Skessuhorn - 31.07.2019, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Costa del hvar sem er
Ég elska sól, eins og mér hefur orðið tíðrætt um hér í leiðurum Skessu-
horns í gegnum tíðina. Þegar „sú gula“ eins og góður vinur minn kallar
hana alltaf er sem hæst á lofti uni ég hag mínum sérstaklega vel í sólbaði.
Mér finnst gaman að vera sólbrúnn. Og ég er ekki sá eini. Það voru svo
margir á Langasandi síðdegis á mánudaginn að ég komst ekki í sjóinn. Það
var bara ekki pláss fyrir fleiri. Varð ég því að gera mér að góðu að láta sól-
ina baka mig þar sem ég lá í Guðlaugu (sæl, Guðlaug). Æj og ó, það sem á
mann er lagt.
Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að veðrið hefur leikið við
okkur hér í landshlutanum undanfarið. Mikið er þetta búið að vera dásam-
legt. Haaaa! Spáin fram yfir helgi er heldur ekki af verri endanum. útlit er
fyrir að víða um land verði álíka heitt og á Kanaríeyjum. Þegar ég sá spána
varð mér hugsað til landa minna sem liggja þar ófáir núna. Talandi um að
kaupa köttinn í sekknum. Kennir þeim að vera ekki að hendast svona um
hnöttinn að óþörfu. Áður en farið er í næsta strandferðalag er rétt að minna
sig á að þegar allt kemur til alls svífur sólin líklega bara um himininn til að
minna okkur á myrkrið sem býr innra með okkur.
Óumflýjanlegur fylgifiskur blíðviðrisins sem hefur gripið landann eins
og stormsveipur eru deilingar efnis á grammið, snappið og feisbúkk. Fólk
er mikið að njóta og öll þurfum við að sýna og sanna fyrir öðrum að við
séum svo sannarlega að fokking njóta. Eitt sem hefur gripið mig og eflaust
fleiri er að þegar sólin gubbar geislum sínum yfir okkur tekur fólk gjarnan
upp ný örnefni fyrir bæi og byggðir. „Flórída-Skaginn“ læðist alloft fram
af vörum bæjarbúa hér á Akranesi og jafnvel má finan dæmi í rituðu máli.
Þykir mér það alltaf jafn leim og um leið pínu fyndið. Af þeim sökum hef
ég tekið upp á því að nota þennan frasa óspart sjálfur. „Costa del Akranes“
hef ég heyrt líka, „Costa del Grundarfjörður“ hef ég séð, sem og reyndar
„Costa del Stykkishólmur“, „Costa del Borgarnes“, „Costa del Húsafell“,
„Costa del Ólafsvík“ og „Costa del Skarðsstöð“. Allt saman svo ótrúlega
lummó að ég get ekki annað en tekið þetta upp á mína arma. Spurður um
heimilisfang á góðviðrisdegi segi ég nú hiklaust; „Costa del Heiðarbraut
40, íbúð 104,“ og kemst ekki einu sinni í póstnúmerið fyrir hlátri.
Annað sem fylgir sólinni eru sólgleraugun. Af þeim er ég hrifinn. Þau
gera svo mikið fyrir mann á myndum. Þar sem maður kjagar kasjúal um
í fögru landslagi á fallegum sólardegi gera sólgleraugun myndirnar, sem
maður tekur til að sýna fólki hvað maður er mikið að njóta, afslappaðar en
um leið kúl. Láta líta út fyrir að manni sé drull um allt nema sjálfan sig,
um leið og maður kallar á athygli frá öðrum. Talandi um myndir af sjálf-
um sér; ég á mjög margar myndir af sjálfum mér og pósta þeim reglulega
á grammið. Instagram er uppáhalds samfélagsmiðillinn minn. Hann er svo
dásamlega sjálfhverfur. Þar draga flestallir upp frekar stílhreina glansmynd
af sjálfum sér og eigin lífi. Ég tek að sjálfsögðu þátt í því og geng líklega
lengra en flestir aðrir. Engan má svo mikið sem gruna hvaða mann ég hef
að geyma í raun og veru.
Kæri lesandi, hér hefur verið farið nokkuð víða en samt ekki talað um
neitt. Ég á ekki von að þú sért nokkurs vísari eftir lesturinn. Það er undir-
ritaður svo sannarlega ekki. Hann situr inni á skrifstofu, lemur á lyklaborð
og hugsar dreyminn til sólargeislanna. Þeirra ætlar hann að njóta um leið
og hann fær tækifæri til. Vonar hann að þú sért nú þegar að njóta þeirra, á
Costa del hvar sem fokking er.
Kristján Gauti Karlsson
Katrín jakobsdóttir forsætisráð-
herra hefur skipað dr. Ásgeir jóns-
son í embætti seðlabankastjóra.
Skipunin gildir til fimm ára frá 20.
ágúst næstkomandi og tekur hann
við starfinu af Má Guðmundssyni.
Embættið var augýst laust til um-
sóknar í febrúar síðastliðnum. Alls
bárust 16 umsóknir, en þrír drógu
umsóknir sínar til baka. Alls voru
því 13 umsóknir, frá ellefu körlum
og tveimur konum.
Hæfisnefnd mat fjóra umsækj-
endur mjög vel hæfa til að gegna
starfinu; Arnór Sighvatsson, Ás-
geir jónsson, Gylfa Magnússon og
jón Daníelsson. Forsætisráðherra
boðaði alla þessa umsækjendur til
viðalta, sem og fimm umsækjendur
sem höfðu verið metnir vel hæfir.
Auk þess að meta faglega þekkingu
mat lagði ráðherra mat á persónu-
bundna þætti umsækjenda, svo sem
stjórnunarhæfileika og hæfni í sam-
skiptum. Að viðtölum forsætisráð-
herra loknum var það mat hans að
Ásgeir jónsson væri hæfastur um-
sækjenda.
Ásgeir jónsson er doktor í hag-
fræði frá Indiana háskóla í Banda-
ríkjunum. Hann lauk doktors-
prófi árið 2001 með alþjóðafjár-
mál, peningamálahagfræði og hag-
sögu sem aðalsvið. Doktorsritgerð
hans fjallaði um sveiflujöfnun yfir
skamman tíma í litlu, opnu hag-
kerfi.
Ásgeir hefur starfað við hag-
fræðideild Háskóla íslands frá árinu
2004, fyrst sem lektor og síðan dós-
ent. Hann hefur verið deildarfor-
seti hagfræðideildar frá 2105. Sam-
hliða störfum sínum við Háskóla
íslands hefur Ásgeir verið með-
al efnahagsráðgjafa Virðingar og
Gamma. Hann hefur gegnt öðrum
ábyrðgarstörfum, m.a. verið for-
maður starfshóps um endurskoðun
peningastefnu og forstöðumaður í
greiningardeild og aðalhagfræðing-
ur Kaupþings og síðar Arion banka
fr´2004 til 2011. Þar áður, frá 2000
til 2004, var hann sérfræðingur hjá
Hagfræðistofnun og stundakennari
við Háskóla íslands.
kgk
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytið hefur birt til umsagn-
ar drög að grænbók um stefnu ís-
lenskra stjórnvalda í flugrekstri
og trengdri starfsemi hér á landi.
Þar eru settar fram tillögur að
áherslum í flugmálum til framtíðar
á 21 sviði málaflokksins.
Meðal þess sem þar er lagt til
er að framtíðaruppbygging fyrir
alþjóðaflugvöll á næstu árum verði
í Keflavík nema annar staður verði
talinn hagkvæmari og öruggari.
Lagt er til að innanlandsflug
verði skilgreint sem hluti inniviða
landsins og gjaldtaka þar verði í
samræmi við það sem tíðkast um
aðra samgöngumáta. Miðstöð in-
nanlandsflugs verði áfram í Vat-
nsmýrinni í Reykjavík þar til an-
nar eða betri kostur er tilbuínn. Þó
skuli halda áfram að greina aðra
valkosti en Vatnsmýrina en engu
að síður tryggja að starfsemin þar
hafi tækifæri til uppbyggingar, svo
lengi sem aðrir kostir eru ekki í
boði.
Þá er tefnan að íslenskur fl-
ugiðnaður verði í fararbroddi þe-
gar kemur að orkuskiptum í flugi
og stefnan sett á að ísland verði
fyrsta landið þar sem meirihluti
flugvéla í almanna- og kennsluflugi
verði rafmagnsknúnar eða tvinn.
kgk/ Ljósm. Wikimedia
Commons/ Algkalv.
Greint var frá vali á íbúa ársins í
Reykhólahreppi á hátíðinni Reyk-
hóladögum sem haldin var um liðna
helgi. íbúi ársins að þessu sinni er
Guðmundur Ólafsson á Grund.
Var hann tilnefndur fyrir greiðvikni
sína og hjálpsemi, auk þess að hafa
í áranna rás gegnt fjölda trúnaðar-
starfa í samfélaginu, sem oddviti,
slökkviliðsstjóri og fleira.
Fjölmargar tilnefningar bárust
og því var ákveðið að þessu sinni
að heiðra jóhannes Geir Gíslason í
Skáleyjum sérstaklega líka. Nýverið
gaf hann út bókina Á Eylenduslóð-
um, þar sem sagt er frá ýmsu sem
tengist lífinu og tilverunni í Breiða-
fjarðareyjum. kgk
Guðmundur á Grund íbúi ársins
Guðmundur Ólafsson á Grund.
Drög að flugstefnu kynnt
Dr. Ásgeir Jónsson hagfræðingur.
Ásgeir Jónsson er
nýr seðlabankastjóri