Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2019, Síða 27

Skessuhorn - 18.09.2019, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 18. SEpTEMBER 2019 27 Sameiginlegt lið ÍA/Kára/Skalla- gríms fagnaði um helgina Íslands- meistaratitli A liða í 2. flokki karla annað árið í röð. Liðið hóf Íslands- meistarabikarinn á loft að loknum 5-0 sigri gegn KA/Dalvík/Reyni/ Magna í Akraneshöllinni síðastlið- inn laugardag. Liðið fór ósigrað í gegnum Íslandsmótið, lauk keppni með 46 stig og 44 mörk í plús. Sig- urður Hrannar Þorsteinsson varð markakóngur mótsins með 22 mörk. Sama dag vann B lið heimamanna 2. flokks KA/Dalvík/Reyni/Magna 6-0 og sigraði í flokki B liða með 42 stig og markatöluna 69-12, eða 57 mörk í plús. Andri Freyr Egg- ertsson varð markakóngur mótsins með 13 mörk. Þjálfarar bæði A og B liða 2. flokks karla eru þeir Sigurður Jóns- son og Elinbergur Sveinson. kgk/ Ljósm. Knattspyrnufélag ÍA. ÍA og Grindavík skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 21. umferð pepsi Max deildar karla í knatt- spyrnu. Leikið var á Akranesvelli síðdegis á mánudaginn, en leiknum var frestað vegna veðurs á sunnu- daginn. Skagamenn sigldu lygn- an sjó um miðja deild fyrir leikinn, en Grindvíkingar þurftu á stigi að halda til að eiga minnsta möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Bæði lið voru varkár í upphafi og leikurinn fremur tíðindalítill fram- an af, eða allt þar til ÍA komst yfir á 24. mínútu. Stefán Teitur Þórð- arson tók aukaspyrnu rétt utan við vítateigsbogann, lyfti boltanum yfir varnarvegginn og efst upp í hægra hornið. Glæsilegt mark hjá Stefáni og lifnaði heldur yfir leiknum eftir það. Skagamenn voru nálægt því að bæta við öðru marki skömmu síð- ar þegar þeir fengu tvö góð tæki- færi eftir hornspyrnu. Grindvík- ingar vöknuðu sömuleiðis til lífsins án þess þó að skapa sér nein alvöru marktækifæri. Gestirnir voru líflegri í upphafi síðari hálfleiks. Þeir voru nálægt því að jafna á 56. mínútu en Einar Logi Einarsson bjargaði á mark- línu. Eftir því sem leið á leikinn féll Skagaliðið lengra til baka og freistaði þess að beita skyndisókn- um. Grindvíkingar sóttu meira, áttu nokkrar álitlegar sóknir en engin dauðafæri, þar til jöfnunar- markið kom á 85. mínútu. Löng aukaspyrna var send inn á teiginn þar sem Josip Zeba var aleinn og óvaldaður og skallaði boltann í blá- hornið. Grindvíkingar sóttu stíft undir lokin, áttu skot rétt framhjá markinu og Skagamenn björguðu svo á línu í uppbótartíma. En fleiri mörk voru ekki skoruð og niður- staðan því jafntefli. ÍA situr í 6. sæti deildarinnar með 26 stig, jafn mörg og HK í sætinu fyrir ofan en stigi á undan Val og Víkingi R. Næsti leikur ÍA er útileikur gegn HK sunnudaginn 22. september næstkomandi. kgk Víkingur Ó. lagði Aftureldingu 1-0 þegar liðin mættust í næstsíð- ustu umferð Inkasso deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Varmár- velli í Mosfellsbæ á laugardaginn. Heimamenn voru heldur sterkari í fyrri hálfleik. Þeir léku með vind- inn í bakið, en nokkuð hvasst var á Varmárvelli og setti það svip sinn á leikinn. Afturelding fékk dauðafæri strax á 5. mínútu leiksins þegar Ás- geir Örn Arnþórsson slapp einn í gegn en Franko Lalic varði vel frá honum í marki Víkings. Boltinn barst síðan aftur á Ásgeir sem skaut honum yfir markið. Afturelding skapaði sér nokkur ágætis færi fram að hálfleiknum en Ólafsvíkingar fundu ekki taktinn í sókninni. Það bætti heldur í vindinn í síð- ari hálfleik og virtist það slá heima- menn nokkuð út af laginu. Ólafs- víkingar komust betur inn í leik- inn, án þess þó að skapa sér mik- ið af færum. Þeir fengu tvö ágæt- is tækifæri úr aukaspyrnu og lang- skoti snemma í síðari hálfleiknum en tókst ekki að koma boltanum í netið. Eina mark leiksins skor- aði Harley Willard á 65. mínútu, með skoti fyrir utan vítateig. Jon T. Martinez, markvörður Aftureld- ingar, var í boltanum en náði ekki að verja skotið. Víkingur þar með kominn með 0-1 forystu sem þeir héldu allt til leiksloka. Víkingur situr í 6. sæti deildar- innar með 31 stig, jafn mörg og Keflavík í sætinu fyrir neðan en tveimur stigum á eftir næstu liðum fyrir ofan. Lokaleikur Ólafsvíkinga í deildinni í sumar er heimaleikur gegn Njarðvíkingum laugardaginn 21. september. kgk/ Ljósm. úr safni. ÍA tryggði sæti sitt í Inkasso deild kvenna í knattspyrnu á föstudag. Skagakonur sigruðu Aftureldingu 2-0 á heimavelli í næstsíðustu um- ferð deildarinnar og eru þar með fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. Skagakonur byrjuðu leikinn af krafti og komust yfir strax á 6. mín- útu þegar Íris Dögg Gunnarsdótt- ir, markvörður Aftureldingar, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Sigrún Eva Sigurðardóttir tók glæsilega hornspyrnu frá vinstri, skrúfaði boltann inn að markinu á nærstöngina. Íris Dögg steig á móti boltanum og ætlaði að slá hann frá en hitti hann ekki nógu vel svo hann hafnaði í netinu. Skagakonur höfðu yfirhöndina það sem eftir lifði fyrri hálfleiks, sýndu á köflum ágæta sóknartil- burði og sköpuðu sér nokkur fín færi sem ekki tókst að nýta. Þær léku sömuleiðis þétta vörn svo gestirnir úr Mosfellsbæ komust lítt áleiðis og tókst ekki að skapa mikið. ÍA liðið var áfram sterkara í síðari hálfleik, var meira með boltann og náði að skapa sér ágætis færi. Aftur- elding sótti þó heldur í sig veðrið og átti nokkrar álitlegar sóknir en tókst ekki að komast á blað. Skaga- konur gerðu svo út um leikinn á 82. mínútu. Erla Karitas Jóhannesdótt- ir átti þá góða fyrirgjöf inn í teiginn frá hægri. Boltinn fór framhjá varn- armönnum Aftureldingar og á Vé- dísi Öglu Reynisdóttur sem skor- aði með föstu skoti úr vítateignum. Var þetta fyrsta mark Védísar fyrir meistaraflokk en ef til vill hefði Íris Dögg í marki Aftureldingar átt að gera betur. Eftir sigurinn er ÍA í 6. sæti með 19 stig, jafn mörg og Augnablik og Fjölnir í sætunum fyrir neðan. En það sem mestu máli skiptir er að liðið hefur fjögurra stiga forskot á Grindavík sem situr í fallsæti þeg- ar einn leikur er eftir. Skagakon- ur munu því leika áfram í Inkasso deildinni að ári. Lokaleikur ÍA í sumar er gegn Tindastóli á föstu- daginn, 20. september. Hann fer fram á Sauðárkróki. kgk Íslandsmeistarar í 2. flokki Lið ÍA/Kára/Skallagríms sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum A liða í 2. flokki karla annað árið í röð. Íslandsmeistarar B liða í 2. flokki karla. Sigur í Mosfellsbænum Sótt að Sigrúnu Evu Sigurðardóttur í leiknum gegn Aftureldingu. Ljósm. gbh. Skagakonur öruggar Jafnt á Akranesvelli Stefán Teitur Þórðarson sendir aukaspyrnu yfir vegginn og efst upp í hornið. Ljósm. gbh.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.