Skessuhorn - 11.09.2019, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPtEMBER 2019 13
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Verkefnastjóri
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) óska eftir að ráða verkefnastjóra.
Viðkomandi starfar að verkefnum á öllu Vesturlandi.
Starfssvið:
• Ráðgjöf við fyrirtæki, einstaklinga og
sveitarfélög varðandi menningarmál
• Umsjón með styrkveitingum Uppbyggingarsjóðs
Vesturlands til menningarverkefna
• Vinna við áhersluverkefni sóknaráætlunar
Vesturlands og önnur byggðaþróunarverkefni
• Eftirfylgni með velferðarstefnu Vesturlands
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Þekking á menningarlífi og sveitarfélögum
á Vesturlandi er mikils virði
• Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
• Frumkvæði, fagmennska og geta til að vinna
sjálfstætt
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Góð tölvukunnátta
Upplýsingar veita:
Geirlaug Jóhannsdóttir
geirlaug@hagvangur.is
Gyða Kristjánsdóttir
gyda@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2019.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá
og kynningarbréf.
Katrín Jóna Ólafsdóttir er uppal-
in í Stykkishólmi en flutti á Akra-
nes þegar hún var í fimmta bekk
grunnskóla. Eftir nám þar fór hún
í Fjölbrautaskóla Vesturlands þar
sem hún fór á félagsfræðibraut
en fann fljótlega að bóknám ætti
ekki við hana. „Ég skoðaði þá iðn-
nám og ætlaði að fara í vélvirkjun
og tók grunninn fyrir það á Akra-
nesi. Mér fannst það ekki henta
mér heldur svo ég fór í bílamálun
í Borgarholtsskóla,“ segir Katrín
Jóna sem er í dag með sveinspróf
í bílamálun og vinnur hjá McLa-
ren á Englandi. Hjá McLaren
eru, eins og bílaáhugafólk þekk-
ir, framleiddir sportbílar. Aðspurð
segist hún þó ekki alltaf hafa haft
áhuga á bílum. „Áhuginn kom eig-
inlega ekki fyrr en ég var að verða
17 ára en fyrir það hafði ég eig-
inlega ekkert spáð í bílum,“ segir
hún og hlær.
Ánægð hjá McLaren
Katrín Jóna segist hafa átt erfitt
með andrúmsloftið á síðasta vinnu-
stað hér á Íslandi og því ákveð-
ið að leita að vinnu erlendis og þá
horfði hún helst til Englands og
Danmerkur. „Það var komið frek-
ar illa fram við mig í vinnunni á Ís-
landi og síðustu mánuðina fékk ég
ekkert að mála. Ég sá auglýst eftir
fólki hér hjá McLaren og ég ákvað
að sækja um og kom svo hingað í
sumar með sex mánaða samning,“
segir Katrín Jóna ánægð en hún
stefnir á að koma aftur heim í des-
ember. „Mér líður mjög vel hér og
allir koma vel fram við mig. Það er
svolítil karlamenning í svona störf-
um en ég hef ekki fundið það hér,
þó við séum ekki margar stelpur.
Þetta er rosalega skemmtileg vinna
og það er gaman að fá að sjá nýja
bíla sem engin hefur séð og fá að
taka þátt í að framleiða eitthvað al-
veg glænýtt. Þetta starf hefur kennt
mér helling.“ En hvað er það sem
Katrín Jóna gerir hjá McLaren?
„Það eru tvö málningarverkstæði
hér á svæðinu, McLaren Produc-
tion Center og McLaren techno-
logy Center, MPC er stærra og þar
eru bílarnir málaðir á færiböndum.
MtC er minna og þar eru mál-
uð minni stykki á bílana, hurð-
ar, húdd og fleira og ég vinn þar.
Allt sem er gert hér, hvort sem það
er málning eða samsetning á bíl-
um, er handgert, engin vélmenni
sem gera neitt eins og hjá mörgum
öðrum bílaframleiðendum,“ svar-
ar Katrín Jóna og bætir því við að
hún er mest að mála hurðar á Spi-
der bílana og að grunna eða glæra
gluggaramma. „Það er líka gaman
að segja frá því að þeir sem vinna
hér muna ekki eftir neinum öðr-
um en mér sem hafa fengið að mála
fyrsta daginn,“ segir hún.
Má ekki hafa síma í
vinnusalnum
Mjög strangar kröfur eru gerðar á
starfsmenn McLaren um að upp-
ljóstra engu um bílana sem þar eru
framleiddir og því er takmarkað sem
Katrín Jóna má segja frá vinnunni.
„Það er listi yfir það sem við meg-
um ekki segja og við þurfum bara
að passa okkur vel. Símar eru líka
bannaðir í vinnusölum og það má
ekki taka myndir inni í bygging-
unni nema gæta vel að snúa mynda-
vélinni frá öllu því sem er unnið að.
Fyrst fannst mér pínu sérstakt að
geta ekki haft símann á mér en svo
finnst mér þetta bara mjög fínt. Ég
næ að einbeita mér mikið betur að
því sem ég er að gera og það er bara
gott að vera ekki með símann,“ seg-
ir hún kát. Spurð hvað taki við þeg-
ar hún kemur heim í desember seg-
ist hún ekki vera farin að hugsa svo
langt. „Ég er ekki búin að ákveða
neitt,“ segir hún.
arg
Katrín Jóna vinnur sem bílamálari fyrir
sportbílaframleiðandann McLaren
Katrín Jóna í málaragallanum. Ljósm. aðsend