Skessuhorn


Skessuhorn - 31.07.2019, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 31.07.2019, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 201914 Danshöfundurinn Anna Kolfinna er einn þeirra listamanna sem tekur þátt í listahátíðinni Plan-B sem haldin verður í Borgarnesi í ágúst. Á hátíðinni stendur hún fyrir gjörningi í Borgarneskirkju 9. ágúst og leitar hún að konum á aldrinum 12 til 80 ára frá Borg- arnesi og nágrenni til að taka þátt í honum. Gjörningurinn Önnu er hluti af röð gjörninga undir yf- irskriftinni „Yfirtaka“, þar sem listakonan gerir tilraunir til að taka yfir rými með hjálp kvenna úr mismunandi áttum í samfélaginu. Sýningin í Borgarneskirkju verð- ur þriðja yfirtakan, en um er að ræða verk sem er einfalt að upp- byggingu og hugsað sem nokk- urs konar athöfn þar sem hópur kvenna á ólíkum aldri notar okur, samstöðu og raddbeitingu til að taka yfir rýmið. Allar konur sem hafa áhuga á að taka þátt geta haft samband við Önnu Kolfinnu í tölvupósti á annakolfinna@gmail.com. Fyr- ri sviðsreynsla er ekki skilyrði, né íslenskukunnátta. Tvær æfin- gar verða í kirkjunni dagana fyrir sýningu. kgk Óskar eftir konum til að taka þátt í gjörningi Plan-B Art Festival verður hald- in í þriðja sinn í Borgarnesi helgina 9.-11. ágúst næstkomandi. Listahá- tíðinni verður þó þjófstartað degi fyrr. Fimmtudaginn 8. ágúst heldur Inga Björk Margrétar Bjarnadótt- ir erindi í Safnahúsi Borgarfjarð- ar þar sem hún útskýrir samtímalist og hvers vegna erfitt getur reynst að skilja hana. Inga Björk er einn af stofnendum og skipuleggjend- um hátíðarinnar. Hún, ásamt Sig- ursteini Sigurðssyni, Báru Dís Guð- jónsdóttur, Sigrúnu Gyðu Sveins- dóttur og Loga Bjarnasyni, hefur frá byrjun árs hægt og rólega verið að setja saman dagskrá hátíðarinn- ar sem nær hápunkti eftir tvær vik- ur. Skessuhorn hitti á einn af skipu- leggjendunum Plan-B listahátíðar- innar, Sigurstein Sigurðsson, fyrir helgi sem segir undirbúninginn hafa gengið vel. Tryggir bakhjarlar „Plönin ganga vel og það eru eng- in vandamál í gangi,“ segir Sigur- steinn sem er líka einn af stofnend- um hátíðarinnar. „Við höfum aðeins þurft að hliðra til dagskránni en það er eðlilegt á svona hátíðum að at- riði detti út einhvern tímann í und- irbúningnum. Þá setjum við annað atriði í staðinn. Þetta eru ákveðnar hrókeringar. En við vorum til dæm- is að enda við að skipuleggja partý- ið.“ í ár verður aðal sýningarrýmið á neðstu hæð í húsnæði Arion Banka við Digranesgötu 2 í Borgarnesi. „Það er virkilega flott rými, bjart og gott og æðislegt að hafa klettana þarna á bakvið. Mjög smart rými fyrir listina og við erum sannarlega spennt fyrir því. Arion Banki er að standa vel við bakið okkar í ár og við erum rosalega stolt og ánægð með það. Við erum að fá góða og trygga bakhjarla í ár. Landnámssetrið hef- ur verið bakhjarl hátíðarinnar frá upphafi og styrkir okkur mjög höfð- ingjalega ár hvert. Að auki er B59 hótel að styrkja okkur mjög rausn- arlega eins og Arion Banki. Svo eru önnur fyrirtæki sem leggja líka til hátíðarinnar, eins og þau geta, og það er mikil gleði hjá okkur skipu- leggjendum að fá þennan stuðning frá atvinnulífinu,“ segir Sigursteinn stoltur og bætir jafnframt við að eft- ir opnunardaginn, síðar um kvöld- ið, verði slegið upp opnunarpartýi þangað sem allir eru velkomnir. Listahátíðin Plan-B verður haldin í Borgarnesi Nokkrir sýningarstaðir Sýningarstaðirnir eru dreifðir um Borgarnes í ár. Eins og fyrr seg- ir verður aðalsýningarrýmið í hús- næði Arion Banka. Á laugardeg- inum verður gjörningakvöld sem fram fer í gamla fjósinu í Einars- nesi, rétt fyrir utan Borgarnes en þar er sýningarrýmið Space of Milk sem Sigríður Þóra Óðinsdóttir rek- ur, og er gjörningakvöld hátíðar- innar ávallt vel sótt að sögn Sigur- steins. „í fyrra voru um 150 manns sem mættu og það var geggjuð stemning sem myndaðist í gamla fjósinu. Þetta er í rauninni algjör yfirtaka af listamönnum á rýminu sem sýna listir sínar og gjörning í einn og hálfan til tvo tíma. Þetta er alveg dásamlega stund.“ Auk þess er gott samstarf við Borgarneskirkju sem styrkir há- tíðina um sýningarrými. Þar verð- ur kórverk sýnt sem gjörningur og sviðslistaverk sem Sigursteinn segir vera skemmtilegt sjónarspil og eitt- hvað fyrir eyrun á sama tíma en í verkinu koma konur úr Borgar- byggð fram. „Það hefur líka verið draumur hjá mér að vera með mikið af úti- listaverkum. Hingað til hefur ver- ið takmarkað magn af slíkum um- sóknum en mun meira í ár. Það eru svona trend sem myndast í lista- heiminum. Til dæmis í fyrra þá var annar hver maður sem sótti um á hátíðinni með vídeó listaverk, en í ár var mjög mikið af fólki með úti- listaverkum, sem er eins og tón- list í mín eyru,“ segir Sigursteinn ánægður með þróunina. Vegglist er ekki skemmdarverk Götulistadúóið og handhafar Hönnunarverðlauna íslands, Krot & Krass, verða með á Plan-B há- tíðinni í ár og er Sigursteinn yfir sig spenntur með þátttöku þeirra í hátíðinni. „Þeir hafa verið að gera góða hluti með götulist. Það var planið að fá þau til okkar í fyrra en sumarið hreinlega bauð ekki upp á þær aðstæður sem þarf til að vinna svona verk. Núna í ár er andstæðan og við sjáum fram á að geta verið með verk eftir þau sem kemur þá til með að prýða Borgarnes um ókom- in ár. Eins og er þá erum við að leita að vegg, hann er ekki fundinn en það eru nokkrir álitlegir vegg- ir sem eru í sigtinu og koma vel til greina. Það er bara spurning hvaða veggflötur verður fyrir valinu. Við viljum hafa þetta áberandi í bæn- um enda mikið prýði,“ segir Sigur- steinn áhugasamur. Oft hefur vegglist verið gagn- rýnd fyrir að vera krot en Sigur- steinn þvertekur fyrir að svo sé. „Það er algengur misskilningur að þetta séu skemmdarverk. Það er eitthvað sem heitir veggjakort þar sem úðað er á veggi í hugsunarleysi og aðal markmiðið er að skemma frekar en að fegra. Vegglist aftur á móti er eitthvað sem stíllinn hefur verið í einhver ár að þróast og er útpælt hverju sinni. Þetta er líka mjög áhrifarík leið til að hafa já- kvæð áhrif á umhverfið. Til dæm- is þá er borin meiri virðing fyr- ir veggjum sem búið er að skreyta með vegglistaverki og síður krot- að á slíka veggi,“ útskýrir Sigur- steinn sem gerði rannsókn á veggl- ist í námi sínu sem arkitekt á sínum tíma og því vel kunnugur efninu. Listamenn fá greitt Hátíðin hefur verið að sækja í sig veðrið síðan hún var sett á laggirn- ar árið 2016. Plan-B hefur fengið góðar viðtökur, bæði meðal íbúa í Borgarbyggð en einnig í listasen- unni á íslandi. „Plan-B hefur ver- ið lýst sem því ferskasta sem er að gerast í samtímalist á íslandi í dag. Við fengum til dæmis tilnefningu til Eyrarrósarinnar sem er ákveðin staðfesting á gæðum hátíðarinnar, en það eru verðlaun sem veitt eru framúrskarandi menningarverkefn- um á starfssvæði Byggðarstofnunar. Við erum himinlifandi með þessar viðurkenningar sem hátíðin er að fá,“ segir Sigursteinn stoltur. „Þetta er grasrótarhátíð, alþjóðleg hátíð, og við viljum að þetta sé vettvangur fyrir upprennandi listamenn, ekki síður en þá sem reyndari eru. Við þekkjum til nokkurra sem hafa ver- ið að gera góða hluti í listaheim- inum og jafnvel tilnefnd til verð- launa og hvað eina, sem voru að stíga sín fyrstu skref hjá okkur. Þar viljum við vera, þarna í byrjuninni hjá listafólki. Að auki borgum við öllum listamönnum fyrir framlag- ið sitt, það hefur verið prinsipp frá fyrsta degi sama hversu blönk við höfum verið. Þetta eru ekki háar upphæðir en með því að borga sýn- um við verðskuldaða virðingu fyrir framlag sitt til hátíðarinnar. Sömu- leiðis þá setja listamenn á sín CV að þeir hafa tekið þátt í hátíðinni og það gleður okkur að listamenn séu stoltir af því að sýna hjá okkur. Góð bæjarkynning Skipuleggjendur hátíðarinnar segja hátíðina vera góð kynning fyrir Borgarnes og nærsvæði og leggja mikla áherslu á að koma bænum á kortið. „Það eru margir sem koma hingað á hátíðina sem hafa aldrei komið til Borgarness. Flestir þeirra þekkja ekkert annað en sjoppurnar við inngang bæjarins. Við reynum að fá fólk til að staldra við, anda að- eins og njóta umhverfisins, í stað- in fyrir að vera í þessu stress um- hverfi sem umlykur sjoppurnar og ýtir eingöngu undir það að fólki drífi sig áleiðis,“ segir Sigursteinn og hristir hausinn. Það hefur ver- ið stígandi með hátíðinni síðustu árin og fleiri sem koma á Plan-B ár hvert. „Það kostar ekkert inn á hátíðina, það er bara að koma og njóta,“ segir Sigursteinn að end- ingu. Upplýsingar um hátíðina má finna á öllum helstu samfélagsmiðl- um undir Plan-B Art Festival og á heimasíðu þeirra, www.planbart- festival.is. glh Sigursteinn Sigurðsson, einn af stofnendum og skipuleggjendum Plan-B.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.