Skessuhorn - 18.09.2019, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 18. SEpTEMBER 2019 11
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
1299. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn
í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn
24. september kl. 17:00.
Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta
og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er
að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á
facebooksíðu Akraneskaupstaðar.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Framsókn og frjálsir í Frístundamiðstöðinni, •
mánudaginn 23. september kl. 20:00.
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti •
16-18, mánudaginn 23. september kl. 20:00.
Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8, •
laugardaginn 21. september kl. 11:00.
Bæjarstjórnarfundur
Fjárfestirinn Matthías Imsland
keypti nýlega 14 íbúða fjölbýlis-
hús við Asparskóga 4 á Akra-
nesi af leigufélaginu Heimavöll-
um hf. í gegnum einkahlutafélag
sitt, MpI ehf. Fréttablaðið greindi
frá. Kaupverðið liggur ekki fyrir
en kaupin voru fjármögnuð með
lánum frá Íbúðalánasjóði sem ein-
ungis eru ætluð óhagnaðardrifnum
leigufélögum, en ákvæði þess efn-
is er í stofnskrá fyrirtækisins MpI
ehf. Lán sem þessi lúta sérstökum
kröfum skv. reglugerð, m.a. að fyr-
irtæki sem fær slík lán er óheim-
ilt að greiða út arð, heldur á allur
hagnaður af rekstrinum að fara til
uppbyggingar og viðhalds íbúð-
anna. Enn fremur er kveðið á um
að launagreiðslum sé stillt í hóf.
Sömuleiðis er tekið fram að slík
félög skuli hafa það langtíma-
markmið að eiga og sjá um rekst-
ur leiguhúsnæðis. Þá er kveðið á
um að meðalárstekjur íbúa skuli
ekki fara yfir ákveðna upphæð og
að leiguverð skuli reiknað út eftir
ákveðnum reglum. Leiguverð skal
þannig vera hlutfall af afborgunum
lána ÍLS að viðbættum rekstri og
viðhaldi.
Tveimur dögum eftir að Matth-
ías fékk afsal íbúðanna fjórtán í
hendurnar frá Heimavöllum seldi
félag hans tvær íbúðanna fyrir sam-
tals 50,6 milljónir króna. Til þess
þurfti að afla sérstaks leyfis frá Íbú-
ðalánasjóði, sem var veitt, en pen-
ingarnir fóru m.a. í að greiða upp
rúmlega 29 milljóna lán frá sjóðn-
um sem hvíldu á þessum tveimur
íbúðum.
Við kaupin tók félag Matthíasar
yfir leigusamninga Heimavalla
við leigjendur. Hins vegar bendir
ekkert til þess að leiguverð muni
lækka, að því er fram kemur í frétt
Fréttablaðsins, þrátt fyrir að kaup
fyrirtækisins séu fjármögnuð með
lánum sem eru ætluð óhagnaðar-
drifnum leigufélögum. kgk
Asparskógar 4 á Akranesi.
Keypti fjórtán íbúða fjölbýli
á Akranesi