Skessuhorn - 31.07.2019, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 20196
Aflatölur fyrir
Vesturland
20.-26. júlí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 15 bátar.
Heildarlöndun: 17.817 kg.
Mestur afli: Erla AK: 2.420 kg í
þremur löndunum.
Arnarstapi: 11 bátar.
Heildarlöndun: 11.240 kg.
Mestur afli: Heppinn AK: 1.665
í tveimur róðrum.
Grundarfjörður: 12 bátar.
Heildarlöndun: 17.768 kg.
Mestur afli: Steini HU: 4.603
kg í tveimur róðrum.
Ólafsvík: 24 bátar.
Heildarlöndun: 40.680 kg.
Mestur afli: Brynja SH: 14.537
kg í þremur löndunum.
Rif: 14 bátar.
Heildarlöndun: 12.729
Mestur afli: Muggur SH: 1.576
kg í þremur róðrum.
Stykkishólmur: 20 bátar.
Heildarlöndun: 138.935 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 18.623
kg í sex róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Brynja SH - ÓLA: 9.499 kg.
25. júlí.
2. Gísli Gunnarsson - STY:
4.537 kg. 22. júlí.
3. Blíða SH - STY: 4.367 kg.
23. júlí.
4. Magnús HU - STY: 4.267
kg. 20. júlí.
5. Júlli Páls - ÓLA: 4.010 kg.
25. júlí.
-kgk
Rólegt í
umdæmi
lögreglunnar
VESTURLAND: Verk-
efni Lögreglunnar á Vest-
urlandi síðustu viku tengd-
ust að mestu umferð. Eitt-
hvað var um hraðakstursbrot
og tveir voru teknir fyrir ölv-
un við akstur og einn undir
áhrifum fíkniefna og með lít-
ið magn af fíkniefnum í fórum
sínum. Að sögn lögreglunnar
fóru bæjarhátíðir í umdæminu
um síðustu helgi vel fram en
bæði voru Reykhóladagar og
Á góðri stund í Grundarfirði.
-arg
Fjórar milljónir
úr styrkvegasjóði
DALABYGGÐ: Byggðarráð
Dalabyggðar fagnaði á síðasta
fundi sínum auknu framlagi
til styrkvega. Sveitarfélagið
sendi umsókn í styrkvegasjóð
og fékk úthlutað fjórum millj-
ónum króna. Samþykkt var
á fundinum að úthluta 200
þús. kr. í Reykjadalsveg, einni
milljón í Ljárskógarfjallsveg,
400 þús. kr. í Skarðsstöðvar-
veg, 100 þús. kr. í Brekkudals-
veg, 50 þús. kr. í Villingadals-
veg, 300 þús. kr. í Hvamms-
dalskot, 100 þús. kr. í Flekku-
dal, 400 þús. kr. í Efribyggð-
arveg og 200 þús. kr. í Efri-
byggðarveg. Alls verður 650
þús. krónum varið til annarra
verka og 200 þús. kr. í vinnu
frá áhaldahúsi.
-kgk
Megrunarkaffi
til skoðunar
LANDIÐ: Matvælastofnun
hefur tekið til skoðunar megr-
unarkaffi sem er til sölu hér á
landi eftir að ábendingar bár-
ust um að kaffið innihéldi am-
fetamínskylt efni. Morgun-
blaðið greindi fyrst frá en þar
kemur fram að í kaffinu er
meðal annars efnið Pheny-
lethylamine sem er á bann-
lista hjá Alþjóðalyfjaeftirlit-
inu WADA. Efnið er amfeta-
mínskylt örvandi efni sem tal-
ið er hættulegt heilsu fólks. En
umrætt kaffi hefur mikið ver-
ið auglýst á samfélagsmiðlum
undanfarið sem töfralausn til
að hjálpa fólki að slökkva syk-
urlöngun og að grennast.
-arg
Erindi Brekkubæjarskóla á Akranesi
um aukna þjónustuþörf var tekið
fyrir öðru sinni á fundi bæjarráðs
síðasta fimmtudag. Bæjarráð hafði
áður afgreitt erindið með ófull-
nægjandi hætti og var það því lagt
fyrir að nýju, að því er fram kemur
í fundargerð.
Niðurstaðan var sú að bæjarráð,
í umboði bæjarstjórnar, samþykkti
viðauka við fjárhagsáætlun upp á
4,2 milljónir króna, vegna aukinnar
þjónustuþarfar skólans fyrir kom-
andi skólaár. útgjöldum verður
mætt með lækkun á handbæru fé.
Rakel Óskarsdóttir er bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks og á jafn-
framt sæti í bæjarráði. Hún sat hjá
við afgreiðsluna og gagnrýndi vinnu-
brögð meirihlutans. í bókun Rakel-
ar er rifjað upp að bæjarstjórn hafi
samþykkt reglur um gerð viðauka á
fundi sínum í lok maí síðastliðins,
með það að markmiði að skýra ferli
við gerð slíkra viðauka og áhrif þess
á fjárhagsáætlanir og ársreikninga.
„Samkvæmt sveitarstjórnarlögum
og reglugerð um bókhald, fjárhags-
áætlun og ársreikninga sveitarfé-
laga er fjárhagsáætlun bindandi fyr-
ir yfirstandandi ár og óheimilt að
víkja frá áætlun nema bæjarstjórn
hafi samþykkt viðauka við fjárhags-
áætlun,“ segir í bókun Rakelar. „Á
fundi bæjarráðs Akraness þann 11.
júlí sl. samþykkti bæjarráð Akraness
með atkvæði eins fulltrúa Samfylk-
ingarinnar auka fjárútlát að upp-
hæð 10.025.180,- kr., vegna auk-
inna stöðugilda í Brekkubæjarskóla,
án samþykktar eða gerð viðauka við
fjárhagsáætlun bæjarins. Framsókn
með frjálsum kölluðu þá ekki inn
varamann vegna vanhæfi formanns
bæjarráðs,“ segir í bókuninni. Rakel
gagnrýnir að ekki hafi verið gerður
viðauki vegna ráðstöfunarinnar. „í
öðru lagi er kveðið á um í reglugerð
um viðauka að ávallt skuli leitast við
að finna svigrúm innan viðkomandi
deildar/málaflokks sem ráðstöf-
unin varðar áður en leitað skuli að
svigrúmi annars staðar. í þessu til-
felli var það ekki gert, né ákvörðun
tekin um hvaðan fjármunirnir fyrir
ráðstöfuninni áttu að koma.“ Enn
fremur segir í bókuninni að beiðn-
in hafi komið inn til bæjarráðs frá
skóla- og frístundaráði án afstöðu
fagráðsins til málsins. „í fjórða lagi
gerir fulltrúi Sjálfstæðisflokksins at-
hugasemdir við það að einn fulltrúi
bæjarráðs (í umboð bæjarstjórnar)
geti tekið ákvörðun um ráðstöfun
slíkra fjármuna.“
kgk/ Ljósm. úr safni.
Gerir athugasemdir við
vinnubrögð meirihluta
ReyCup meistarar í 3. flokki kvenna 2019. Ljósm. fengin af vef KFÍA.
Sigruðu á ReyCup
Lið íA/Skallagríms í 3. flokki
kvenna fagnaði sigri á alþjóðlega
knattspyrnumótinu ReyCup sem
lauk á sunnudaginn. Vestur-
landsliðið lék gegn norska lið-
in Gjelleråsen IF í úrslitaleikn-
um sem leikinn var á Laugar-
dalsvelli.
Þær norsku voru ósigraðar
fyrir lokaleik mótsins og náðu
forystunni í úrslitaleiknum. Það
var síðan Lilja Björg Ólafsdót-
tir sem jafnaði metin þegar hún
gerði sér lítið fyrir og lét vaða á
markið af 40 metra færi.
Staðan var jöfn að leik loknum
og úrslitin réðust ekki fyrr en
eftir vítaspyrnukeppni. Þar sko-
raði íA/Skallagrímur úr öllum
sínum spyrnum á meðan norska
liðið misnotaði eina og stóð því
uppi sem sigurvegari. kgk