Skessuhorn - 11.09.2019, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPtEMBER 2019 7
Lenging Norðurgarðs,
stálþilsrekstur 2019
Grundarfjarðarhöfn mun í lok vikunnar
auglýsa eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir þess eru:
Gerð á 90m löngum bermugarði.
Rekstur 122 stálþilsplatna, steypa akkerisplötur,
uppsetning staga og festinga.
Jarðvinna aftan við stálþil.
Steypa kantbita með pollum, uppsetningu á stigum
og fríholtum.
Nánari upplýsingar um verkið, s.s. um verktíma og til-
boðsfrest, verða gefnar í auglýsingu sem birtast mun
síðar í þessari viku á útboðsvef hins opinbera, á vefsíðu
Vegagerðarinnar – vegagerdin.is og á vefsíðu Grundar-
fjarðarbæjar – grundarfjordur.is
Hafnarstjóri Grundarfjarðarhafnar
Grundarfjarðarhöfn
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Í sumar bauð Borgarbyggð út
gatnagerð í Bjargslandi í Borgar-
nesi. tilboð voru opnuð 22. ágúst
síðastliðinn. Eitt tilboð barst og var
ákveðið að ganga til samninga við
Borgarverk ehf. á forsendum þess.
Framkvæmdirnar hefjast í haust og
áætlað að þeim verði lokið 1. des-
ember næstkomandi.
mm
Matvælastofnun varar við neyslu á
kjúklingum merktum vörumerkj-
um Holta, Kjörfugls eða Krón-
unnar með rekjanleikanúmerunum
003-19-31-201 og 001-19-31-302.
Fyrirtækið Reykjagarður ehf. hefur
stöðvað dreifingu og hafið innköllun
eftir greiningu salmonellu í tveimur
sláturhópum í innra eftirliti fyrirtæk-
isins.
Innköllunin á eingöngu við um
eftirfarandi framleiðslulotur:
Vöruheiti: Holta, Kjörfugl eða •
Krónan
R e k j a n l e i k a n ú m -•
er: 003-19-31-201 og
001-19-31-302
Dreifing: (Birtur verður dreif-•
ingarlisti um leið og hann berst
Matvælastofnun).
Neytendur sem hafa keypt kjúk-
linga með þessu rekjanleikanúmeri
eru beðnir um að skila vörunni í við-
komandi verslun eða beint til Reykja-
garðs að Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
tekið skal fram að ef áprentuðum
leiðbeiningum á umbúðum er fylgt
og kjúklingurinn steiktur í gegn þá er
hann hættulaus neytendum. tryggja
þarf að blóðvökvi komist ekki í aðra
matvöru.
Ekki liggur fyrir grunur um að
aðrar afurðir hjá Reykjagarði séu
mengaðar af salmonellu.
-fréttatilkynning
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
kynnti þingsályktunartillögu um
stefnu ríkisins í málefnum sveitar-
félaga á aukalandsþingi Sambands
íslenskra sveitarfélaga sem hald-
ið var í síðustu viku. Skessuhorn
fjallaði nýverið um þessar tillögur.
Sigurður Ingi sagði á þinginu það
vera ánægjulegt að í fyrsta skipti
hafi nú litið dagsins ljós heildar-
stefna í málefnum sveitarfélaga.
Í lok landsþings var samþykkt til-
laga stjórnar Sambands íslenskra
sveitarfélaga að mæla með því að
Alþingi samþykki þingsályktun-
artillögu um stefnumótandi áætl-
un ríkisins í málefnum sveitarfé-
laga fyrir árin 2019-2033 og að-
gerðaáætlun fyrir árin 2019-2023.
Í samþykkt þingsins segir: „Í til-
lögunni er gert ráð fyrir veglegum
fjárhagslegum stuðningi Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga við sameiningar
sveitarfélaga og því er mikilvægt að
ríkissjóður veiti sérstök fjárframlög
til sjóðsins til að fjármagna þann
stuðning.“
Í þingsályktunartillögunni er
áhersla lögð á sjálfbærni sveitar-
félaga og lýðræðislega starfsemi
þeirra, sjálfsstjórn sveitarfélaga og
ábyrgð þeirra og loks að tryggð
verði sem jöfnust réttindi og að-
gengi íbúa að þjónustu. Stefnu-
mörkuninni fylgir aðgerðaráætlun
til fimm ára og tilgreindar eru ell-
efu aðgerðir sem vinna ber að til að
ná settum markmiðum. Þá er lagt
til að lágmarksfjöldi íbúa í næstu
sveitarstjórnarkosningum verði
250 en þúsund að lágmarki í kosn-
ingunum 2026.
mm
Gatnagerð í Bjargslandi
Frá undirskrift samnings. F.v. Óskar Sigvaldason, framkvæmdastjóri Borgarverks,
Gísli Karel Halldórsson frá Verkís og Gunnlaugur Júlíusson sveitarstjóri. Ljósm.
Borgarbyggð.
Grunur um salmonellu í kjúklingi
Sveitarstjórnarfólk fylgjandi
tillögu ráðherra