Skessuhorn


Skessuhorn - 31.07.2019, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 31.07.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 2019 17 Á góðri stund í Grundarfirði Bæjarhátíðin Á góðri stund fór fram um liðna helgi og ekki var annað að sjá en að gestir hátíðarinnar hafi skemmt sér vel. Hátíðin fór vel fram og gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi af glæsilegri dagskrá hátíðarinnar. ljósm. tfk Þétt á hátíðarsvæðinu eftir hina mögnuðu skrúðgöngu. Hreimur Örn Heimisson fékk nokkra aðstoðarmenn upp á svið í brekkusöngnum til að krydda flutninginn. Páll Óskar Hjálmtýsson var leynigestur á tónleikunum á fimmtudagskvöldinu þar sem að Stefán Jakobsson, karlakórinn Kári, Stúlknabandið MÆK og Bryndís Ásmundsdóttir ásamt hljómsveit voru með magnaða skemmtun. Stúlknabandið MÆK var með garðtónleika í garðinum hjá Óla Sigga og Sjöfn og var fjöldi manns sem mætti til að hlusta á þessa frábæru söngvara. Diljá Pálsdóttir sýndi mikil tilþrif á danssýningunni á laugardaginn. Söngkeppni barna var haldin á laugardagsmorguninn þar sem að krakkarnir létu ljós sitt skína í hátíðartjaldinu. Hamradrottningn sjálf lét sig ekki vanta á brekkusönginn en hérna er hún Guðlaug Halldóra Guðmundsdóttir eða Lauga á Hömrum með dóttur sinni Hrönn Harðardóttur. Halla Karen Gunnarsdóttir, Freydís Bjarnadóttir og Ragnar Smári Guðmundsson voru hress í sjoppu Ungmennafélags Grundarfjarðar. Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir og Trausti Leó Gunnarsson tróðu upp á hátíðarsvæðinu að loknum skemmtiatriðum og héldu uppi fjörinu. Guðjón Elísson klæddi sig upp í tilefni dagsins en það þarf líklega ekki að taka það fram að hann er búsettur í rauða hverfinu. Keppt var í ýmsum þrautum á milli hverfa og þarna er Kol- brún Líf Jónsdóttir í hörku keppni í kókosbolluáti. Hún stóð uppi sem sigurvegari að lokum. Þessi unga dama skemmti sér vel í froðugamani slökkviliðs- ins á föstudaginn. Skrúðgangan á laugardeginum var ansi mögnuð. Þessi ungi drengur á leið í skrúðgönguna á laugardeginum vopnaður stóru rauðu hjarta í tilefni dagsins.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.