Skessuhorn


Skessuhorn - 31.07.2019, Side 20

Skessuhorn - 31.07.2019, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 31. júLí 201920 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Kvikmyndahátíðinni Ice Docs, Ice- land Documentary Film Festival, lauk á Akranesi á sunnudaginn 21. júlí síðastliðinn. Alls voru 59 al- þjóðlegar kvikmyndir sýndar á há- tíðinni, auk sérviðburða, vinnu- stofu fyrir ungmenni og sérstakrar barnadagskrár. Heimildarmyndir Þorgeirs Þorgeirsonar, sem Kvik- myndasafn íslands hefur nýlega skannað og lagfært, voru sýndar á hátíðinni og þá var fræðsludagskrá um feril Þorgeirs. Dómnefnd hátíðarinnar veitti verðlaun fyrir sýningu lokamynd- arinnar. Bresk/hollenska mynd- in Bruce Lee and the Outlaw eftir joost Vandebrug var sigraði aðal- keppnina. Dómnefndarverðlaun komu í hlut hinnar danska Human Shelter, eftir Boris Bertram. Mynd- in All Inclusive, eftir svissnesku leikstýruna Cortinu Schwingrube Ilic, var valin besta stuttmyndin og í flokki styttri mynda var það hin dansk/norska Haunted eftir Christina Einshøjsem sem hlaut verðlaun. Norður-Makedónska myndin Honeyland fékk sérstaka viðurkenningu dómnefndar. Dómnefndina skipuðu þau Anna Þóra Steinþórsdóttir kvikmynda- gerðarkona, Diane Henderson, einn listrænna stjórnenda Alþjóð- legu kvikmyndahátíðarinnar í Ed- inborg og írski gagnrýnandinn jes- sica Klang. Alls sóttu hátíðina 31 erlendur gestur auk 20 ungmenna frá Norð- urlöndunum sem tóku þátt í vinnu- stofum hátíðarinnar. Viðtökur gesta við IceDocs hafa verið afar góðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá stjórnendum hátíðarinnar. kgk/ Ljósm. IceDocs. Góðar viðtökur við IceDocs Frá einni af fjölmörgum sýningum hátíðarinnar. Gestir IceDocs njóta sín í kvöldsólinni á bakvið Bíóhöllina. Börn skemmta sér á Akratorgi, en sérstök barnadagskrá var á hátíðinni. Inga Björk Margrétar Bjarnadótt- ir mun halda fyrirlestur í Safna- húsi Borgarfjarðar fimmtudag- inn 8. ágúst næstkomandi. Heiti erindsins er; Hvað er samtíma- list og hvers vegna er svona erf- itt að skilja hana? Fyrirlesturinn er upptaktur að Plan-B Art Festi- val sem fer fram í Borgarnesi dag- ana 9.-11. ágúst en lesa má ítar- lega um dagskrá hátíðarinnar í blaðinu. Inga Björk er sjálfstætt starf- andi listfræðingur og sýningar- stjóri og er um þessar mundir að ljúka meistaranámi í listfræði við Háskóla íslands. í fyrirlestri sín- um í Safnahúsi fer hún á léttu nót- unum yfir hvað samtímalist er og hvers vegna erfitt getur reynst að skilja hana. Sjálf sleit Inga Björk barnsskóna í Borgarnesi og er einn stofn- enda listahátíðarinnar Plan-B Art Festival sem þar hefur verið hald- in ár hvert frá árinu 2016. Hátíðin hefur vakið mikla athygli og með- al annars komist á Eyrarrósarlist- ann, en þar eru verðlaunuð fram- úrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Fyrirlesturinn fer fram í Hall- steinssal í Safnahúsinu í Borgar- nesi og hefst klukkan 19:30. Heitt verður á könnunni að fyrirlestri loknum og gestir hvattir til að staldra við, spjalla og eiga góða stund saman. glh Inga Björk heldur erindi um samtímalist á Plan-B Art Festival í Borgarnesi. Flytur erindi um samtímalist

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.