Skessuhorn - 16.10.2019, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Vesturlandshreppur
Sveitarfélög hafa nánast frá upphafi byggðar hér á landi verið grundvall-
areining í stjórnskipan. Fyrstu rituðu heimildir um löghreppa er að finna í
Grágás, lögbók Íslendinga frá tólftu öld. Þar segir að í löghreppi skuli vera
20 bændur eða fleiri. Tilvist þessara löghreppa má rekja til þeirra lýðræð-
islegu hefða sem landnámsmenn þekktu til úr norrænni menningu fyrri
heimkynna og fluttu með sér til landsins. Upphaflegt hlutverk sveitarfélag-
anna mótaðist á grundvelli samhjálpar og enn í dag gegna sveitarfélög mik-
ilvægu hlutverki í lífi allra landsmanna, samtryggingu og aðgangi að þjón-
ustu.
Það má segja að sé dálítið kómískt að lágmarksstærð löghrepps skömmu
eftir landnám hafi byggst á að lágmarki 20 bændum. Í dag eru talsvert mörg
sveitarfélög sem eiga langt í land með að ná því marki, en eiga engu að síð-
ur sinn tilverurétt samkvæmt núgildandi lögum. En nú eru blikur á lofti.
Ráðherra sveitarstjórnarmála hefur borið fram tillögu þess efnis að við
næstu kosningar til sveitarstjórna verði lágmarksfjöldi í sveitarfélagi færð-
ur í 250 íbúar. Sama hversu vel mun ganga í barneignum og aðflutningi
fólks er því einsýnt að hvorki Skorradalshreppur, Helgafellssveit né Eyja-
og Miklaholtshreppur muni rjúfa þann múr. Við kosningarnar þar á eftir er
svo markið sett á þúsund íbúa múrinn og þá gæti farið um enn fleiri að efna
verði til sameiningar. Hvalfjarðarsveit, Dalabyggð, Grundarfjarðarbær eru
til dæmis í þeim hópi. Ég skynja það svo að almennt virðist aukinn með-
byr vera með fækkun og stækkun sveitarfélaga. Meira að segja landsfundur
Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti nýverið tillögu ráðherra fyrir
sitt leiti. Vafalítið hafa þingfulltrúar smæstu sveitarfélaga verið fámennur
hópur á þeim fundi og því þurft að lúta í gras.
Enn sem komið er hafa fáir tjáð sig opinberlega um áhrif lögþvingaðra
sameininga með valdboði. Aðspurðir hafa fulltrúar sumra smærri sveitar-
félaga kvartað yfir meintu ofríki, þegar þeir hafa verið spurðir. Vissulega
eru víða miklir hagsmunir í húfi og sannanlega má finna dæmi þess að sam-
einingar hafa gengið afleitlega og lítil sátt ríkt um þær svo árum og jafnvel
áratugum skiptir.
Ef sameining sveitarfélaga á að ganga farsællega fyrir sig þurfa nokkur
veigamikil atriði að vera til staðar. Í fyrsta lagi þarf vilji til sameiningar að
koma innan frá þannig að menn gangi samhentir í það verkefni að deila hag
með nágrönnum sínum. Oft hefur það t.d. reynst illa að litlar stjórnsýslu-
einingar til sveita renni saman við stór þorp eða kaupstaði sem nánast éta
upp möguleika dreifbýlisfólks til áhrifa og ákvörðunartöku um eigin hags-
munamál. Við þekkjum fjölmörg dæmi um að skólar hafi verið aflagðir og
fleira slíkt sem er eitur í beinum margra. Við slíka gjörninga molnar jafnan
undan byggðum hratt og örugglega.
Í fyrrum Vesturlandskjördæmi eru nú tíu sveitarfélög. Íbúafjöldi í þeim
er frá fimmtíu til 7500. Varðandi sameiningu sveitarfélaga hef ég heyrt
vangaveltur um að stefna skuli að því að þau verði í mesta lagi þrjú. Hins
vegar er annað mynstur mun meira heillandi að mínu áliti, eða að stefnt
verði að einu sveitarfélagi á Vesturlandi. Það hefði um 16 þúsund íbúa, yrði
sjöunda stærsta sveitarfélag landsins og sannanlega það fallegasta! Fá ef
nokkur landssvæði myndu búa við jafn fjölbreytta flóru atvinnu; sjávarút-
veg á Snæfellsnesi, landbúnað í sveitum, öfluga skóla, iðnað og fjölbreytta
nýsköpun. Ég er ekki í vafa um að stórhuga sameining sem slík myndi falla
betur í kramið hjá mörgum en ýmis önnur möguleg mynstur sem menn
hugsanlega neyðast til að sjóða saman í krafti valdboðs að ofan. En tíminn
mun leiða í ljós hversu stórhuga íbúar verða, því þeirra er valið og hjá þeim
er valdið.
Magnús Magnússon
Þrír sambandsaðilar Ungmenna-
félags Íslands voru heiðraðir með
hvatningarverðlaunum UMFÍ á
sambandsþingi sem haldið var um
helgina á Laugarbakka í Miðfirði.
Héraðssamband Snæfellsness
og Hnappadalssýslu (HSH) fékk
hvatningarverðlaun fyrir að stuðla
að auknu samstarfi meðal aðildar-
félaga og fyrir að ná vel til barna af
erlendum uppruna.
Ungmennasamaband Kjalarnes-
þings hlaut hvatningarverðlaun
fyrir reiðskóla Hestamannafélags-
ins Harðar fyrir fatlaða og fólk
með þroskahömlun og Ungmenn-
samband Austur-Húnvetninga fékk
verðlaunin fyrir frumkvöðlastarf og
verkefni fyrir eldri borgara.
kgk
Frá því var greint á heimasíðu Sam-
taka sveitarfélaga á Vesturlandi í
síðustu viku að gerður hafi verið
samningur við Arnarlæk ehf. um
úttekt á smávirkjanakostum á Vest-
urlandi. Arnarlækur tekur að sér að
skoða og greina allt að 70 mögu-
lega virkjanakosti í landshlutan-
um, þar sem sérstök áhersla verður
lögð á virkjanir af stærðargráðunni
50kW til 10MW. Arnarlækur hef-
ur þegar hafið vinnu við verkefnið
og er áætlað að því ljúki í lok mars
á næsta ári. Niðurstöður verkefn-
isins verða í formi flokkunar á val-
kostum ásamt tillögum um frekari
athuganir.
Eins og nýlega kom fram í frétt
Skessuhorns stofnuðu fyrirtækið
Arnarlæk ehf. nafnar tveir og skóla-
félagar úr verkfræðideild HÍ, þeir
Arnar Björgvinsson og Arnar Berg-
þórsson frá Húsafelli. Arnarlækur
ehf. er nú með í undirbúningi virkj-
un á Örlygsstöðum í Helgafellssveit
á Snæfellsnesi auk þriggja annarra
smávirkjana. Arnarlækur kom einn-
ig að Urðarfellsvirkjun í Húsafelli
sem gangsett var fyrr á þessu ári.
mm
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
ferðamálaráðherra, hefur ákveð-
ið að auka framlög til Landsbjarg-
ar fyrir verkefnið Safetravel í 40
milljónir króna á ári, en styðja auk
þess við starf Landsbjargar um 75
milljónir króna. Ráðherra, Lands-
björg og Samtök ferðaþjónustunn-
ar hafa nú undirritað nýjan þriggja
ára samning sem hljóðar alls upp
á 115 milljónir króna, en Lands-
björg er í lykilhlutverki þegar kem-
ur að öryggi ferðamanna og slysa-
vörnum þeirra. „Markmiðið er að
gera Landsbjörgu kleift að viðhalda
sínu góða starfi og leggja enn meiri
áherslu á öryggi ferðamanna. Við
viljum að allir sem heimsækja Ísland
rati heim heilir og kátir með ferð-
ina sína,“ segir Þórdís Kolbrún.
Meginmarkmið Safetravel verk-
efnisins er að efla öryggismál og
slysavarnir ferðamanna með því að
skapa gott aðgengi fyrir ferðamenn
og ferðaþjónustuaðila að upplýs-
ingum um ábyrga ferðahegðun,
umgengni um náttúru og aðstæð-
ur í landinu. Verkefnum Safetravel
hefur fjölgað á undanförnum árum.
Árið 2017 gerðu Slysavarnafélag-
ið Landsbjörg og atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið ásamt Sam-
tökum ferðaþjónustunnar samning
til þriggja ára sem þau hafa nú sam-
mælst um að endurnýja til þriggja
ára frá 2020.
Meðal þess sem samningurinn
tekur til er upplýsingagjöf til ferða-
manna í gegnum heimasíðuna sa-
fetravel.is, rekstur skjáupplýsinga-
kerfis ferðamanna á lykilstöðum á
landinu og hálendisvakt björgun-
arsveita. Þá verður einnig ráðist í
gerð upplýsingaefnis fyrir ferða-
menn, meðal annars örmyndbönd
sem taka á hinum ýmsu öryggis-
málum sem ferðamenn þurfa að
þekkja til að njóta ferðalagsins á Ís-
landi. mm
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, Rúnar Aðabjörn Pétursson, formaður USAH,
Hjörleifur K. Hjörleifsson, formaður HSH og Valdimar Leó Friðriksson, formaður
UMSK. Ljósm. UMFÍ.
HSH fékk hvatningarverðlaun UMFÍ
Frá undirritun styrktarsamninga við Landsbjörgu. F.v. Þórdír Kolbrún R
Gylfadóttir ferðamálaráðherra, Þór Þorsteinsson formaður stjórnar Landsbjargar
og Bjarnheiður Hallsdóttir formaður SAF.
Styrkur ríkisins til Landsbjargar
og Safetravel hækkaður
Ferðafólk við Djúpalónssand á Snæfellsnesi.
Arnar Bergþórsson (t.h.) og
Arnar Björgvinsson rekar fyrirtækið
Arnarlæk ehf. sem SSV hefur nú samið
við um að gera úttekt á smávirkjana-
kostum á Vesturlandi.
Ráðnir til að gera úttekt á
virkjanakostum á Vesturlandi