Skessuhorn - 17.07.2019, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 17. júLí 2019 17
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
lést 29. júní á Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands á Akranesi.
Jarðað var í kyrrþey 11. júlí
síðastliðinn frá kapellu HVE.
Þökkum veitta aðstoð.
Steinunn Kolbeinsdóttir
Ásta, Allan
Helga, Einar
Kolbrún
Sigmundur Ingvar, Fríða
og fjölskyldur
Maðurinn minn og besti vinur:
Ingvar Sigmundsson
Ný umferðarlög voru samþykkt
samhljóða á Alþingi í júní síðast-
liðnum og taka þau gildi um næstu
áramót. Þau fela í sér mörg veiga-
mikil nýmæli og breytingar á fyrri
löggjöf sem ástæða er til að öku-
menn og aðrir vegfarendur kynni
sér vel. „Meginmarkmið laganna er
að vernda líf og heilsu vegfarenda
með auknu umferðaröryggi þar sem
jafnræðis er gætt milli vegfarenda.
Lögin er afrakstur margra ára und-
irbúnings og heildarendurskoðun-
ar á löggjöfinni í víðtæku samráði
við almenning og hagsmunaaðila,“
segir í tilkynningu frá samgöngu-
ráðuneytinu. Á næstu vikum og
mánuðum verða ýmsar reglugerð-
ir endurskoðaðar til samræmis við
nýsamþykkta heildalöggjöf um um-
ferðarmál. Áform um slíkar breyt-
ingar verða kynntar í samráðsgátt
stjórnvalda.
HELSTU NÝMÆLI Í
UMFERÐARLÖGUM
ERU EFTIRFARANDI:
Ölvunarakstur
í nýju lögunum telst ökumaður
ekki geta stjórnað ökutæki örugg-
lega ef vínandamagn mælist 0,2‰
í blóði hans. Hlutlægu mörkin sem
segja til um það hvort ökumað-
ur geti stjórnað ökutæki örugglega
eru því lækkuð úr 0,5‰ í 0,2‰.
Refsimörk verða þó áfram miðuð
við 0,5‰ og verður ökumönnum
því ekki gerð refsing nema áfengi í
blóði mælist yfir 0,5‰.
Vanhæfismörk
vegna lyfja
Ráðherra er veitt heimild til að setja
reglugerð þar sem kveðið er á um
vanhæfismörk vegna lyfja sem hafa
áhrif á aksturshæfni. Þannig verð-
ur ráðherra heimilt að setja reglur
sem kveða á um það með hlutlæg-
um hætti hvenær ökumenn teljast
ekki geta stjórnað ökutæki örugg-
lega vegna neyslu lyfja.
Ávana- og fíkniefni
Nýju umferðarlögin gera ráð fyrir
því að horfið verði frá þeirri fram-
kvæmd að ávana- og fíkniefni sem
mælast í þvagi geti verið grundvöll-
ur refsingar en samkvæmt nýju lög-
unum telst ökumaður aðeins vera
undir áhrifum slíkra efna ef þau
mælast í blóði.
Snjalltæki
í lögunum eru ákvæði er varða
snjalltæki og bann við notkun
þeirra gert skýrt, jafnt fyrir öku-
menn vélknúinna ökutækja sem og
fyrir hjólreiðamenn.
Sjálfkeyrandi ökutæki
Prófanir á sjálfkeyrandi ökutækj-
um verða heimilar, að fengnu leyfi
Samgöngustofu og að uppfylltum
nánar tilteknum skilyrðum.
Hjálmaskylda
Skylda barna til að nota hlífðar-
hjálm við hjólreiðar er færð í lög og
nær nú til barna yngri en 16 ára í
stað barna yngri en 15 ára.
Hjólreiðar
Ýmis ný ákvæði eru í umferðarlög-
unum um hjólreiðar. Kveðið er á
um að þegar ekið er fram úr reið-
hjóli eða léttu bifhjóli skal hliðar-
bil vera að lágmarki 1,5 metrar. Þá
skal hjólreiðamaður almennt halda
sig lengst til hægri á hægri akrein.
Þó er óhætt að hjóla á miðri akrein
á vegi þar sem hámarkshraði er ekki
meiri en 30 km/klst. Þá er hjól-
reiðamönnum gert að sýna sérstaka
aðgát við vegamót og þar sem ak-
braut og stígar skerast. Hjólreiða-
maður skal gefa hljóðmerki þeg-
ar hann nálgast gangandi vegfar-
endur ef ætla má að þeir verði hans
ekki varir. Ökumaður sem ætlar að
beygja þvert á hjólarein skal veita
umferð hjólreiðamanna á reininni
forgang.
Hjólastígur
Ef hjólastígur er samhliða gangstétt
eða göngustíg skal að jafnaði notast
við hjólastíga. í slíkum tilvikum er
aðeins heimilt að hjóla á gangstétt
eða göngustíg á hraða sem er ekki
meiri en eðlilegur gönguhraði.
Farþegar á reiðhjólum
Fellt er brott almennt bann við því
að reiða farþega á reiðhjóli en ráð-
herra mun í reglugerð setja nánari
reglur um flutning farþega á reið-
hjólum. Áfram er kveðið á um að
aðeins þeim sem hafa náð 15 ára
aldri megi reiða börn yngri en 7 ára
og þá í þar til gerðum sætum.
Göngugötur
Hugtakið göngugata er skilgreint
í nýju lögunum og sérstakt ákvæði
sett um reglur sem gilda skulu í
göngugötum. Þannig er umferð
vélknúinna ökutækja í göngugöt-
um almennt óheimil með ákveðn-
um undanþágum.
Rauð ljós
í fyrsta sinn verður í lögum lagt
bann við akstri gegn rauðu ljósi en
slíkt bann hefur hingað til aðeins
verið í reglugerð.
Akstur í hringtorgum
Sett eru sérstök ákvæði um akst-
ur í hringtorgum. Þannig er lög-
fest að ökumaður í ytri hring skal
veita þeim sem ekur í innri hring
forgang út úr torginu. Þá skal öku-
maður í hringtorgi, sem skipt er í
tvær akreinar, velja hægri akrein
(ytri hring), ætli hann að aka út úr
hringtorginu á fyrstu gatnamótum.
Óheimilt er að skipta um akrein
við hring eða á milli ytri og innri
hrings í hringtorgi.
Eftirvagnar
Allir eftirvagnar vélknúinna öku-
tækja eru í lögunum gerðir skrán-
ingarskyldir, óháð stærð þeirra.
Sorp úr ökutækjum
í lögunum er lagt bann við því
að fleygja sorpi út úr ökutæki eða
skilja eftir á vegi sorp eða ann-
að sem óhreinkar veg eða náttúru,
jafnvel þótt það hafi ekki í för með
sér hættu eða óþægindi fyrir aðra
vegfarendur. í gildandi umferðar-
lögum er aðeins lagt bann við því
að fleygja eða skilja sorp eftir á vegi
það sem getur haft í för með sér
hættu eða óþægindi fyrir umferð-
ina.
Takmörkun umferðar
vegna mengunar
Veghaldara verður nú heimilað að
takmarka eða banna umferð um
stundarsakir á vegi eða svæði þeg-
ar mengun er yfir heilsufarsmörk-
um eða hætta talin á að svo verði.
Til grundvallar banni skal liggja
fyrir rökstuðningur, studdur mæli-
niðurstöðum og mengunarspám.
Ráðherra er heimilt að setja reglu-
gerð með nánari ákvæðum um tak-
markanir vegna mengunar.
Ökukennsla
Fært er í lög að ökukennar-
ar þurfi að stunda nám og stan-
dast próf í viðkomandi ökutækja-
flokki en kveðið hefur verið á um
það í reglugerð hingað til. Gerð
er sú krafa að ökukennarar þurfi
að fullnægja kröfum um líkamlegt
og andlegt hæfi sem gerðar eru til
ökumanna sem annast farþega-
flutninga í atvinnuskyni. Þá verð-
ur heimilt að synja þeim um starfs-
leyfi sem hefur hlotið dóm fyrir
kynferðisbrot.
Heilbrigðisskilyrði fyrir
ökuréttindum
í lögunum er ákvæði um að lögregla
skuli afturkalla ökuréttindi ökumanns
tímabundið í þrjá mánuði ef vafi leik-
ur á að ökumaður uppfylli heilbrigð-
isskilyrði til að fá útgefið ökuskírteini.
Ökumaður skal svo gangast undir
mat á aksturshæfni sinni undir um-
sjón trúnaðarlæknis Samgöngustofu
og verða ökuréttindi ekki gild að nýju
fyrr en að loknu slíku mati. mm
Ýmis ný ákvæði í umferðarlögum sem taka gildi um áramót