinn var hálfnaður.
En þá tóku Snæfellingar við sér,
minnkuðu muninn í þrjú stig og
höfðu í fullu tré við toppliðið það
sem eftir lifði leikhlutans. Stað-
an var 17-14 eftir fyrsta leikhluta.
Heimamenn bættu aðeins við for-
skoti í upphafi annars fjórðungs
og Snæfellingar máttu hafa sig alla
við að halda í við þá. Heimamenn
tóku góðan sprett undir lok fyrri
hálfleiks og leiddu með 13 stigum
í hléinu, 45-32.
Síðari hálfleikurinn var algjör
einstefna þar sem Þórsarar réðu
lögum og lofum. Þeir juku for-
skot sitt jafnt og þétt í þriðja leik-
hluta og leiddu með 28 stigum
fyrir lokafjórðunginn, 75-47. Þeir
bættu síðan enn við í fjórða leik-
hluta og sigruðu að lokum stórt,
97-62.
Dominykas Zupkauskas var at-
kvæðamestur í liði Snæfells með
14 stig, sex fráköst og fimm stoð-
sendingar en aðrir leikmenn náðu
ekki tveggja stafa tölu á stigatöfl-
unni.
Pálmi Geir Jónsson skoraði 20
fyrir heimamenn og tók sjö frá-
köst, Damir Mijic var með 19 stig
og níu fráköst, Júlíus Orri Ágústs-
son skoraði 14 og tók fimm fráköst
og Larry Thomas var með tólf stig,
níu fráköst og átta stoðsendingar.
Snæfellingar sitja á botni deild-
arinnar, án stiga eftir 13 leiki,
tveimur stigum á eftir Sindra í sæt-
inu fyrir ofan, en þessi tvö lið mæt-
ast einmitt í næstu umferð deild-
arinnar. Leikur Snæfells og Sindra
fer fram í Stykkishólmi föstudag-
inn 25. janúar næstkomandi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Tap gegn toppliðinu
Leikið var í átta liða
úrslitum Geysisbik-
ars karla í körfuknatt-
leik á mánudagskvöld.
S k a l l a g r í m s m e n n
heimsóttu ÍR og þurftu
að játa sig sigraða eft-
ir æsispennandi leik,
86-79. Borgnesingar
hafa því lokið þátttöku
sinni í bikarnum í þetta
skiptið.
Jafnræði var með lið-
unum fyrstu mínúturn-
ar en þá náðu heima-
menn yfirhöndinni og
leiddu með 13 stig-
um eftir upphafsfjórð-
unginn, 30-17. Skalla-
grímsmenn minnkuðu
muninn jafnt og þétt í
öðrum leikhluta. Þegar
flautað var til hálfleiks voru þeir
búnir að koma forystu ÍR niður í
tvö stig, 45-43.
Skallagrímur komst yfir í upp-
hafi síðari hálfleiks en heimamenn
jöfnuðu. Mikil spenna færðist í
leikinn og liðin skiptust á að leiða.
ÍR hafði þriggja stiga forskot fyr-
ir lokafjórðunginn, 65-62. Borg-
nesingar jöfnuðu snemma í fjórða
leikhluta en ÍR-ingar komust yfir
að nýju og létu forystuna aldrei af
hendi. Þeir sigruðu að lokum með
86 stigum gegn 79.
Aundre Jackson skoraði 20 stig
og tók sjö fráköst fyrir Skalla-
grím. Domagoj Samac var með 20
stig einnig og sex fráköst og Ma-
tej Buovac skoraði 17 stig og tók
fimm fráköst.
Kevin Capers var atkvæðamest-
ur í liði heimamanna með 27 stig,
níu fráköst og sjö stoðsendingar.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson
skoraði 21 stig og tók ellefu frá-
köst, Gerald Robinsson var með
15 stig og tíu fráköst og Sæþór
Elmar Kristjánsson skoraði tólf og
tók sjö fráköst.
kgk
Skallagrímsmenn
úr leik í bikarnum
Domagoj Samac átti prýðisleik þegar Skallagrímur
féll úr leik í bikarnum. Ljósm. Skallagrímur.