Skessuhorn - 11.09.2019, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPtEMBER 2019 17
Á vegum Þjóðgarðsins Snæfells-
jökuls hefur í sumar verið unnið
við stækkun og endurbætur bíla-
stæða við Gestastofuna á Malar-
rifi. Verkinu er nú lokið eins og
sjá má á meðfylgjandi mynd og
búið að mála línur fyrir bílastæði.
Verkefni þetta hlaut meðal annars
styrk frá Framkvæmdasjóði ferða-
mannastaða. Umferð á fjölfarna
ferðamannastaði og náttúrperslur á
Snæfellsnesi hefur aukist gríðarlega
í sumar. til marks um gestafjöld-
ann var met slegið í komu ferða-
manna í Gestastofuna á Malarrifi á
mánudegi einum síðla í júlí, þegar
1.353 gestir voru taldir sama dag-
inn. Þessi framkvæmd var því orðin
verulega aðkallandi.
mm/ Ljósm. Snæfellsbær
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
ræsti fyrr í vikunni nýja uppsjáv-
arverksmiðju fyrir rússneska út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtæk-
ið Gidrostroy á Eastern Econo-
mic Forum í Vladivostok. Íslensku
tæknifyrirtækin Skaginn 3X, Frost
og Rafeyri höfðu veg og vanda að
uppsetningu tæknibúnaðar í verk-
smiðjuna, sem staðsett er á Shi-
kotan-eyju í Kúríleyjaklasanum
við austurströnd Rússlands. Fyr-
irtækin undirrituðu samninginn
um uppsetninguna á síðasta ári og
virði samningsins hleypur á millj-
örðum íslenskra króna.
Nýja verksmiðjan er búin heild-
arlausnum frá fyrirtækjunum
þremur til að flokka, pakka og
frysta 900 tonn af uppsjávarfiski
á sólarhring. „Við hjá Skaganum
3X erum einstaklega stolt af verk-
smiðjunni og þakklát fyrir tæki-
færið til þess að taka þátt í nútíma-
væðingu rússneska sjávarútvegs-
ins,“ segir Pétur Jakob Péturs-
son, sölustjóri Skagans 3X í Rúss-
landi. „Íslenskur sjávarútvegur er
sjálfbær og einn sá tæknivæddasti
í veröldinni. Okkur hefur tekist
að einblína á gæði vörunnar og
þar af leiðandi fengið hærra verð
fyrir minni heildarafla. tækni og
sjálfvirkni hefur spilað stórt hlut-
verk og stuðlað að eftirspurn eft-
ir íslenskri þekkingu og lausnum,“
segir Pétur Jakob.
Skaginn 3X hefur eins og kunn-
ugt er náð miklum árangri í heild-
arlausnum við vinnslu á uppsjáv-
arfiski. Fyrirtækið hannaði og setti
meðal annars upp búnað með af-
kastagetu allt að 1.300 tonn á
sólarhring fyrir færeyska félagið
Varðin Pelagic. Færeyska verk-
smiðjan er sú stærsta sinnar teg-
undar í heiminum og er staðsett
á Suðurey. Frost og Rafeyri komu
einnig að verkefninu fyrir Varðin
Pelagic.
Skaginn 3X hefur nýverið lokið
smíði á uppsjávarverksmiðju um
borð í verksmiðjuskip fyrir evr-
ópska útgerðarfyrirtækið France
Pelagique, sem byggir á þeirri
tækni sem Skaginn 3X hefur þró-
að fyrir landvinnslur á undanförn-
um árum. Eastern Economic For-
um er vettvangur Rússa til þess að
kynna landið og stuðla að erlendri
fjárfestingu. Eigandi Gidrostroy-
sjávarútvegsfyrirtækisins Alex-
ander Verkhovskiy var viðstaddur
þegar Pútín ræsti verksmiðjuna.
mm
Rúmgóð bílastæði tekin í
notkun á Malarrifi
Pétur Jakob Pétursson, sölustjóri Skagans 3X.
Rússlandsforseti ræsti íslenska
hátækniverksmiðju
Pútín vígði verksmiðjuna formlega.
Horft yfir hina nýju verksmiðju.
Svipmynd frá kynningarfundi um smávirkjanir sem haldinn var á Hótel Húsafelli.
Bergþórssyni að ekki væri óalgengt
að kostnaður væri kominn yfir tíu
milljónir króna áður en nokkuð
væri byrjað að framkvæma. Því væri
það ekki á færi allra að virkja nema
kalla til liðs við sig fagaðila sem þá
tækju jafnvel einnig beinan þátt í
verkefninu. „Skipulagsmál og leyf-
isveitingar kallar á mjög kostnaðar-
samt ferli. Jafnvel er verið að gera
kröfur um fuglatalningu á virkj-
anasvæðinu og annað sem tefur að
hægt sé að hefjast handa.“ Hann
benti á að miklu meiri rannsókna-
og upplýsingaskylda lægi á herð-
um smávirkjanabænda en í öðrum
verkefnum. tók hann sem dæmi að
kallað væri eftir ítarlegri upplýsing-
um í málefni virkjunar en þurft hafi
að afla við skipulag 300 húsa sum-
arbústaðahverfis, hótelbyggingar,
tilheyrandi vatnsveitum og ýmsu
sem Húsfellingar hafa einnig staðið
í á liðnum árum.
Umhverfisvænasta
orkan
Arnar Bergþórsson fjallaði einn-
ig um tengingu smávirkjana við
dreifikerfi Landsnets. Reglugerð
um það segir hann hafa verið skrif-
uð af fulltrúum dreififyrirtækja og
er í ýmsu óhagfelld smávirkjunum.
Þá benti hann á að oft væri ábati
af lítilli virkjun étinn upp í dreifi-
kerfinu. Því yrði að breyta. „Hins
vegar er það staðreynd að raforku-
kerfið er fulllestað í dag. Smávirkj-
anir hjálpa því kerfinu í öllum til-
fellum, minni töp verða í dreifikerf-
inu og rekstur veitukerfisins batn-
ar eftir því sem fleiri tengjast inn á
dreifikerfið. Það verður því að ein-
falda allt regluverk í kerfinu, fjar-
lægja hindranir og hvetja sem flesta
til að virkja þar sem það er talið
hagkvæmt. Staðreyndin er sú að
smávirkjanir eru umhverfisvænasta
orka sem hægt er að framleiða og
þar að auki er ekki um óafturkræfar
framkvæmdir að ræða.“
Þingmennirnir Haraldur Bene-
diktsson, Halla Signý Kristjáns-
dóttir og Guðjón S Brjánsson sátu
þessa kynningu smávirkjanafólks.
Ákveðið var í lok fundar að Arnar
Bergþórsson og fleiri fulltrúar úr
smávirkjanageiranum fengju fund
í atvinnuveganefnd Alþingis til að
kynna sjónarmið sín.
Saga um sjálfbærni
Undir lok fundar sagði Haraldur
Benediktsson sögu af skólabróður
sínum, bónda austur í Mýrdal, sem
tekur umhverfisþáttinn alla leið,
ef svo má segja. „Jónas Erlends-
son bóndi í Fagradal virkjaði bæj-
arlækinn sinn. Eftir að vatnið kem-
ur út úr túrbínunni er það svo súr-
efnisríkt að hann byggði fiskeldi
og ræktar silung sem hann verkar
og selur í búðir. Það sem til fellur
af úrgangi frá fiskeldinu er borið
á túnin og nýtist því við sauðfjár-
ræktina á bænum. Svo prjónar kon-
an hans úr lopanum og sjálf aka þau
um á rafdrifnum bíl.“ mm
Birkir Þór Guðmundsson hjá Orkuveri ehf. flutti inn tækjabúnað í Urðarfells-
virkjun.
Í stöðvarhúsi Urðarfellsvirkjunar. Þarna sést hvar vatnið kemur inn, knýr túrbínu
sem svo aftur knýr rafalinn.