Skessuhorn - 31.07.2019, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 2019 9
ÚTSALA
Enn meiri
verðlækkun:
Nú 50%
afsláttur
af öllum
útsöluvörum
ATH: Lokað laugardaginn
3. ágúst.
OPNUNARTÍMI:
Mánudaga - föstudaga kl. 10-18
Laugardaga kl. 10-15
Safnahús Borgarfjarðar
Bjarnarbraut 4-6 Borgarnesi, 433 7200
Verði breytingar á dagskrá verður það kynnt á
www.safnahus.is
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir
Hvað er samtímalist og hvers vegna er
svona erfitt að skilja hana?
Fyrirlestur í Hallsteinssal fimmtudaginn 8. ágúst 2019, kl. 19.30.
Upptaktur að listahátíðinni Plan-B.
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir (f. 1993) er sjálfstætt starfandi
listfræðingur og sýningarstjóri. Í erindi sínu fer hún á léttum nótum yfir
hvað samtímalist er og hvers vegna erfitt getur reynst að skilja hana.
Verið velkomin!
EEE
Fyrirlesturinn tekur um
klukkutíma, svo verður
spjallað og heitt á könnunni.
Undanfarið hefur óvenju-
lega fjölskrúðugt fuglalíf
verið við strendur Akra-
ness. Mávager hafa til
dæmis verið áberandi á
sjónum út af Langasandi
og þá er krían harðdugleg
við ætisöflun. Aðrir fugl-
ar atast svo í kríunni eft-
ir að hún hefur náð feng
sínum og reyna að ræna
þær. Þá er talsvert af lunda
einnig, en lítið hefur verið
um hann á undanförnum
árum. Ástæða þessa fugla-
gers er sú að óvenjulega
mikið er af síli nærri landi.
Á meðfylgjandi myndum
má annars vegar sjá virðu-
legan lunda með sjö eða
átta síli í sínum litskrúðuga
goggi. Hins vegar er mynd
sem sýnir mávager þegar
stór hópur þeirra barðist
um ljúffenga fæðuna undir
yfirborðinu.
mm/ Ljósm. Guðbjörg
Ólafsdóttir.
Veisluhöld hjá sjófuglunum við Akranes
Á dögunum var undirritaður samn-
ingur um stuðning mennta- og
menningarmálaráðuneytisins við
Landssamtök íslenskra stúdenta.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra og Sonja
Björg jóhannsdóttir, forseti fram-
kvæmdastjórnar LíS, undirrituðu
samninginn. „Með samningnum
vill mennta og menningarmála-
ráðuneyti stuðla að öflugum sam-
starfsvettvangi háskólastúdenta og
að LíS sé öflugur tengiliður stjórn-
valda við íslenska háskólastúdenta
í umræðu um skipulag og stefnu-
mótun háskólastigsins,“ segir í til-
kynningu.
LíS eru samtök háskólanema á
íslandi og íslenskra háskólastúd-
enta sem nema á erlendri grundu.
Að LíS standa átta aðildarfélög
sem eru í forsvari fyrir stúdenta
við Háskólann á Akureyri, Há-
skólann á Bifröst, Landbúnað-
arháskóla íslands á Hvanneyri,
Listaháskóla íslands, Háskólann
í Reykjavík, Háskólann á Hólum,
Háskóla íslands og íslenska stúd-
enta erlendis. Hlutverk samtak-
anna er að standa vörð um hags-
muni stúdenta og skapa samstarfs-
vettvang fyrir íslensk stúdenta-
félög.
kgk
Sonja Björg Jóhannsdóttir, forseti framkvæmdastjórnar LÍS og Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, við undirritun samningsins. Ljósm.
Stjórnarráðið.
Ráðuneytið styður
við LÍS
Á laugardaginn var Extreme Triat-
hlon haldið á Snæfellsnesi. Um er
að ræða þríþraut þar sem byrjað var
á að synda um 3 kílómetra í Kolg-
rafarfirði. Því næst hjóluðu kepp-
endur umhverfis Snæfellsnes sem
er 180 kílómetra leið. Að lokum var
hlaupið fram og til baka yfir jök-
ulhálsinn, samtals 42,2 kílómetrar.
52 keppendur hófu keppni en tveir
kláruðu ekki. í karlaflokki var Geir
Ómarsson fyrstur til að ljúka keppni
á tímanum 10:09:43. í kvennaflokki
var Erin Green frá Bandaríkjunum
fyrst í mark á tímanum 15:34:39.
arg
Keppt var í þríþraut á
Snæfellsnesi