Skessuhorn - 11.09.2019, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPtEMBER 201912
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, rit-
ari Sjálfstæðisflokksins og þing-
maður Reykvíkinga, er nýr dóms-
málaráðherra í ríkisstjórn Katrín-
ar Jakobsdóttur. Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, tilkynnti þessa ákvörðun sína á
fimmtudaginn og var Áslaug Arna
svo sett í embætti á ríkisráðsfundi
á föstudag. „Áslaug er einn efnileg-
asti stjórnmálamaður Íslands. Hún
hefur komið af miklum krafti inn
í þingið og stýrt af öryggi og festu
stórri þingnefnd,“ sagði Bjarni þeg-
ar hann tilkynnti ákvörðun sína um
val á nýjum ráðherra. Eins og kunn-
ugt er sagði Sigríður A Andersen af
sér embætti dómsmálaráðherra síð-
astliðið vor og hefur Þórdís Kol-
brún Reykfjörð Gylfadóttir stýrt
ráðuneytinu síðan, samhliða því að
gegna starfi iðnaðar-, nýsköpunar-
og ferðamálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdótt-
ir er lögfræðimenntuð, fædd árið
1990. Hún settist fyrst á Alþingi
2016 og hefur gegnt formennsku
í hinum ýmsu fastanefndum Al-
þingis og formennsku í alþjóða-
deildum þingsins. Nú síðast hefur
hún gegnt stöðu formanns utanrík-
ismálanefndar Alþingis og staðið í
ströngu, meðal annars við innleið-
ingu þriðja orkupakkans á þinginu.
Áslaug Arna er næstyngsti ráðherra
í sögu lýðveldisins, einungis Ey-
steinn Jónsson var yngri, 27 ára,
þegar hann fyrst tók við sem ráð-
herra.
mm
Í byrjun júlímánaðar tók Helga
Rósa Pálsdóttir til starfa sem nýr
verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Borg-
firðinga við Egilsgötu í Borgarnesi.
Helga Rósa er fædd í Reykjavík en
ólst upp frá átta ára aldri í Neskaup-
stað þar sem hún bjó til ársins 2009
þegar hún flutti í Skagafjörðinn og
fór til náms við Háskólann á Hól-
um. Eftir nám fékk hún starf hjá
Kaupfélagi Skagfirðingar í versl-
uninni Eyrinni, við landbúnaðar-
deild, þar sem hún var í sex ár. Hún
fór síðastliðið haust í nám við Há-
skólann á Bifröst í háskólagátt með
áherslu á verslun og þjónustu. „Ég
hef gert ansi mikið í gegnum tíðina
en síðasta starfið mitt í Neskaupstað
áður en ég flutti í Skagafjörðinn var
hjá Fjarðabyggð við þjónustuíbúðir
fatlaðra. Ég hef einnig tekið að mér
reiðkennslu og tamningar hrossa,“
segir Helga Rósa þegar Skessuhorn
heyrði í henni.
Jákvæð fyrir Borgarnesi
Aðspurð segist Helga Rósa spennt
fyrir komandi tímum. „Við höfum
fengið mjög góðar móttökur hér í
Borgarnesi og ég er mjög jákvæð
fyrir framhaldinu hér. Borgarnes
er skemmtilegt bæjarfélag og hér er
margt spennandi í gangi. Þetta er
ekkert ósvipað því að búa á Sauðár-
króki en aðeins nær Reykjavík. Ég
vildi komast nær Reykjavík en samt
ekki búa alveg í sjálfri borginni,“
segir Helga Rósa en með henni í
Borgarnes flutti dóttir hennar sem
byrjaði í 8. bekk í Grunnskólanum
í Borgarnesi núna í ágúst. „Það er
sérstaklega ánægjulegt hversu vel
var tekið á móti henni í skólanum.
Það er ekki auðvelt að flytja í nýjan
skóla á þessum aldri en krakkarnir í
þessum bekk eru svo flottir og hún
var fljót að eignast vini sem hún er
búin að vera með síðan.“
Hestavörudeild í KB
Helga Rósa segist ekki hafa í huga
að fara í stórtækar breytingar í
verslun KB. „Búðin var stækkuð í
fyrra og við erum bara að vinna í
að koma okkur fyrir í stærra rými
og breyta uppröðun og gera allt
aðgengilegra. Einu breytingarnar
sem eru framundan snúa að auknu
vöruúrvali og þá með áherslu á að
bændur og bæjarbúar hér geti nálg-
ast þær vörur sem þeir þurfa eins
og verið hefur,“ segir Helga Rósa,
en ný hestavörudeild er nú opnuð
í kaupfélaginu. Þar er að finna allar
helstu vörur sem til þarf fyrir hest-
inn; reiðtygi, snyrtivörur, skeifur
og fleira. „Við erum ekki enn með
mikið af reiðfötum en það kemur
kannski seinna. Hugsunin er fyrst
og fremst að hér geti hestamenn
nálgast það sem þeir þurfa og séu
því ekki að leita langt yfir skammt,
enda erum við hér bara rétt handan
við hornið frá hesthúsahverfinu,“
segir Helga Rósa. „Með þessari
stækkun getum við líka aukið úr-
val í því sem við höfum verið með
og það eru allir alltaf velkomnir í
Kaupfélag Borgfirðinga að sjá hvað
við höfum upp á að bjóða,“ segir
hún að endingu.
arg
Eftir að tók að rigna í landshlut-
anum hafa laxveiðimenn víða orð-
ið varir við fisk. Síðustu veiðimenn
sem voru í Norðurá settu í laxa og
komu þannig heildarveiði sum-
arsins yfir 500 laxa. Áin var býsna
vatnsmikil um helgina þegar veiði
var hætt. Þverá og Kjarará er með
heildarveiði tæpa þúsund laxa, en
907 voru skráðir í bækurnar 4. sept-
ember síðastliðinn. Haffjarðará er
líklega að skila næstbestri sumar-
veiði vestlensku ánna.
Gott í sjóbirtingnum
Sjóbirtingsveiðin er nú að hefjast
á fullu og birtingurinn er mættur.
„Þetta gekk vel hjá okkur í Leirá.
Við kíktum um helgina og sett-
um í marga fiska,“ sagði Harpa
Hlín Þórðardóttir sem finnst fátt
skemmtilegra en að veiða fisk. „Áin
var í flóði og var að hreinsa sig þeg-
ar við vorum að mæta á staðinn. Við
misstum helling af fiski, en lönduð-
um tíu birtingum og fengum auk
þess einn lax. Þetta var bara frábær
veiði hjá okkur,“ sagði Harpa Hlín
um veiðina í Leirá.
Veiddi fyrst í
Grímsá 1983
„Það gengur bara vel í Grímsá og
það er fiskur víða um ána,“ sagði
Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxa-
flóahafna, en hann var við veiðar í
Grímsá í Borgarfirði. Áin hefur nú
gefið 510 laxa. Eftir að fór að rigna
hefur veiðin verulega tekið við sér.
„Ég og veiðifélaginn vorum mest í
því að missa laxa í dag, en mér sýn-
ist tíu laxar hafa náðst. Alls náð-
ust fimmtán laxar á þremur vökt-
um. Það var rólegt neðan til í ánni
en mökkur af fiski í efri hlutanum.
Nánast fiskur á hverjum stað. Það
er alltaf gaman að veiða í Grímsá.
Ég hef veitt hérna nokkrum sinn-
um og kom fyrst hingað í Lund-
arreykjadalinn 1983,“ sagði Gísli
enn fremur. Í næsta nágrenni við
Grímsá er Flókadalsá sem nú hefur
gefið 185 laxa. gb
Helga Rósa í verslun KB við Egilsholt í Borgarnesi. Ljósm. glh.
Helga Rósa er nýr verslunarstjóri KB
Gísli Gíslason með flottan hæng úr Grímsá, sem var sleppt aftur og syndir áfram
um hylji árinnar. Fiskurinn tók í Tjarnarbrekkum og agnið var Sunray.
Veiðin tók vel við sér
eftir rigningarnar
Flottur sjóbirtingurinn kominn á land úr Leirá. Ljósm. Stefán S.
Áslaug Arna tekur við
sem dómsmálaráðherra