Skessuhorn - 11.09.2019, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPtEMBER 201910
Þrír menn hafa verið ákærðir fyr-
ir að framleiða átta og hálft kíló af
amfetamíni í sumarbústað í Borg-
arfirði. tveir þeirra hafa setið af sér
þunga dóma áður fyrir fíkniefna-
smygl í Pólstjörnumálinu svokall-
aða. Mennirnir þrír eru sömuleið-
is ákærðir fyrir stórfellda kannabis-
ræktun í Þykkvabæ, ásamt þremur
öðrum. RÚV greindi fyrst frá, en
málið var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gærmorgun.
Ákæruvaldið hefur krafist þess
að fjölmörg tæki og tól sem notuð
voru við amfetamínframleiðsluna
og kannabisræktunina verði gerð
upptæk. Þar á meðal eru gaskút-
ar, lampar og viftur í tugatali, ofn,
tölvur, leisermælitæki, mælikönnur,
sýrustigsmælistrimlar, öryggisgler-
augu og margt fleira. Þá hefur þess
einnig verið krafist að tvær millj-
ónir í reiðufé verið gerðar upptæk-
ar, sem og toyota Corolla-bifreið.
Fyrr í mánuðinum var einnig
greint frá því að lögregla rannsak-
aði meint peningaþvætti í tengslum
við amfetamínframleiðsluna og
kannabisræktunina. Fé og eignir
fyrir tugi milljóna króna hafi verið
kyrrsett og haldlagt. Haft var eft-
ir Karli Steinari Valssyni, yfirlög-
regluþjóni hjá Lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu, að skýra þyrfti
ansi marga peningagjörninga sem
hefðu átt sér stað í hópi hinna
ákærðu og aðeins út fyrir hann
líka. „Mér reiknast svona til í fljótu
bragði að við séum með ýmis verð-
mæti, húseignir, bíla, ýmsa fjár-
muni, lausafé og fleira, svona eitt-
hvað, það er nú farið að slá upp í
100 milljónir held ég, sem eru með
mismunandi þvingunarþætti á sér,
eftir því hvers eðlis hlutirnir eru,“
sagði Karl Steinar í samtali við
fréttastofu RÚV. Hann sagði enn
fremur að peningaþvættisrann-
sóknin hefði verið tiltölulega flók-
in og margir hafi komið að henni,
en Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu annast rannsóknina ásamt lög-
regluembættunum á Suðurlandi og
Vesturlandi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Síðastliðinn laugardag var upplest-
ur í Vatnasafninu í Stykkishólmi.
Bergþóra Snæbjörnsdóttir hóf dag-
skrána með upplestri en að hon-
um loknum hélt Kristín Anna tón-
leika með stuðningi frá Ragnari
Kjartanssyni. Bergþóra las upp úr
nýrri skáldsögu sinni sem kemur út
í haust, en hún vann að ritun bók-
arinnar meðan hún dvaldi í rithöf-
undaíbúð Vatnasafnsins árið 2018.
Mun þetta verða fjórða bókin sem
skrifuð er í listamannaíbúðinni eft-
ir að hún var opnuð.
Skáldsagan Svínshöfuð er fjöl-
skyldusaga sem fjallar um hvern-
ig eldri maður frá Breiðafirði fær
viðurnefnið Svínshöfuð, kínversk
mæðgin sem flytja í Stykkishólm
um miðjan tíunda áratuginn, kon-
ur sem þola ekki að vera mæður og
sársaukann sem liggur kynslóða á
milli eins og strengur. Sagan flétt-
ast frá upphafi seinni heimsstyrj-
aldarinnar að nútímanum með við-
komu á eyju í Breiðafirði, suður-
hluta Kína og útverfi í Kópavogi.
sá
Framlög á hvern framhaldsskóla-
nemenda í fullu námi hækka úr
1.732.000 kr. árið 2019 í 1.819.800
kr. árið 2020. Framlög til fram-
haldsskóla hafa hækkað töluvert
undanfarin ár en sú hækkun mun
halda sér samkvæmt fjármálaáætl-
un fyrir árin 2020-2024. Frá árinu
2017 hafa heildarframlög til fram-
haldsskólastigsins aukist um 1,3
milljarða kr. að raunvirði. Fjár-
lagafrumvarpið sem kynnt var síð-
astliðinn föstudag gerir ráð fyrir
framlögum sem nema 36,3 millj-
örðum kr. til málefnasviðs fram-
haldsskólastigsins en því tilheyra
auk skólanna sjálfra einnig fram-
lög til tónlistarfræðslu, vinnustað-
anáms og jöfnunar námskostnaðar.
Auknir fjármunir sem runnið
hafa til skólanna að undanförnu
gera þeim kleift að efla sitt skóla-
starf enn frekar, meðal annars með
því að bæta námsframboð, styrkja
stoðþjónustu og endurnýja búnað
og kennslutæki. Meðal áherslu-
verkefna á næsta ári er að efla iðn-,
starfs- og verknám. „Forgangs-
raðað er í þágu slíks náms í nýju
reiknilíkani framhaldsskólanna um
172 milljónir kr. á komandi ári. Þá
verður unnið að tillögu um fram-
kvæmd þingsályktunar um aðgengi
að stafrænum smiðjum og farið í
mat á endurskipulagningu náms-
tíma til stúdentsprófs. Áfram er
unnið að því fjölga nemendum sem
útskrifast úr framhaldsskóla á til-
settum tíma með því að kortleggja
betur nemendur í brotthvarfshættu
og innleiða reglubundnar mæl-
ingar, sérstök áhersla er þar lögð
á nemendur með annað móður-
mál en íslensku og nemendur á
landsbyggðinni. Þá hefur verið
settur á laggirnar starfshópur sem
meta mun þörf á heimavist á höf-
uðborgarsvæðinu fyrir framhalds-
skólanema,“ segir í kynningu frá
menntamálaráðuneytinu.
mm
Umhverfisvaktin við Hvalfjörð
hefur ítrekað vakið athygli sveitar-
stjórnar Hvalfjarðarsveitar á haga-
beit bæði kynbótahrossa og úti-
gangshrossa á þynningarsvæði fyrir
flúor og brennistein við Grundar-
tanga (í svokölluðu Fellsaxlarlandi).
Í sumar hafa verið þar allmargar
kynbótahryssur með folöld, en þau
eru sérlega viðkvæm fyrir áhrifum
skaðlegum efna í fóðri. Sama er
að segja um fóstrin sem hryssurn-
ar bera. Umrætt land við Grundar-
tanga er í eigu Hvalfjaraðarsveitar,
sem hefur skipulagsvald yfir svæð-
inu og hefur tekið þátt í að skil-
greina það sem þynningarsvæði.
Um árabil hefur Hrossaræktar-
samband Vesturlands haft afnot af
svæðinu ásamt fleirum. Þar hafa
verið stóðhestar, hryssur og folöld
að sumarlagi. Einnig hafa einstak-
lingar fengið að nota landið til úti-
göngu fyrir hross á vetrum.
Þynningarsvæði er landsvæði
sem afmarkað er við mengandi
iðjuver, eftir útreikningum á álagi
skaðlegra efna frá starfsemi iðjuver-
anna. Landnýting í formi heyskap-
ar eða beitar búfjár er ekki heimil
á slíkum svæðum vegna þess að þar
fer mengun yfir mörk sem talin eru
skaðleg heilsu dýra og manna. Bú-
seta er heldur ekki heimil þar.
Meðfylgjandi mynd sýnir hóp
af kynbótahrossum sem verið hafa
á þynningarsvæðinu við Grundar-
tanga í sumar.
Sveitarfélagið hefur á engan hátt
brugðist við ítrekuðum ábending-
um Umhverfisvaktarinnar. Með
því að hundsa málið er sveitarstjórn
að afrækja skyldur sínar gagnvart
hrossunum og eigendum þeirra
sem hugsanlega hafa ekki hugmynd
um hvað er í gangi við Grundar-
tanga.
Fyrir hönd Umhverfisvaktarinnar
við Hvalfjörð,
Ragnheiður Þorgrímsdóttir
formaður
Svipmynd úr FSN í Grundarfirði. Ljósm. úr safni/tfk.
Framlög til framhaldsskólanna
verða aukin
Ákærðir fyrir amfetamínfram-
leiðslu í Borgarfirði
Kristín Anna og Ragnar Kjartansson sungu.
Bókakynning í Vatna-
safninu í Stykkishólmi
Bergþóra les upp úr óútkominni bók sinni.
Frá Umhverfisvaktinni við Hvalfjörð:
Folöld, hryssur og stóðhestar á þynningarsvæði