Skessuhorn - 31.07.2019, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 201916
Meistaraflokkur kvenna í körfu-
knattleik hjá Skallagrími hef-
ur endurnýjað samninga sína við
þær Árnínu Lenu Rúnarsdóttur
og Örnu Hrönn Ámundadóttur.
Munu þær spila með liðinu í Dom-
ino‘s deildinni á komandi tímabili.
Árnína kom frá Njarðvík fyr-
ir síðasta tímabil og var hún fasta-
maður í liðinu með 4,6 stig að með-
altali í leik. Hún er 25 ára og leikur
stöðu framherja.
Arna Hrönn er 17 ára og uppal-
inn Skallagrímskona. Hún leikur
stöðu bakvarðar og hefur verið í
meistaraflokki undanfarin tímabil
og tekið góðum og jöfnum fram-
förum. Á meðfylgjandi myndum
má sjá þær Árnínu og Örnu hand-
sala samninga sína við Guðveigu
Lind Eyglóardóttur hjá meistara-
flokksráði kvenna.
glh/Ljósm. Skallagrímur.
Knattspyrnumaðurinn
Hallur Flosason hefur
endurnýjað samning sinn
við íA til eins árs og mun
því leika með liði Skaga-
manna út sumarið 2020.
Hallur er fæddur árið
1993 og á að baki 103
deildar- og bikarleiki fyr-
ir íA. í þeim hefur hann
skorað sex mörk.
Sigurður Þór Sigur-
steinsson, framkvæmda-
stjóri KFíA, lýsir yfir
ánægju sinni með því að
samningur félagsins við
Hall hafi verið endur-
nýjaður. „Hallur hefur
verið mikilvægur hluti af
liði íA á síðustu árum og
ávallt staðið fyrir sínu.
Það er því fagnaðarefni
að hann skuli hafa fram-
lengt samning sinn við
félagið,“ segir Sigurður
Þór.
kgk
Knattspyrnufélag íA hefur sam-
ið við króatíska markvörðinn Dino
Hodzic um að leika með liði Skaga-
manna út sumarið. Hann er fæddur
árið 1995 og kemur til íA frá liðinu
Mezökövesd í Ungverjalandi. Hann
hefur áður á sínum ferli m.a. spil-
að með Vejle og Fredericia í Dan-
mörku. Dino þykir efnilegur mark-
vörður og er hugsaður sem vara-
markvörður til að veita Árna Snæ
Ólafssyni góða samkeppni, að því
er fram kemur á vef KFíA.
kgk
Reykholtshátíð var haldin í 23. sinn
um síðustu helgi og voru margir
sem lögðu leið sína á þessar sögu-
frægu slóðir í Borgarfirði til að
fylgjast með fjölbreyttum atriðum
tónlistarlistamanna. Oddur Arnþór
jónsson opnaði hátíðina á föstu-
dagskvöldinu með Önnu Guðnýu
Guðmundsdóttur ásamt strengja-
kvartett, þar sem flutt voru nokkur
vel valin verk. í fyrsta sinn á Reyk-
holtshátíðinni kom fram kvenna-
kór. Kvennakórinn Vox fem-
inae flutti alíslenska efnisskrá fyr-
ir gesti hátíðarinnar á laugardegin-
um, undir stjórn Hrafnhildar Árna-
dóttur Hafstað, en efnisskráin var
samsett af bæði þekktum kórperl-
um og öðrum minna þekktum. Síð-
ar um kvöldið voru kammertón-
leikar undir yfirskriftinni Rétttrún-
aður og rómantík. Sérstakur gest-
ur þeirra tónleika var hollenski lág-
fiðluleikarinn Anna Magdalena
den Herder sem var jafnframt að
koma í fyrsta skipti fram á hátíð-
inni. Hátíðinni lauk svo með tón-
leikunum Heimskringla og hetju-
dáð. Þar komu fram allir hljóðfæra-
leikarar hátíðarinnar saman ásamt
Oddi Arnþóri og Hrafnhildi, sópr-
an og Guja Sandholt, mezzó-sópr-
an sem flutti stystu óperu í heimi,
King Harald‘s Saga eftir judith
Weir í leikstjórn Árna Kristjáns-
sonar. Flutt var Píanókvartett í F-
moll eftir Brahms og lagaflokkur
Tryggva M. Baldvinssonar við texta
Þórarins Eldjárns. Kynnir hátíð-
arinnar var Guðni Tómasson, út-
varpsmaður á Rás 1, og gaf hann
nánari innsýn í efnisskrána með
sögumolum og frásögnum. „Hjart-
ans þakkir til allra áheyrenda, þeirra
sem komu fram á hátíðinni og ann-
arra sem lögðu sitt af mörkum til að
allir fengju notið hátíðarinnar sem
best,“ kom fram í tilkynningu frá
hátíðarhöldurum eftir helgi.
glh/Ljósm. Reykholtshátíð.
Kristinn Guðbrandsson er hættur
sem þjálfari meistaraflokks Skalla-
gríms í fótbolta. Þeir Viktor Már
jónasson og Sölvi G. Gylfason hafa
tekið við sem nýtt þjálfarateymi
liðsins og munu stýra liðinu það
sem eftir er af tímabilinu. Viktor
Már hefur verið leikmaður liðisins
á tímabilinu en færir sig nú í þjálf-
arahlutverkið. Sölvi er fyrrum leik-
maður Skallagríms og snýr nú aftur
sem þjálfari en hann er vel kunn-
ugur liðinu. „Markmiðið er að fá
menn til að hafa gaman af leikn-
um og fá meiri trú á verkefnið. Við
þurfum að líta á hvern leik sem úr-
slitaleik. Við stefnum á að halda
liðinu uppi, en brekkan er vissu-
lega brött,“ segir Sölvi. „Við lítum
á þetta sem áskorun. Leikirnir hafa
verið jafnir hingað til, það vantar
bara herslumuninn fyrir okkur að
klára þessa leiki. Ég hef fulla trú á
strákunum. Það er nóg af leikjum
eftir til að bæta okkar stöðu,“ bæt-
ir hann ákveðinn við og segir þá
Viktor jafnframt vera spennta fyr-
ir áskoruninni og verkefninu fram-
undan.
glh
Margir áheyrendur mættur á hátíðina.
Reykholtshátíð
haldin í tuttugasta
og þriðja sinn
Eitt af mörgum tónlistaratriðum sem
komu fram á hátíðinni.
Guðveig Lind og Arna Hrönn.
Árnína og Arna
áfram hjá Skallagrími
Guðveig Lind og Árnína Lena.
Hallur Flosa endurnýjar samninginn
Dino Hodzic markvörður.
Ljósm. Fredericia Dagblad.
Króatískur markvörður til ÍA
Sölvi G Gylfason og Viktor Már Jónasson stýrðu liðinu þegar Skallagrímur mætti Augnabliki í síðustu viku.
Sölvi og Viktor teknir
við Skallagrími