Skessuhorn - 16.10.2019, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019 23
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Þriðjudagurinn 22. október 2019
kl. 20 í Bókhlöðu Snorrastofu
Fjallað verður um reynslu af
notkun persónulegra minninga
í vísindarannsóknum, ólíkar
tegundir þeirra, kosti og galla.
Verið velkomin
Kaffiveitingar og umræður
Aðgangur kr. 500
Athugið breyttan tíma
á fyrirlestrum vetrarins
Sjálfsbókmenntir í sögulegu ljósi
– stigmögnun sjálfstjáningar
Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í menningarsögu
við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands
Hrönn Jónsdóttir var sæmd gull-
merki Ungmennafélags Íslands á
sambandsþingi sem haldið var um
síðustu helgi, sem og Örn Guðna-
son. Bæði sátu þau í stjórn UMFÍ,
Hrönn sem ritari en Örn vara-
formaður og hvorugt þeirra gaf
kost á sér til áframhaldandi setu á
þinginu.
Hrönn er 33 ára gömul og með-
al þeirra yngstu sem hafa hlotið
gullmerki UMFÍ í rúmlega 110
ára sögu hreyfingarinnar. Hún
hefur setið í stjórn UMFÍ undan-
farin sex ár, fyrst sem meðstjór-
nandi 2013-2015 og síðan sem rit-
ari 2015-2019. Hrönn er frá Lundi
í Lundarreykjadal, hefur tekið virk-
an þátt í starfi Ungmennasambands
Borgarfjarðar í gegnum tíðina og
var m.a. framkvæmdastjóri UMSB
um tíma.
Örn hefur verið varaformað-
ur UMFÍ undanfarin fjögur ár.
Hann var áður ritari stjórnar frá
2007-2011 og aftur 2013-2015.
Samtals hefur hann því verið tíu ár
í stjórn. Þá var hann varaformað-
ur HSK, framkvæmdastjóri Ung-
mennafélags Selfoss 2006-2013 og
framkvæmdastjóri HSS 1982-1983,
auk þess að hafa setið í fjölda fram-
kvæmdanefnda landsmóta og ann-
arra nefnda fyrir hreyfinguna.
Hann er alinn upp á Hvolsvelli
og var formaður Umf. Baldurs frá
1978-2980. Hann situr í stjórn Ís-
lenskrar getspár sf. og í Íþrótta-
nefnd ríkisins fyrir hönd UMFÍ.
kgk/ Ljósm. UMFÍ.
Verkefnið Jól í skókassa á vegum
KFUM og KFUK á Íslandi felst í
því að gleðja börn í Úkraínu sem
lifa við bágar aðstæður með jóla-
gjöfum. Gjafirnar eru settar í skó-
kassa og til að öll börnin fái svip-
aðar jólagjafir eru ákveðnir hlut-
ir sem mælt er með að fari í hvern
kassa. Gjafirnar eru sendar til Úk-
raínu en þar er atvinnuleysi mik-
ið og margir sem búa við slæmar
aðstæður og kröpp kjör. Að því er
fram kemur á heimasíðu KFUM
og KFUK eru íslensku skókössun-
um meðal annars dreift á munað-
arleysingjaheimili, barnaspítala og
til barna einstæðra mæðra sem búa
við mikla fátækt.
Allir sem vilja geta tekið þátt í
verkefninu og hafa undirtektirn-
ar verið frábærar frá því fyrst var
farið af stað með verkefnið hér á
landi árið 2004. Tekið verður á
móti skókössum í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg 28 í Reykja-
vík alla virka daga milli klukk-
an 9:00 og 17:00 til 9. nóvember
næstkomandi. Fyrir þá sem búa á
landsbyggðinni er hægt að nálg-
ast upplýsingar um móttökustaði
á heimasíðu KFUM og KFUK
undir „Móttökustaðir“. Þá er þar
einnig að finna allar upplýsingar
um hvernig skuli ganga frá kössun-
um og hvað skuli setja í þá. Mælt
er með vettlingum, sokkum, húf-
um, treflum, nærfötum, peysum,
bolum, tannbursta, tannkremi og
fleiru.
Eftirtaldir eru mót-
tökustaðir KFUM og K
á Vesturlandi:
Akranes:
28. október – 1. nóvember verð-
ur tekið á móti skókössum í Safn-
aðarheimili Akraneskirkju á milli
klukkan 10 – 16. Tengiliður er
Axel Gústafsson, sem einnig tek-
ur við gjöfunum. Hann hefur síma
896-1979.
Grundarfjörður:
Tekið verður á móti skókössum í
Safnaðarheimili Grundarfjarðar-
kirkju. Tengiliðir er Anna Husga-
ard Andreasen í síma: 663-0159
og Salbjörg Sigríður Nóadóttir í
síma: 896-6650.
Stykkishólmur:
Tekið verður á móti skókössum í
Stykkishólmskirkju mánudaginn 4.
nóvember frá kl. 16 – 18. Tengilið-
ir eru Ásdís Herrý Ásmundsdóttir í
síma: 866-1932 og Kristín Rós Jó-
hannesdóttir í síma: 893-1558.
arg/ Ljósm. KFUM og KFUK.
Jól í skókassa fyrir börn í Úkraínu
Ánægð börn með gjafir sem þau fengu um síðustu jól.
Hrönn og
Örn sæmd
gullmerki
UMFÍ
Haukur Valtýsson formaður UMFÍ og Hrönn Jónsdóttir sem hlaut gullmerki
hreyfingarinnar.
Starf aðalbókara laust
til umsóknar
Grundarfjarðarbær auglýsir starf aðalbókara laust til
umsóknar. Aðalbókari hefur m.a. umsjón, eftirlit og ber
ábyrgð á daglegum færslum bókhalds.
Í boði er spennandi starf fyrir einstakling sem vill vinna
sjálfstætt og hafa tækifæri til þróunar í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 30. október nk.
Sjá nánari lýsingu á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar
www.grundarfjordur.is
Grundarfjarðarbær
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9