Skessuhorn - 16.10.2019, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019 21
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Auglýsing á breytingu
deiliskipulags í landi
Vatnaskógs
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum
þann 8. október 2019 að auglýsa breytingartillögu á
deiliskipulagi fyrir Vatnaskóg í Hvalfjarðarsveit sbr. 1.mgr.
43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða breytingu sem felur í sér að svæði sem er
skilgreint leiksvæði í gildandi deiliskipulagi verði breytt í
byggingarsvæði fyrir matskála og eldhús.
Heildar byggingarmagn á reit B13 er 393 m².
Deiliskipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins
www.hvalfjardarsveit.is.
Kynningarfundur verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar
föstudaginn 25. október frá kl 10:00–12:00.
Athugasemdum skal skilað fyrir 30. nóvember til skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes, eða á netfangið
skipulag@hvalfjardarsveit.is merkt ”Vatnaskógur”.
11.október 2019
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Hvalfjarðarsveitar
Íbúar Vesturlands
ATH..
Vetrardekkin komin á lager !!
Get tekið nánast öll dekk í umfelgun
og ballansseringu
Er með ný og nákvæm tæki
Tímapantaninr í síma 893-7616
Hjólbarðaverkstæðið í Nýja-Bæ Bæjars-
veit
Kveðja Kiddi Nýja-Bæ
Íbúafundur með forsvarsmönn-
um kanadíska fyrirtækisins Acadi-
an Seaplants var haldinn í Stykkis-
hólmi þriðjudaginn 8. október. Þar
var fyrirhuguð rannsónar-, vinnslu-
og afurðamiðstöð fyrirtækisins í
Hólminum til umræðu. Fundurinn
var afar vel sóttur, en nálægt hundr-
að manns fylltu sal Amtsbókasafns-
ins í Stykkishólmi.
Jean-Paul Deveau, forstjóri Aca-
dian Seaplants, fór yfir sögu fyrir-
tækisins og kynnti framtíðaráform
þess í Stykkishólmi, eins og þau
áform eru stödd á þessum fyrstu sti-
gum málsins. Ætlunin var að fá við-
brögð íbúa til að forsvarsmenn Aca-
dian Seaplants gætu haldið áfram
sinni vinnu að teknu tilliti til spur-
ninga þeirra og viðbragða. Staða
mála núna er sú að forsvarsmenn
fyrirtækisins eru að greina stað-
setningarmöguleika fyrir húsnæði
starfseminnar, innan þess svæðis
suðvestan flugvallarins sem skýrsla
ráðgjafanefndar lagði til. Nú er ve-
rið að skoða nákvæmlega hvar á því
svæði húskostur fyrirtækisins í Styk-
kishólmi yrði staðsettur. Fyrirtækið
hefur hug á að koma þar upp bryg-
gju, svo þangið þurfi ekki að flytja
með bílum að miðstöðinni. Sömu-
leiðis kom fram að rannsóknartey-
mi fyrirtækisins, bæði vísindamenn
og verkfræðingar, væru að kanna
aðstæður í Breiðafirði. Á næstu má-
nuðum kemur í ljós hver niðurstaða
þeirrar vinnu verður.
Spurður um störf reiknaði Jean-
Paul með því að um 30 störf yrðu
til á svæðinu; 20 í afurðamiðstöðin-
ni og 10 vettvangsstörf, eftir að fyr-
sta áfanga verkefnisins væri náð.
Sagt frá rannsóknum
Dr. Karl Gunnarsson frá Hafrann-
sóknarstofnun og Lilja Gunnars-
dóttir, doktorsnemi við Hafrann-
sóknarstofnun, héldu erindi á fund-
inum og sögðu frá sínum rann-
sóknum á þangi og þangtekju. Lilja
sagði frá doktorsverkefni sínu, sem
snýr að áhrifum þangsláttar á lífrík-
ið. Í máli hennar kom fram að ekk-
ert benti til neikvæðra áhrifa í þeim
efnum. Karl sagði frá því að áætlun
yfirvalda um nýtingu klóþangs væri
mjög varfærin, en Hafrannsóknar-
stofnun leggur til að ekki meira séu
nýtt meira en 4% af heildarmagni
klóþangs.
Finnur Árnason, framkvæmda-
stjóri Þörungaverksmiðjunnar á
Reykhólum, kvaddi sér hljóðs á
fundinum. Hann lýsti efasemdum
sínum um að bæði Þörungaverks-
miðjan hf. og nýtt fyrirtæki Acadi-
an Seaplants í Stykkishólmi hefðu
rými til að nýta þetta magn þangs
úr Breiðafirði. Karl vildi hins vegar
meina að það væri vel innan mar-
ka. Hann sagði jafnframt frá tvei-
mur aðferðum sem notaðar hafa
verið til að áætla magn klóþangs í
Breiðafirði. Gera þær báðar ráð fy-
rir yfir einni milljón tonna af þan-
gi í firðinum. Á fundinum kom sö-
muleiðis fram að Acadian Seaplants
áætlar að vinna allt að 20 þúsund
tonn af þangi á ári, sem er sambær-
ilegt magn og Þörungaverksmiðjan
hf. hefur forgang að um vinnslu
samkvæmt lögum.
Upplýsandi fundur
Jakob Björgvin Jakobsson, bæjar-
stjóri í Stykkishólmi, segir að fund-
urinn hafi verið mjög upplýsandi.
„Erindi Dr. Karls Gunnarssonar
um rannsóknir hans á klóþangi og
þekju þangs var fróðlegt, sem og
erindi Lilju Gunnarsdóttur dokt-
orsnema um áhrif þangtekju á líf-
ríkið. Þau komu á fundinn sem
sjálfstæðir vísindamenn og sérfræð-
ingar frá Hafrannsóknastofnun og
komu með óháða vísindalega nálg-
un á fundinn, svöruðu spurningum
um áhrif á lífríki og fleira. Það var
mjög ganglegt,“ segir Jakob í sam-
tali við Skessuhorn. „Af svörum
þeirra að dæma er sjálfbærni höfð
að leiðarljósi við ráðgjöf Hafrann-
sóknarstofnunar um heildartekju
klóþangs í Breiðafirði, en einnig er
mikilvægt að Hafrannsóknarstofn-
un haldi áfram að rannsaka lífríki
Breiðafjarðar og nýtingarmögu-
leika hafsins á öllum sviðum til að
tryggja sjálfbæra nýtingu á auðlind-
um hafsins,“ bætir Jakob við.
Hann segir einnig að spurt hafi
verið út í heitt vatn á fundinum.
„Það liggur fyrir að heita vatnið er
ákveðinn óvissuþáttur. Fyrirtækið
hyggst nýta m.a. heitt vatn sem or-
kugjafa til sinnar starfsemi. Það lig-
gur fyrir að hér er nægt heitt vatn
á sumrin fyrir starfsemi sem þes-
sa. Það er hins vegar ákveðin óvis-
sa hvort nægilegt magn af heitu
vatni sé á veturna og þá kemur til
skoðunar hvort fara þurfi í jarðhi-
taleit og boranir til að mæta þeirri
eftirspurn. Við þurfum að fá vissu
um það frá Veitum og Orkuveitun-
ni hvort fyrirtækið geti haldið starf-
semi sinni gangandi með heitu vat-
ni allan ársins hring,“ segir bæjar-
stjórinn.
kgk/ Ljósm. sá.
Jean-Paul Deveau, forstjóri Acadian Seaplants, greinir frá áformum fyrirtækisins.
Acadian Seaplants kynntu
áform sín í Stykkishólmi
Fundurinn var vel sóttur, en nálægt eitt hundrað manns fylltu sal Amtsbókasafnsins.