Skessuhorn


Skessuhorn - 31.07.2019, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 31.07.2019, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 2019 5 Ert þú áskrifandi? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is Mikið úrval varahluta í Ifor Williams kerrur og allar aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu Ifor Willams Kerrur í öllum stærðum og útfærslum Skagamaðurinn Andri Snær Axels- son keppti ásamt fimm öðrum ís- lendingum á Ólympíuleikunum í stærðfræði sem fram fóru í Bath á Englandi nú fyrir skömmu. Náði Andri Snær þar frábærum árangri og hlaut heiðursviðurkenningu. „Þetta var alveg rosalega skemmti- legt. Það var mjög sérstakt að taka þátt og eiginlega smá súrrealískt,“ segir Andri Snær þegar Skessu- horn heyrði í honum. „Á Ólympíu- leikunum keppa sex keppendur frá hverju landi sem tekur þátt. Þarna voru keppendur frá stórum löndum eins og Kína og Bandaríkjunum og eru þeir taldir vera meðal þeirra bestu í heimi og það var virkilega gaman að fá að keppa við þá,“ held- ur Andri Snær áfram. Á Ólympíuleikunum leysa kepp- endur sex dæmi á tveimur dögum og hafa þau samtals níu klukkustund- ir til að leysa öll dæmin. „Þetta er í rauninni bara próf og hæsta ein- kunn vinnur. Þetta er samt gjör- ólíkt öllum stærðfræðiprófum sem þú myndir sjá í skólum, ekki bara erfiðara heldur líka ólíkt stærð- fræðilega séð.“ Andri Snær stundar nú nám í Menntaskólanum í Reykjavík og stefnir á að útskrifast næsta vor og tekur þá stefnuna á stærðfræði í há- skóla. Aðspurður segir hann stærð- fræðina þó ekki alltaf hafa legið vel fyrir sér. „í grunnskóla, áður en ég fór í unglingadeild, þoldi ég alls ekki stærðfræði. Þegar ég var svo kominn í unglingadeild fór ég að fá áhuga á henni og sjá betur hversu flott grein þetta er,“ segir hann. Auk Andra Snæs voru í liði ís- lendinga þau Arnar Ágúst Krist- jánsson, Árni Bjarnsteinsson og Vigdís Gunnarsdóttir nemendur í MR, Friðrik Snær Björnsson úr MA og Tómas Ingi Hrólfsson úr MH. Þjálfari íslenska liðsins er Álf- heiður Edda Sigurðardóttir og far- arstjóri var jóhanna Eggertsdóttir, stærðfræðikennari í MR. arg Þau Katrín Guðjónsdóttir og Mar- ius Ciprian Marinescu hafa fest kaup á Kaffihúsinu Lesbókinni á Akranesi og munu á morgun, fimmtudaginn 1. ágúst, opna þar nýtt kaffihús undir nafninu Skaga- kaffi. Katrín hefur lengst af unnið hjá Símanum en núna síðast vann hún á innkaupasviði hjá Landspít- alanum. Marius er línukokkur og hefur unnið víða en kom til íslands til að vinna fyrir tveimur árum. „Við búum eins og er í Reykjavík en okk- ur langar að flytja á Akranes. Ég er sjálf frá ísafirði en Marius frá Rúm- eníu, svo það verður breyting fyrir hann að flytja svona í smábæ,“ seg- ir Katrín kímin þegar blaðamaður Skessuhorns heyrði í henni. Hjá Skagakaffi verður hægt að fá alla hefðbundna kaffidrykki og kök- ur auk þess sem boðið verður upp á smá a la carte matseðil. „Við mun- um bjóða upp á nokkrar tegundir af kökum hverju sinni og á matseðl- inum verðum við með léttan mat, taco, salat og eitthvaði í þeim dúr,“ segir Katrín. En hvernig vildi það til að þau ákváðu að fara í kaffihúsarekstur á Akranesi? „Við fórum í smá bílferð upp á Skaga. Marius hafði aldrei farið þangað og varð yfir sig hrif- inn. Daginn eftir sáum Lesbókina auglýsta til sölu. Við öfluðum meiri upplýsinga og eftir það ákváðum við bara að slá til,“ svarar Katrín. „Við sáum tækifæri í þessu fyrir okkur að gera eitthvað saman. Marius mun sjá um matinn og mitt hluverk er að sjá til þess að viðskiptavinir okk- ar fái sitt. Þetta er alveg nýtt fyr- ir mér en mig hlakkar til að taka á móti fólki og veita góða þjónustu,“ segir Katrín. Af tilefni opnunar- innar verður tilboð fram á laugar- dag þar sem 20% afsláttur verður af þremur tacoum á matseðli. „Við viljum þakka öllum sem hafa að- stoðað okkur, sérstaklega foreldr- um mínum og eigendum og yfir- kokki á Bastard veitingahúsi,“ segir Katrín að endingu. arg/ Ljósm. aðsendar. Andri Snær Axelsson keppti fyrir skömmu á Ólympíuleikunum í stærð- fræði sem fram fóru í Englandi. Ljósm. aðsend Hlaut heiðursviður- kenningu á Ólympíu- leikunum í stærðfræði Síðustu daga hafa þau Katrín og Marius staðið í ströngu við að taka kaffihúsið í gegn fyrir opnun. Skagakaffi verður opnað á morgun Katrín Guðjónsdóttir og Marius Ciprian Marinescu opna kaffihúsið Skagakaffi á Akranesi á morgun.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.