Skessuhorn - 16.10.2019, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 201922
Fjölmenni mætti að vanda í Morgun-
stund í Brekkubæjarskóla á Akranesi,
en fyrst slíkra gæðastunda á haustönn
var á fimmtudaginn í liðinni viku í
íþróttahúsinu. „Að venju var mikið
um dýrðir og fjöldi nemenda steig á
stokk. Áhorfendapallarnir voru þétt
setnir og bleikur litur var áberandi í
húsinu í tilefni af bleikum október,“
segir í frétt skólans. Fleiri myndir má
sjá á heimasíðu Brekkubæjarskóla á
brak.is mm/ Ljósm. Brekkubæjarskóli
Eftir að ný brú var reist yfir Hellu-
vað í Norðlingafljóti á Arnarvatns-
heiði fyrir ári er stefnt að um-
ferð í öll veiðivötn á heiðinni fari
um brúna og hætt verði akstri yfir
svokallað Úlfsvatnsvað. Til að svo
megi verða þarf að leggja ríflega
kílómeters langan vegslóða norð-
an við fljótið og tengja umferð nú-
verandi vegslóða sem liggur m.a. að
Úlfsvatni og Arnarvatni litla. Ósk-
aði Veiðifélag Arnarvatnsheiðar eft-
ir leyfi Borgarbyggðar til að leggja
slóðann. Hluti veiðifélagsmanna
taldi þó að fara ætti aðra leið og
nýta annan slóða ofar í heiðinni.
Sveitarstjórn hefur nú hafnað
því að gefa út framkvæmdaleyfi að
svo stöddu. Á fundi sínum síðast-
liðinn fimmtudag fól hún skipu-
lagsfulltrúa sveitarfélagsins að leita
umsagnar Umhverfisstofnunar
og Náttúrufræðistofnunar Íslands
vegna umsóknar um lagningu veg-
slóðans, áður en framkvæmdaleyfi
verður gefið út. Einnig samþykkti
sveitarstjórn að framkvæmdin yrði
tilkynnt til Skipulagsstofnunar áður
en framkvæmdaleyfi yrði veitt sam-
kvæmt tillögu skipulags- og bygg-
ingarnefndar frá 7. október sl. Jafn-
framt fól sveitarstjórn skipulagsfull-
trúa að leggja mat á hvort vinna eigi
skipulagstillögu fyrir svæðið í heild
sinni og leggja fyrir sveitarstjórn.
mm
Nafni Gámaþjónustunnar var
breytt mánudaginn 7. október síð-
astliðinn. Gengur fyrirtækið nú
undir nafninu Terra. „Terra er lat-
neskt heiti jarðargyðjunnar og eitt
af nöfnum plánetunnar sem er
heimkynni okkar allra og vel á við,
enda snýr allt okkar starf að bættri
umgengni við jörðina,“ segir um
nafnabreytinguna á vef fyrirtækis-
ins. Samhliða nýju nafni var nýtt
merki félagsins kynnt til sögunnar.
„Það byggir á hringformi sem vís-
ar til jarðarinnar, en einnig birtist í
merkinu spírað fræ, tákn sjálfbærni
og endurnýjunar til framtíðar.“
Terra skilgreinir sig sem fyrir-
tæki í umhverfisþjónustu og býður
sem fyrr upp á lausnir til að safna
og flokka úrgang og endurvinnslu-
efni auk þess að koma þeim efnum
í réttan farveg. Með viðskiptavin-
um er unnið að því að flokka sem
mest og jafnframt hvetur fyrirtækið
til minni notkunar umbúða og efna
sem þarfnast sérstakrar meðhöndl-
unar. Markmið Terra er að skilja
ekkert eftir, að því er fram kemur á
vefsíðu fyrirtækisins.
kgk/ Ljósm. Terra.
Starfsmenntavikan er nú haldin
í fjórða sinn undir kjörorðunum;
„Uppgötvaðu hæfileika þína“. Lilja
Alfreðsdóttir mennta- og menn-
ingarmálaráðherra opnaði dag-
skrá hennar á mánudag: „Vel þjálf-
að og menntað starfsfólk, og frum-
kvæði þess og athafnavilji, eflir
vinnumarkaðinn og eykur sveigjan-
leika hans. Við þurfum bæði hug-
vit og verkvit til þess að nýsköp-
un blómstri í okkar samfélagi og til
þess að mæta þeim áskorunum sem
við stöndum frammi fyrir sem sam-
félag. Það liggja mikil sóknarfæri í
að efla iðn- og starfsmenntun hér á
landi og það er eitt af forgangsmál-
um okkar,“ sagði Lilja.
Af sama tilefni opnaði ráðherra
vefinn Nám og störf, þar sem
nálgast má á einum stað upplýs-
ingar um námskosti á sviði starfs-
menntunar, námssamninga og
starfskynningar og fleira gagnlegt
fyrir þá sem vilja kynna sér starfs-
menntun. Síðan inniheldur einnig
efni fyrir náms- og starfsráðgjafa
og kennara.
Evrópsk starfsmenntavika miðar
að því að kynna og efla starfsnám
og þjálfun og eru skóla og aðrar
stofnanir sem sinna starfsmenntun
hvattar til þess að nýta það tæki-
færi til þess að kynna námsfram-
boð sitt og nýjungar.
-fréttatilkynning
Uppgötvaðu hæfileika þína á Starfsmenntaviku
Sveitarstjórn heimilar ekki lagn-
ingu vegslóða á Arnarvatnsheiði
Terra er nýtt nafn Gámaþjónustunnar
Bleikt þema á
Morgunstund í
Brekkubæjarskóla