Skessuhorn - 11.09.2019, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPtEMBER 2019 19
Vísnahorn
Það fer víst ekki hjá því
að haustið nálgast okk-
ur um einn dag í einu.
Hvernig það fer höndum
eða veðrum um okkur er
kannske óljósara en allt fer það þó einhvern
veginn. Pétur Stefánsson orti haustvísu á dög-
unum og hafði við orð að láta hana duga þetta
haustið hvað sem verður um efndirnar:
Haustið gægist hingað inn,
hrynja blóm og deyja.
Svo er ekkert maður minn
meir um það að segja.
Þó úrkoma hafi verið með minnsta móti í
sumar hér á Vesturlandi er ekki alveg sama
uppi á teningnum á Norðausturlandi. Lang-
nesingar hafa átt í erfiðleikum með heyöfl-
un vegna úrkomu og vafalaust fleiri. Ágúst á
Sauðanesi orti:
Á oss rignir endalaust
undir gráu skýi
en það verður gleymt og grafið í haust
á gangnafylliríi.
Eitthvert sinn fór Blindrafélagið í hópferð
um Borgarfjörð og var Flosi Ólafsson feng-
inn til að vera hópnum til leiðsagnar. Sigfúsi
Jónssyni þótti þetta athyglisvert:
Maður fyndinn fer með hjörð,
fagra mynd upp dregur,
sýnir blindum Borgarfjörð
bóndinn yndislegur.
Sigurður Jónsson á Þaravöllum sem var
ekki síður þekktur í uppsveitum undir nafninu
„Siggi skytta“ var mikill unnandi heiðanna og
gæti hafa saknað þeirra eftir að hann fluttist
suður fyrir Akrafjallið. Allavega orti hann á
efri árum:
Þó hér skyggi útsýn á,
oft og sárt til finni,
mín ég fögur fagna að sjá
fjöll, í eilífðinni.
Sigurður var afkastamikil refaskytta á sinni
tíð og kvað eitt sinn á heimleið af grenjum:
Þó mér fyndist ferðin rýr
fjalls í breiða, salnum,
kem ég enn með átta dýr
onaf Kjarardalnum.
Þessa vísu kvað Sigurður við Guðrúnu á
Fögruvöllum sem þá var búin að vera blind
í mörg ár:
Þó um stund hér sýnist svart
og sorgarél aðdregin,
þú mátt vita, að verður bjart
á veginum hinum megin.
Einhver miságætur maður sá ástæðu til að
yrkja þessa um álíka miságætan búðarmann
sem hann taldi að hefði gefið sér rangt til
baka. Sá hinn umræddi búðarþjónn var þó al-
mennt afar þægilegur og elskulegur í viðmóti
öllu:
Heilsar gestum hýr á brá,
hlær við flestum glaður,
einn hinn bezti á að sjá,
og hinn versti maður.
Þetta er nefnilega svo misjafnt hvaða hegð-
un er álitin æskileg og hver ekki. Veiðisæll
skipstjóri kom slunkfullur heim til frúarinnar
og hlaut þar kaldar kveðjur og skammir fyrir
drykkjuskapinn. Eins og bæði hann sjálfur og
fylgdarmaður hans álitu hann þó skemmtileg-
an á nákvæmlega því augnabliki en fylgdar-
manninum varð að orði:
Engin brjóta boðorð má.
Bönn á ótal sviðum.
Líka kvóti orðinn á
innanfóta miðum.
Nú fara að nálgast göngur og réttir með
öllu sem þar tilheyrir. Eitt sinn bar svo við í
leitum að smalamenn komust ekki af stað úr
skála vegna þoku. Var þá lítið annað að gera
en dunda við að éta nesti sitt. Maður bauð
Bergþóri í Fljótstungu ástarpung og sagði um
leið:
„Punga sjóður sjatna fer,“
Bergþór lauk vísunni að bragði:
„saman móður brýt ég pokann,
leiðist þjóð að liggja hér,
lítill gróði er bölvuð þokan.“
Markús Jónsson hét maður sem lengi var
vinnumaður á bæjum í Hvítársíðu. Lengi á
Þorvaldsstöðum en líklega síðast á Fróða-
stöðum. Hann átti jarpan afbragðshest og
hélt mikið uppá. Eitt sinn höfðu smalamenn
sest niður til að snæða nesti sitt og Markús
breitt undir sig regnkápu því blautt var á jörð
en Jarp varð það á að leggja frá sér á kápuna
og segir þá Bergþór:
Býsna lítið batnaði
búningur hjá Markúsi
kúkur var í kápunni
kom hann beint úr merinni.
,,Það er ekki meri. Það er hestur,“ kom þá
samstundis frá Markúsi.
Að minnsta kosti þrír hagyrðingar í Borg-
arfirði ortu eftirmæli um Jarp, Bergþór Jóns-
son, Jón Eyjólfsson og Halldór Helgason og
koma hér tvær af vísum Halldórs:
Fallin ertu á foldarskaut
fákurinn góði Jarpur.
Eftir stend ég einn á braut
ekki ferðasnarpur.
Okkar saman lengi lá
leið á grýttum vegi
barstu mig á baki þá
- bilaði fótur eigi.
Markús varð bráðkvaddur á milli bæja við
lýðveldiskosningarnar 1944. Það þótti sérstakt
við jarðarför hans að húsfreyjur úr sveitinni
bundust samtökum að bera hann í kirkju og úr
og voru víst ekki mörg dæmi slíks á þeim tíma.
Hörður Björgvinsson hins vegar orti þessa
limru um Fljótstungurétt og fleira henni
tengt:
Þegar húmlitir hausts eru réttir
þá held ég í Fljótstunguréttir
og lít á um stund
er þar leika um grund
þessir ljúffengu lambakjötsréttir.
Svo réttir geti farið fram með eðlilegum
hætti þurfa fjárleitir að eiga sér stað áður og
er þá mikilsvert að hver maður standi sig sem
best í sínu hlutverki. Eitt sinn þurfti fjallkóng-
ur nokkur að setja ofaní við einn undirmanna
sinna og vafalaust maklega en kóngsi hafði þá
þurft að ástunda allnokkrar raddbeitingaræf-
ingar um daginn og var orðinn rámur nokk-
uð og raddrifinn. Sá armi þræll undirmaður
hans sem fyrir ávítum varð svaraði gjörsam-
lega blygðunarlaust:
Stendur á röngu, reiðir hramm,
rámur göngumaður,
kemur öngu orði fram,
illa sönghálsaður.
Góðir smalahestar eru eitt af því mikilvæg-
asta í leitum ásamt náttúrlega góðum smala-
hundi og að ekki sé nú minnst á slatta af al-
mennri skynsemi og góðu skapi. Nú orðið er
það þó mikil tíska að allar tamningar og raun-
ar mikill hluti af hestamennskunni fari fram
undir reiðhallarþaki eða „in the fucking pa-
lace“ eins og úttlendingarnir segja. Á fyrstu
árum reiðhallanna orti Jói í Stapa:
Reisur víða um fjöllin fríð
fjörga lýða sinni.
En geri hríð og garra tíð
er gott að ríða inni.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Er þar leika um grund - þessir ljúffengu lambakjötsréttir
„Arkitektúr og náttúra - jákvæð
áhrif hönnunar á náttúruna,“ er yf-
irskrift opins fyrirlestrar sem flutt-
ur verður við LbhÍ á Hvanneyri
mánudagskvöldið 23. september
nk. kl. 20:30 Hann er haldinn af
tilefni heimsóknar gestakennarans
tormod Amundsen. Fyrirlesturinn
tekur um 40 mínútur og fer fram á
ensku. Á eftir verða umræður um
efnið. Þá mun Sigurjón Einarsson
fuglaljósmyndari sýna myndir sem
hann hefur tekið af fuglum á svæð-
inu og ræða sína sýn.
tormod kemur hingað til
lands í gegnum Erasmus+ sem er
styrkjaáætlun ESB fyrir mennta-
æskulýðs- og íþróttamál 2014 –
2020. tormod stofnaði og rekur
fyrstu og einu arkitektastofu
heims, með sérþekkingu á fuglum
og fuglaskoðun. Stofan notar
hönnun sem verkfæri til að vernda
og efla dýralíf og náttúru með
áherslu á vistvæna ferðamennsku
og náttúruverndarsvæði. Þá
hefur tormod staðið fyrir
fuglaskoðunarhátíð í Varanger,
nyrst í Noregi. En henni er ætlað
að vekja athygli á ríku fuglalífi
svæðisins og hvernig það getur
nýst samfélaginu. Biotope hefur
unnið að verkefnum á Íslandi
og er með röð verkefna í gangi
á Norðausturlandi, þar sem þrjú
náttúruskýli eru þegar tilbúin sem
hluti af stærri uppbyggingaráætlun
fyrir valda áfangastaði.
Verndarsvæðið í Andakíl var
friðlýst sem búsvæði blesgæsa árið
2002. Landsvæðið var stækkað
árið 2011 og er nú 3.086 ha að
stærð, nær yfir 14 jarðir í Andakíl.
Svæðið er friðlýst sem búsvæði
fugla og er einn af mikilvægustu
áningarstöðum grænlenska
blesgæsastofnsins á Íslandi. Árið
2013 var svæðið skráð á lista
Ramsar-samningsins yfir alþjóðlega
mikilvæg votlendissvæði. Fjölbreytt
fuglalíf er sannarlega ein af perlum
Hvanneyrar. Allir áhugasamir
um uppbyggingu fuglaskoðunar
sem möguleika á uppbygginu á
vistvænni ferðamennsku eru hvattir
til að koma. Að fyrirlestrinum
standa umhverfisskipulagsbraut
LbhÍ og alþjóðaskrifstofa LbhÍ.
-fréttatilk.
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra er jafnan
glaðbeittur og kampakátur stjórn-
málamaður og tekur af ljúfmennsku
í erindi sem að honum berast, þau
eru ófá og af ýmsum toga. Sum
eru alvarlegs eðlis, snerta einstak-
linga með beinum og tilfinnanleg-
um hætti. Bið og tafir á efndum
hafa því afleiðingar, stundum óaft-
urkræfar, stundum persónulegar og
hörmulegar. Önnur eru stefnumót-
andi og lýsandi fyrir áherslur, við-
horf, gildismat og hugmyndafræði
ráðherra og hafa áhrif á stóra hópa
í þjóðfélaginu.
Orðin tóm
Það hefur ekkert skort á orðaflaum
ráðherrans og yfirlýsingar um þörf á
aðgerðum hér og hvar og að mark-
mið hans séu skýr, jafnvel háleit og
viljinn einnig. Hver skýrslan rekur
aðra, samantektir um þörf og aðkall-
andi málefni þar sem lausnir liggja
þó oft giska ljósar fyrir. Orð eru
bara ekki nóg. Almenningur fær iðu-
lega á tilfinninguna að skipan starfs-
hóps eða gerð skýrslu sé til þess eins
að draga mál á langinn og koma sér
hjá því að taka afstöðu, hefja aðgerð-
ir. Með þessu vil ég þó ekki gera lít-
ið úr vönduðum undirbúningi og
faglegum vinnubrögðum í hverju
máli. Þau atriði eiga alltaf við. Hins
vegar þurfa orðum og yfirlýsingum,
jafnvel kosningaloforðum, að fylgja
raunverulegar aðgerðir, að verkin
tali. Nú er hrópað á efndir.
Tækifærin ekki notuð
Á undanförnum misserum höfum
við Íslendingar búið við einstaka
efnahagslega velsæld. Við jafnað-
armenn höfum leitast við að standa
vaktina, skynjum nefnilega betur
en margur að velferðin nær ekki til
allra. Við höfum rætt um fátækt og
misskiptingu í samfélaginu og raun-
hæfar leiðir til úrbóta. Stórir hópar
barna, öryrkja og aldraðra búa við
ósæmandi kjör sem er hneyksli fyr-
ir velferðarsamfélag. Félagsmálaráð-
herra sem ber ábyrgð á málaflokkn-
um telur að ríkur skilningur sé innan
ríkisstjórnarinnar á aðstæðum þeirra
hópa sem höllum fæti standa. Þetta
er hrein skrumskæling, og fjárlaga-
frumvarp fyrir komandi ár gefur eng-
in fyrirheit um raunverulegar breyt-
ingar. Það blasir við að núverandi
ríkisstjórn hefur ekki alvöru áhuga á
að koma til móts við þá efnaminnstu,
þá sem búa við fátækt á Íslandi. Þetta
á jafnt við um ungar barnafjölskyld-
ur, fólk með skerta starfsorku og þá
hina eldri. Þetta sýna áherslur ríkis-
stjórnarinnar í verki, hún hefur feng-
ið tækifærin og það þarf ekki vitn-
anna við.
Fátækastir aldraðra
Ég nefni hér bara eitt dæmi sem ég
hef áður fjallað um. Það er sú hneisa
sem snýr að 3000 öldruðum einstak-
lingum á Íslandi um þessar mund-
ir. Þeim er gert að draga fram lífið
á tryggingabótum sem eru undir við-
urkenndum fátæktarmörkum. Ráð-
herra kvaðst vilja
gera betur og skip-
aði starfshóp um
málið i fyrra þótt
býsna skýrt lægi
fyrir hvert umfang vandans væri.
Níu mánuðir eru liðnir frá því að
skýrsla var lögð fram, ekkert bólar á
viðbrögðum. Þessi skýrt afmarkaði
og fátækasti hópur aldraðra lifir enn
við niðurlægjandi kjör.
Engu svarað
Á vordögum lagði ég fram skrif-
lega fyrirspurn til ráðherra á Al-
þingi í fjórum liðum um þetta mál
og átti raunar von á skjótum svör-
um eða a.m.k. í samræmi við vinnu-
reglur þingsins. Enn bólar ekkert á
svörum og það er kannski ekki und-
arlegt að á hugann leiti yfirlýsingar
stjórnarflokkanna fyrir kosningar um
áherslur í velferðar- og heilbrigðis-
málum. Þar stendur nú ekki steinn
yfir steini. Nú á miðju kjörtímabili
má þeim sem höllustum fæti standa
í samfélaginu vera ljóst hvert stefnir.
Ríkisstjórn Framsóknarflokks, Sjálf-
stæðisflokks og Vinstri grænna ætl-
ar ekki að einhenda sér í breytingar
á þeirra kjörum. Nýtt fjárlagafrum-
varp, orðaflaumur, hástemmdar yfir-
lýsingar og tölulegar sjónhverfingar
breyta því miður engu þar um.
Guðjón S. Brjánsson
Höf. er alþingismaður Samfylking-
arinnar í NV kjördæmi.
Fyrirlestur um
fuglaskoðunarskýli og stígagerð
Tormod Amundsen.
Pennagrein
Ráðherra – engin teikn á lofti?