Skessuhorn - 16.10.2019, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 201914
Íþróttabandalag Akraness, ásamt
Íþróttabandalagi Reykjavíkur og
Íþróttabandalagi Akureyrar, hef-
ur nú fengið fulla aðild að Ung-
mennafélagi Íslands, UMFÍ. Þetta
var samþykkt nær samhljóða á sam-
bandsþingi UMFÍ sem fram fór á
Laugarbakka í Miðfirði um helgina.
Með aðild þessara félaga verða flest
stóru íþróttafélögin á höfuðborg-
arsvæðinu, sem heyra undir ÍBR,
hluti af UMFÍ, ásamt ÍA á Akra-
nesi, ÍBA á Akureyri og 29 héraðs-
samböndum um land allt.
Ungmennafélag Íslands er lands-
samband ungmennafélaga, var
stofnað á Þingvöllum 2. ágúst
1907. Innan UMFÍ voru fyrir þessa
sameiningu 340 starfandi félög
og félagsmenn rúmlega 160 þús-
und. Í tilkynningu frá UMFÍ kem-
ur fram að málið hafi verið til um-
ræðu í hreyfingunni í tvo áratugi.
Íþróttabandalögin þrjú fái nú stöðu
sambandsaðila innan UMFÍ, sem
margfaldast við það í stærð. Að mati
stjórnenda UMFÍ verður hreyfing-
in öflugri við þessi nýju félög. „Nú
getum við sameinað krafta okkar
og orðið öflugri samtök en áður,“
segir Haukur Valtýsson, formaður
UMFÍ.
Ánægja með aðildina
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri ÍA, er að von-
um ánægð með að ÍA hafi fengið
fulla aðild að UMFÍ. „Það er mikil
ánægja með þessa ákvörðun innan
ÍA. Ferlið hefur tekið rúm þrjú, allt
frá því umsókn sem forveri minn í
starfi sendi inn fyrir hönd íþrótta-
bandalagsins og þar til hún var sam-
þykkt núna um síðustu helgi,“ seg-
ir Hildur í samtali við Skessuhorn.
„UMFÍ eru rótgróin og reynslu-
mikil samtök sem við erum mjög
spennt að tilheyra. Ungmenna-
hreyfingin býr að mikilli fagþekk-
ingu og veitir sínum aðildarfélög-
um margvíslega þjónustu. Ég tel að
þetta skref geti orðið til þess að efla
enn frekar íþrótta- og æskulýðs-
starf á landsvísu. Þessu mun fylgja
meira samstarf og með því höfum
við aukinn kraft til að styðja enn
betur við íþrótta- og æskulýðsstarf í
okkar nærumhverfi,“ segir hún.
Vilja verða beinir þátt-
takendur í starfi UMFÍ
Íþróttabandalögin þrjú sem tekin
voru inn í UMFÍ um síðustu helgi
sóttu sameiginlega um aðild. ÍBR
leiddi þá vinnu fyrir hönd ÍA og
ÍBA einnig. Frímann Ari Ferdin-
andsson er framkvæmdastjóri ÍBR.
Hann segir ýmislegt jákvætt fylgja
því að bandalögin hafi nú fullgilda
aðild að UMFÍ. „Hjá ÍBR byrjaði
þetta ferli fyrir bráðum 15 árum
síðan. Þá var það meðal annars
hugsað til að fá að taka þátt í lands-
mótum og öðru almennnu starfi
ungmennafélaganna. Síðan var
reglum breytt og bandalögin fengu
að taka þátt í landsmótum. Þá var
sú hindrun úr sögunni, en með að-
ild fáum við auðvitað að taka þátt í
að móta landsmótin til framtíðar. Í
seinni tíð hafa menn einnig horft til
þess að UMFÍ eru samtök íþrótta-
héraða, eins og við erum. Við sjáum
því fyrir okkur vettvang til aukinnar
samvinnu allra íþróttahéraðanna til
að efla íþróttastarf í landinu í sam-
einingu,“ segir Frímann. „Auk þess
er alls kyns starf sem ungmenna-
hreyfingin býður upp á sem okk-
ur þykir áhugavert og langar gjarn-
an að taka þátt. Ég get nefnt sem
dæmi ýmiss konar námskeiðahald
í tengslum við félagsstarf. Þá hefur
ungmennahreyfingin verið dugleg
á svokölluðum æskulýðsvettvangi
þar sem siðamál, sem hafa verið
mikið í umræðunni upp á síðkastið,
hafa verið tekin til gagngerrar um-
fjöllunar,“ segir hann.
Frekara samstarf
Bæði Hildur og Frímann leggja
áherslu á að með fullri aðild skap-
ist grundvöllur fyrir frekara sam-
starf íþróttabandalaganna við önn-
ur íþróttasambönd. „Nú þegar eig-
um við í töluverðum samskiptum
við okkar nágranna í UMSB. Ég sé
fram á enn meiri og betri samvinnu
okkar nú þegar ÍA hefur feng-
ið fullgilda aðild að UMFÍ,“ seg-
ir Hildur Karen og Frímann tekur
undir með henni. „Með aðild geta
til dæmis UMSB og ÍA unnið mikið
meira saman, í gegnum ýmis verk-
efni innan UMFÍ. Þar hafa kannski
verið ákveðnar hindranir í gegn-
um tíðina, áður en ÍA fékk fulla að-
ild. Núna geta ÍA og UMSB farið
af stað í sameiginleg verkefni und-
ir hatti ungmennahreyfingarinnar
og sótt um sameiginlega styrki úr
sjóðum UMFÍ til þeirra verkefna,
til dæmis,“ segir hann.
Hvað varðar lottótekjur íþrótta-
bandalaganna sem nú hafa fengið
fulla aðild að UMFÍ segir Frímann
að bandalögin hafi sæst á að fá ekki
lottógreiðslur í gegnum UMFÍ fyrr
en náðst hafi samkomulag um sam-
ræmdar reglur um skiptingu fyrir
aðila Íþróttasambands Íslands og
UMFÍ. „Umræða hefur verið uppi
innan íþróttahreyfingarinnar um
að jafna þurfi þá skiptingu og með
því að taka íþróttabandalögin inn
í UMFÍ og skipta greiðslum eftir
íþróttahéruðum þá gefst tækifæri
til þess. Tíminn verður hins vegar
að leiða í ljós hvernig þeirri skipt-
ingu verður háttað,“ segir Frímann
að endingu. kgk
Sigursteinn Sigurðsson arkitekt
hefur verið ráðinn í nýtt starf verk-
efnastjóri hjá Samtökum sveitarfé-
laga á Vesturlandi. Sigursteinn hef-
ur síðustu átta ár rekið arkitekta-
stofuna Gjafa í Borgarnesi en auk
þess starfaði hann að sérverkefnum
fyrir SSV á árunum 2012 til 2014.
Hann hefur í gegnum tíðina tekið
virkan þátt í ýmsum framfara- og
samfélagsmálum í heimabyggð og á
Vesturlandi, var m.a. einn af stofn-
endum Vitbrigða Vesturlands, sem
eru samtök fólks í skapandi grein-
um, og hefur setið þar í stjórn. Þá
hefur hann ásamt fleirum haldið
utan um listahátíðina Plan-B Art
Festival. Sigursteinn var valinn úr
hópi rúmlega þrjátíu umsækjanda
um starfið en Hagvangur hélt utan
um ráðningarferlið fyrir hönd SSV.
Helstu verkefni nýs verkefna-
stjóra verður umsýsla um menn-
ingarmál í landshlutanum, þátttaka
í byggðaþróunarverkefnum og eft-
irfylgni með Velferðarstefnu Vest-
urlands sem nýlega var samþykkt.
„Starfið leggst alveg rosalega vel í
mig. Ég er því fullur tilhlökkunar
enda er þetta spennandi verkefni
og að hluta til er verið að móta nýtt
starf. Elísabet Haraldsdóttir sinnti
áður menningarmálum í landshlut-
anum en hún hætti í sumar. Í nýja
starfinu verður auk menningar-
málanna eftirfylgni með nýrri vel-
ferðarstefnu fyrir Vesturland en sú
vinna snýr m.a. að forvarnarstarfi,
ungmennaráðum og ýmsum verk-
efnum á því sviði,“ segir Sigur-
steinn í samtali við Skessuhorn.
Hann hefur undanfarin ár rekið
arkitektastofuna Gjafa í Borgar-
nesi. „Gjafi verður áfram til en ég
mun ekki taka að mér nein stærri
verkefni við hönnun. Verð í fullu
starfi hjá SSV og með vinnuað-
stöðu í stjórnsýsluhúsinu við Bjarn-
arbraut. Ég mun þó áfram grípa í
einhver verkefni við hönnun, svona
milli mjalta. Það verður því lúxus
fyrir mig að geta kannski valið þau
verkefni sem mér hentar samhliða
fullu starfi við annað. Gjafi verð-
ur því áfram rekið sem fyrirtækja-
hótel, en ég hef leigt út skrifborð á
skrifstofu minni sem áfram verður
opin í tengibyggingunni við Borg-
arbraut 57 og 59 í Borgarnesi,“ seg-
ir Sigursteinn en hann byrjar í nýja
starfi verkefnisstjóra hjá SSV 1.
nóvember næstkomandi.
mm
Landsfundur Vinstrihreyfingarinn-
ar græns framboðs fer fram helgina
18.-20. október næstkomandi.
Fram hefur komið að Mýramaður-
inn Guðmundur Ingi Guðbrands-
son umhverfisráðherra gefur kost
á sér í stól varaformanns VG. Nú
hefur sveitungi hans, Rúnar Gísla-
son úr Borgarnesi, ákveðið að gefa
kost á sér í embætti gjaldkera. Til-
kynning Rúnars um framboð er
svohljóðandi:
„Ég hef ákveðið að bjóða mig
fram í embætti gjaldkera VG á
komandi landsfundi. Ég hef haft
mikla ánægju af að starfa innan VG
til þessa og trúi að ég geti komið
að frekara gagni. Það er ástæðan
fyrir þessari framhleypni. Síðan ég
gekk til liðs við Vinstrihreyfinguna
- grænt framboð þá hef ég gengt
embætti formanns í mínu svæðis-
félagi, setið í stjórn VG á lands-
vísu og verið í framboði til Alþing-
iskosninga og sveitastjórnarkosn-
inga ásamt því að hafa sinnt nefnd-
arstörfum í nafni VG. Hvort það
hafi verið heillaspor fyrir einhverja
aðra en mig sjálfan er ekki mitt að
meta, heldur legg ég það í dóm fé-
laga minna einu sinni enn,“ sagði
Rúnar. mm
Frímann Ari Ferdinandsson,
framkvæmdastjóri ÍBR. Ljósm. ÍBR.
ÍA fékk fulla aðild að UMFÍ
- ásamt ÍBR og ÍBA
Kátir piltar á Norðurálsmóti ÍA fyrir nokkrum árum síðan.
Ljósmyndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri ÍA. Ljósm. ÍA.
Sigursteinn Sigurðsson. Ljósm. Skessuhorn/glh
Sigursteinn ráðinn
verkefnastjóri hjá SSV
Rúnar Gíslason.
Tveir Vestlendingar bjóða sig
fram til forystu í VG