Skessuhorn - 11.09.2019, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPtEMBER 20192
Nú þegar fyrsta haustlægð árs-
ins hefur gert vart við sig er rétt
að minna fólk á að huga að lausa-
munum í görðum og víðar. Á þess-
um árstíma fer allra veðra að vera
von og fljúgandi trampólín geta
valdið tjóni, bæði efnislegu og til-
finningalegu.
Fremur hæg suðvestlæg eða
breytileg átt á morgun. Víða dá-
lítil rigning en styttir smám sam-
an upp norðaustanlands. Hiti 4 til
9 stig að deginum. Suðvestan 5-13
m/s á föstudag, hvassast á Suður-
landi. Skúrir en úrkomulítið fyr-
ir austan. Hiti 6 til 10 stig. Ákveð-
in austlæg átt og talsverð rigning
á laugardag, en vestlæg átt um
kvöldið. Hiti 5 til 10 stig. Á sunnu-
dag og mánudag er útlit fyrir vest-
læga átt með rigningu eða skúr-
um, einkum um vestanvert landið.
Kólnar heldur í veðri.
„Ætlar þú að stunda líkamsrækt í
haust?“ var spurningin sem lesend-
ur gátu svarað á vef Skessuhorns í
síðustu viku. „Já, reglulega“ sögðu
flestir, eða 38% og næstflestir
sögðu „já, af og til“ eða 26%. „Nei,
sleppi því“ sögðu heiðarlegustu
25% svarenda og „veit það ekki“
svöruðu 10%.
Í næstu viku er spurt: Ætlar þú í
göngur eða/og réttir í haust?
Markahrókurinn Sigurður Hrann-
ar Þorsteinsson hefur verið iðinn
við kolann með 2. flokki ÍA í sum-
ar. Hann er markahæstur með 20
mörk í sumar í liði ÍA sem hefur
þegar tryggt sér Íslandsmeistaratit-
ilinn. Sigurður Hrannar er Vestlend-
ingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Fjórir sækja um
stöðu skóla-
meistara FVA
AKRANES: Umsóknarfrest-
ur um embætti skólameistara
Fjölbrautaskóla Vesturlands
á Akranesi rann út 1. sept-
ember síðastliðinn. Mennta-
og menningarmálaráðu-
neyti bárust fjórar umsókn-
ir um embættið. Umsækjend-
ur eru: Ágústa Elín Ingþórs-
dóttir skólameistari, Steinunn
Inga Óttarsdóttir sérfræðing-
ur hjá Félagi framhaldsskóla-
kennara, Steingrímur Bene-
diktsson framhaldsskólakenn-
ari og Þorbjörg Ragnars-
dóttir aðstoðarskólameistari.
„Miðað er við að mennta- og
menningarmálaráðherra skipi
í embættið til fimm ára frá og
með 1. janúar 2020, sbr. 6. gr.
laga um framhaldsskóla, nr.
90/2008 og laga um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkis-
ins, nr. 70/1996,“ segir í til-
kynningu frá ráðuneytinu.
-mm
Rafmagnslaust á
Skarðsströnd
DALABYGGÐ: Vegna
spennaskipta og línuvinnu var
rafmagnslaust á Skarðsströnd
milli kl. 13:00 og 16:00 í gær,
þriðjudaginn 10. september.
Einnig verður rafmagnslaust
á sama tíma í dag og á morg-
un vegna vinnu við spenna og
línur. Mögulega kemur raf-
magn á í stuttan tíma undir
lok straumleysis vegna próf-
unar, að því er fram kemur í
tilkynningu á vef Dalabyggð-
ar. Nánari upplýsingar veit-
ir svæðisvakt Rarik á Vestur-
landi. -kgk
Gæsaskyttur í
vandræðum
DALABYGGÐ: Haft var
samband við Lögregluna á
Vesturlandi um kl. 1:00 að-
fararnótt laugardags vegna
tveggja gæsaveiðimanna í
Haukadal sem ekki höfðu skil-
að sér heim. Kallað var eftir
aðstoð Björgunarsveitarinn-
ar Óskar í Búðardal en gæsa-
skytturnar höfðu síðan sjálfar
samband við lögreglu. Menn-
irnir höfðu farið til veiða á
fjórhjóli og síðan lent í vand-
ræðum þegar hjólið bilaði. Af
þeim sökum skiluðu þeir sér
ekki heim tímanlega. -kgk
Á nöglum
VESTURLAND: Einn öku-
maður var sektaður fyrir notk-
un nagladekkja í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi í
liðinni viku. Naglar voru í öll-
um dekkjum bílsins og hlaut
ökumaðurinn því 80 þús. kr.
sekt, eða 20 þús. kr. fyrir hvert
dekk. Lögregla minnir á að
notkun nagladekkja er óheim-
il frá 15. apríl til 31. október.
Þó er tekið tillit til veðurs og
færðar, en það átti ekki við í
þessu tilfelli þar sem ekið var
innanbæjar í þéttbýli. -kgk
til stendur að lengja fæðingarorlof
foreldra og hyggst Ásmundur Ein-
ar Daðason félags- og barnamála-
ráðherra leggja fram frumvarp til
laga um breytingu á lögum um fæð-
ingar- og foreldraorlof nú á haust-
þingi. Þar verður lagt til að lengdur
verði sameiginlegur réttur foreldra
til fæðingarorlofs úr níu mánuð-
um í tólf í tveimur áföngum á ár-
unum 2020 og 2021. Þannig mun
samanlagður réttur foreldra barna
sem fæðast, eru ættleidd eða tek-
in í varanlegt fóstur 1. janúar 2020
eða síðar, lengjast um einn mánuð
eða úr níu í tíu mánuði. Síðan mun
samanlagður réttur foreldra barna
lengjast um tvo mánuði til við-
bótar og fer þá úr tíu mánuðum í
tólf mánuði. Heildarkostnaður við
lengingu fæðingarorlofs er áætlað-
ur um fjórir milljarðar króna á árs-
grundvelli þegar áhrifin verða að
fullu komin fram.
Mánaðarlegar hámarksgreiðslur
úr Fæðingarorlofssjóði voru lækk-
aðar verulega í kjölfar efnahags-
hrunsins 2008 og fóru lægst niður í
300 þúsund krónur. Frá árinu 2013
hafa hámarksgreiðslur úr sjóðnum
farið hækkandi en í síðustu tveim-
ur fjárlögum hafa verið stigin skref
og eru hámarksgreiðslur nú 600
þúsund krónur á mánuði. Heildar-
kostnaður vegna hærri hámarks-
greiðslna síðustu tveggja ára nem-
ur um sex milljörðum á ársgrund-
velli þegar áhrifin verða að fullu
komin fram.
Foreldrum sem þiggja greiðslur
úr Fæðingarorlofssjóði, og nýta þar
með rétt sinn til fæðingarorlofs,
hefur fjölgað samhliða hækkun-
um á hámarksgreiðslum úr sjóðn-
um. Þannig nýttu 95% foreldra,
sem áttu rétt til fæðingarorlofs
árið 2018, rétt sinn samanborið við
91% foreldra árið 2015. Útlit er
fyrir að þeim foreldrum, sem nýta
rétt sinn til fæðingarorlofs, fjölgi
enn frekar í ár en útgjöld Fæðing-
arorlofssjóðs hækkuðu um 22% á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs bor-
ið saman við sama tímabil í fyrra.
„Að hluta má rekja þá hækkun til
þess að fleiri foreldrar nýta rétt
sinn til fæðingarorlofs en auk þess
eiga fleiri foreldrar rétt á greiðslum
úr Fæðingarorlofssjóði en áður og
færri foreldrar fá greidda fæðingar-
styrki sem greiddir eru beint úr rík-
issjóði. Þá hefur hækkun hámarks-
greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði
bein áhrif á útgjöld sjóðsins auk
þess sem fleiri foreldrar fá greidd-
ar hámarksgreiðslur úr sjóðnum
vegna almennt hærri launa,“ segir
í tilkynningu frá félagsmálaráðu-
neytinu.
mm/ Ljósm. úr safni.
Litlir hópar fólks frá Nýnasista-
samtökunum Norðurvígi voru
í síðustu viku á ferð á nokkrum
stöðum um suðvestan- og vestan-
vert landið. Reykvískir fréttamiðl-
ar greindu frá því að þeir hafi verið
á Lækjartorgi. Þá voru þeir sömu-
leiðis á ferð á Akranesi, í Borgar-
nesi og uppsveitum Borgarfjarðar.
Hópar fólks með fána með merki
Norrænu mótstöðuhreyfingarinn-
ar stilltu sér upp við innganga í
verslanamiðstöðvar, við litla hrifn-
ingu almennings og verslanaeig-
enda. Dæmi voru um að almenn-
ingur treysti sér ekki framhjá fólk-
inu, taldi sér stafa ógn af því. Þá
fóru þessir sömu aðilar einnig um
íbúðahverfi m.a. á Akranesi og
dreifðu áróðri og límdu miða á
ljósastaura. Sömu sögu var að segja
frá stöðum eins og Deildartungu-
hver og Hraunfossum í Borgar-
firði.
Um er að ræða regnhlífarsam-
tök nýnasistahreyfinga á Norður-
löndum, félagasamtök sem varað
er sterklega við sem hryðjuverka-
samtök.
mm
Dilkaslátrun hófst í smáum stíl um
mánaðamótin í Sláturhúsi Vestur-
lands í Brákarey í Borgarnesi. Nú
er beðið eftir að fé heimtist af fjalli
og mun aukinn þungi færast í dilka-
slátrun á næstu dögum. Sem fyrr er
það rekstrarfélagið Sláturhús Vest-
urlands ehf. sem tekur húsið á leigu
en Guðjón Kristjánsson er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. Þá hef-
ur Anna Dröfn Sigurjónsdóttir ver-
Lengja fæðingarorlof í áföngum upp í tólf mánuði
Slátrun er hafin í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey
ið ráðin til að sinna gæða- og mark-
aðsmálum og yfirslátrari verður
sem fyrr Jón Eyjólfsson á Kópa-
reykjum.
Eiríkur Blöndal er formað-
ur stjórnar félagsins. Hann segir
í samtali við Skessuhorn að áfram
verði lögð áhersla á að reka húsið
sem þjónustusláturhús fyrir bænd-
ur sem vinna sjálfir að fullvinnslu
og sölu afurða sinna. „Við leggjum
mikla áherslu á þennan þjónustu-
þátt, til dæmis að geta látið kjötið
hanga eins og þarf og munum að
auki bjóða upp á aukna kjötvinnslu í
húsinu og aðlaga hana að þeim ósk-
um sem bændur hafa þar um. Al-
mennt er stefna okkar sú að aðstoða
bændur við að ná fram þeim styrk-
leikum í vörunni sem þeir sækj-
ast eftir til dæmis við sölu á kjöti
beint frá býli,“ segir Eiríkur. Dilk-
um verður slátrað nú í haust en eft-
ir það segir Eiríkur að stefnt sé að
stórgripa- og hrossaslátrun reglu-
lega allt árið.
Guðjón Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri segir að nú sé ágætur
meðbyr með starfseminni. „Það er
vaxandi áhugi á því að vera með af-
urðir úr héraðinu og margir bænd-
ur eru með fastan viðskiptamanna-
hóp og gera út á ýmsa sérstöðu. Það
er ágætt að þurfa ekki að flytja mat-
inn of langt og þetta er gott fyrir
menninguna og matarupplifunina,
sem og umhverfið líka. Margir veit-
ingastaðir og ekki síður mötuneyti
fyrirtækja vilja vera með staðbund-
ið hráefni af þekktum uppruna. Þar
komum við sterk inn,“ segir Guð-
jón Kristjánsson.
mm
Slátrun í Sláturhúsi Vesturlands. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Meðfylgjandi sýnir hóp framan við verslanamiðstöðina við Smiðjuvelli á Akranesi.
Ljósm. fengin af íbúasíðu Akurnesinga á Facebook, tók Hafþór Páls.
Nýnasistar breiddu út boðskap sinn