Skessuhorn - 31.07.2019, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 201918
Reykhóladagar að baki
Reykhóladagar voru haldnir hátíðlegir um liðna helgi, frá
föstudegi til sunnudags. Gestir sem heimamenn skemmtu sér
í þarabolta og kassabílarallýi, kíktu á markað í íþróttahúsinu
og karnival í Hvanngarðabrekku. Hin árlega dráttarvélasýn-
ing og keppni í dráttarvélafimi var að sjálfsögðu á sínum stað
sem og kvöldvaka og dansleikur, svo fátt eitt sé nefnt.
Sunnudagurinn var helgaður 200 ára minningu jóns Thor-
oddsens. Katrín jakobsdóttir, forsætisráðherra og langalang-
afabarn skáldsins, flutti erindi um skáldsögur jóns og gítar-
leikarinn Björn Thoroddsen, sem jafnframt er langalangaf-
abarn jóns, flutti lög við ljóð hans ásamt söngkonunni Heru
Björk Þórhallsdóttur. kgk
Kátir krakkar á Reykhóladögum.
Hekla Karen Steinarsdóttir beitir hér öllum tiltækum ráðum til að sprengja blöðru
í dráttarvélafimini.
Tryggvi Harðarson sveitarstjóri ók fremstur í flokki að þessu sinni þegar
dráttarvélunum fornu var ekið inn í þorpið. Ljósm. Svanborg Guðbjörnsdóttir.
Guðþór Sverrisson veghefilstjóri, jafnan kallaður Gussi, sýndi lipra takta í þrautabrautinni.
Jóhanna Ösp Einarsdóttir átti veg og vanda að skipulagningu Reykhóladaga eins
og undanfarin ár.
Sunnudagurinn var helgaður minningu Jóns Thoroddsens. Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra hóf athöfnina á því að leggja blómsveig að minnsivarða Jóns
á Reykhólum. Naut hún liðsinnis Gunnlaugs Thoroddsens, annars afkomanda
skáldsins.
Þórgunnur Ríta Gústafsdóttir heldur betur einbeitt á svip í
einu leiktækjanna á karnivalinu.
Stórsöngkonan Hera Björk söng lög við ljóð Jóns Thorodd-
sens við undirleik Björns Thóroddsens gítarleikara, sem
jafnframt er afkomandi skáldsins.
Ávarp oddvita á kvöldvökunni var með óhefðbundnu
sviði þetta árið. Boðnar voru upp tíu rjómatertur og þurfti
Ingimar Ingimarsson oddviti að hætta framsögu þegar
öllum tertunum hafði verið kastað í hann.
Notið í brekkunni yfir brekkusöngnum.
Krakkarnir tóku lagið á kvöldvökunni í Hvanngarðabrekku.
Ung stúlka dansar á hnjánum á móður sinni undir brekku-
söngnum.