Skessuhorn - 16.10.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019 17
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir,
skráning nauðsynleg á breidafjordur@nsv.is
Ljósmynd: Daníel Bergmann
Síðastliðið fimmtudagskvöld efndu
Einar Örnólfsson, bóndi á Sig-
mundarstöðum í Þverárhlíð og
Helgi Hjörvar, ábúandi á Hafþórs-
stöðum í Norðurárdal, til kynn-
ingarfundar með nágrönnum sín-
um um hugsanlegan vindmyllu-
garð á Grjóthálsi, sem skilur að
sveitir þeirra. Fundurinn var hald-
inn í samkomuhúsinu við Þverár-
rétt. Samkvæmt hugmyndum sem
kynntar voru verða reistar allt að sex
stórar vindmyllur á miðjum Grjót-
hálsinum, ef af verkefninu verð-
ur. Þá var einnig upplýst á fundin-
um að eigandi Króks í Norðurár-
dal hefur heimilað Norðmönnum
að ráðast í rannsóknir í landi sínu
með tilliti til vindmyllu uppsetn-
ingar. Einar Örnólfsson staðfestir
í samtali við Skessuhorn að verk-
efni þetta sé enn á hugmyndastigi
og allsendis óvíst hvort af því verð-
ur. Því væri ekki tímabært að lýsa
því nánar að svo stöddu. Þeir hafi
hins vegar viljað hafa nágranna sína
upplýsta frá upphafi og því boðið til
kaffis og spjalls í Réttinni.
mm
Sunnudaginn 20. október verð-
ur Fjölmenningarhátíðin haldin í
félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík frá
klukkan 14 til 16. Er þetta í fimmta
sinn sem hátíðin er haldin en fram
að þessu hefur hún verið hald-
in í Frystiklefanum í Rifi. Vegna
þess hversu mikill fjöldi gesta hef-
ur verið var ákveðið að færa hátíð-
ina í stærra húsnæði í ár. Hátíðin er
þannig sett upp að íbúar á svæðinu
sem eiga uppruna í öðrum löndum
koma með mat frá sínu heimalandi
til að kynna fyrir fólki. Þá verða
skemmtiatriði og kynningarbásar
frá ýmsum félagasamtökum. Meðal
skemmtiatriða verður stúlknaband-
ið Mæk frá Grundarfirði sem ætlar
að syngja fyrir gesti. Þá munu kór-
ar úr Snæfellsbæ syngja nokkur lög
og tveir ungir og efnilegir rapparar
frá Snæfellsbæ, sem kalla sig Davi-
dos and Juce boys, munu einnig
skemmta gestum.
Rebekka Unnarsdóttir, verkefna-
stjóri hjá Átthagastofu, segir há-
tíðna alltaf hafa fengið góðar við-
tökur meðal íbúa en nú þegar hafa
nokkrir skráð þátttöku sína. „Þeir
skrá sig sem vilja koma með mat og
þeir geta skráð sig fram að fimmtu-
degi fyrir hátið,“ segir Rebekka og
bætir því við að allir séu hjartanlega
velkomnir á hátíðina en aðgangs-
eyrir er enginn. „Það hafa kom-
ið hópar frá um sjö löndum með
mat á hátíðina og það verður von-
andi svipað í ár. Stærsti hópurinn er
frá Póllandi og hefur alltaf komið
með stærsta hlaðborðið. Hátíðin er
styrkt af Uppbyggingasjóði og geta
þátttakendur fengið hráefniskostn-
að endurgreiddan, allt að 15 þús-
und krónur,“ segir Rebekka. Mark-
miðið með hátíðinni er að kynna
ólíka menningu fyrir öðrum íbúum
Snæfellsbæjar.
arg
Fjölmenn-
ingarhátíð
í Snæ-
fellsbæ
framundan
Hátíðleg pólsk börn á Fjölmenningarhátíð í fyrra. Ljósm. úr safn/af
Borgfirðingar vilja beisla vindorkuna
Grjótháls. Bærinn Grjót í Þverárhlíð fremst á mynd, en Baulan í bakgrunni.
Vegagerðin hefur, frá því þessi mynd var tekin, lagt af viðhald vegarins og er hann
nú ófær nema vel búnum jeppum. Ljósm. Mats Wibe Lund.