Skessuhorn - 16.10.2019, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2019 25
Hjá Ráðgjafarmiðstöð landbún-
aðarins er 44 manna hópur starfs-
manna með breiða þekkingu á
landbúnaði og með aðsetur á 13
starfsstöðvum um landið. RML hóf
starfsemi árið 2013 og er stefnan að
veita metnaðarfulla þjónustu meðal
annars á sviði landbúnaðar og land-
nytja. Talsverðar breytingar hafa að
undanförnu verið kynntar á starfs-
mannahaldi. Sigurður Guðmunds-
son hefur verið ráðinn sem verk-
efnisstjóri fjármála hjá RML með
aðsetur á Hvanneyri. Berglind
Ósk Alfreðsdóttir var nýverið ráð-
in í starf ráðunautar á sviði lofts-
lags- og umhverfismála og verður
starfsstöð hennar í Reykjavík. Þá
hefur Cornelis Aart Meijles hafið
störf hjá RML. Hann mun starfa
sem ráðunautur á sviði loftslags- og
umhverfismála. Hann er búsettur
í Hollandi en verður með viðveru
á Íslandi og starfsstöð hans verð-
ur þá á Hvanneyri. Loks var Linda
Margrét Gunnarsdóttir ráðin í starf
ráðunautar í nautgriparækt og verð-
ur starfsstöð hennar á Akureyri.
Á starfsstöðinni á Hvanneyri eru
auk þeirra Sigurðar og Cornelíus-
ar þau Árni B. Bragason ráðunaut-
ur á búfjárræktar- og þjónustusviði,
Borgar Páll Bragason fagstjóri,
Eyjólfur Ingvi Bjarnason ráðunaut-
ur á búfjárræktar- og þjónustusviði,
Helga Halldórsdóttir verkefnis-
stjóri mannauðs og tækni, Karvel
L. Karvelsson framkvæmdastjóri,
Lárus G. Birgisson ráðunautur á
búfjárræktar- og þjónustusviði,
Oddný K. Guðmundsdóttir á skrif-
stofu og Snorri Þorsteinsson ráðu-
nautur á rekstrar- og umhverfis-
sviði.
mm/ Ljósm. RML.
Árlegur haustfagnaður Félags
Sauðfjárbænda í Dalasýslu fer fram
helgina 25. til 27. október næst-
komandi. Um er að ræða upp-
skeruhátíð sauðfjárbænda í Döl-
um. Nokkur breyting verður á há-
tíðinni í ár þar sem ákveðið var að
hvíla Íslandsmeistaramótið í rún-
ingi en þess í stað verður meiri
áhersla lögð á hrútasýningarn-
ar. „Það eru nokkrar ástæður fyr-
ir því að stjórnin tók þá ákvörðun
að gera breytingu á hátíðinni. Í
fyrsta lagi fylgir þessum undirbún-
ingi mikið álag. Í öðru lagi fannst
okkur Íslandsmeistaramótið í rún-
ingi vera orðið heldur staðnað hjá
okkur og að sumra mati ekki nógu
áhorfendavænt en félagið vinnur
að því að finna þessari keppni ann-
an farveg og hvort hann verður hér
eða einhvers staðar annars staðar á
landinu verður tíminn að leiða í ljós.
Þar sem dagskráin sem fram fór í
Reiðhöllinni í Búðardal var ekki að
skila félaginu neinu nema kostnaði
ákváðum við að létta aðeins álagið á
okkur og sleppa öllu þar í ár,“ seg-
ir Anna Berglind Halldórsdóttir í
Magnússkógum, formaður Félags
Sauðfjárbænda í Dalasýslu, í sam-
tali við Skessuhorn.
Gera hútasýningarnar
að meiri viðburði
Hátíðin hefst á föstudagskvöld-
inu klukkan sex með hrútasýn-
ingu í Suðurhólfinu. „Sú sýning
verður haldin á Stóra-Vatnshorni
í Haukadal í ár og við ætlum að
bjóða fyrirtækjum sem selja land-
búnaðartengdar vörur að koma og
hitta bændur og kynna fyrir þeim
það sem þeir eru að bjóða upp á.
Þetta er ekki hugsað sem vélasýn-
ing heldur meira bara sem tækifæri
til að koma og spjalla, dreifa bækl-
ingum og jafnvel bjóða upp á ein-
hver tilboð. Hugmyndin er nefni-
lega að hrútasýningin verði að-
eins meiri viðburður en áður,“ seg-
ir Anna. Laugardagurinn byrjar svo
á hrúasýningu í Norðurhólfinu á
Breiðabólsstað á Fellsströnd og
hefst hún klukkan ellefu. „Þar ætl-
um við að bjóða upp á markað, eins
og áður hefur verið í reiðhöllinni.
Á markaðinum getur fólk sem er
að framleiða og skapa vörur kom-
ið og selt sinn varning. Við hugsum
dagskránna þar meira fyrir hand-
verk og matvöru heldur en vélasýn-
ingu,“ útskýrir Anna.
Sölustía fyrir hrúta
Sú nýjung verður í ár að sölustí-
ur verða settar upp á hrútasýning-
unum þar sem bændur geta kom-
ið með hrúta til að selja. „Bænd-
ur eru oft að leita að hrútum en
vita kannski ekki hvert þeir eiga að
leita svo þetta er flott tækifæri fyr-
ir viðskipti milli bænda. Svo semur
kaupandinn bara við eiganda hrúts-
ins um verð á staðnum. Ef fleiri en
einn bóndi hefur áhuga á hrút er
eigandinn vissulega kominn í góða
stöðu,“ segir Anna. Fram til þessa
hafa verðlaunaafhendingar farið
fram í Dalabúð en í ár verður sú
breyting að verðlaun verða afhent
í fjárhúsunum á Breiðabólsstað að
hrútasýningu lokinni. „Við mun-
um veita verðlaun fyrir bestu hrút-
ana í flokki hyrndra, kollóttra og
mislitra/ferhyrndra hrúta. Einnig
verða veitt verðlaun fyrir bestu 5
vetra ærnar, bestu lambgimbrarn-
ar og síðast en ekki síst veitum
við verðlaun fyrir bestu ljósmynd-
ina, en þemað í ár er „Börn í bú-
skap“. Vilji menn senda inn ljós-
mynd þá tekur Tóta á Kjarlaksvöll-
um við myndum á netfangið thor-
unn.th@hotmail.com. Við viljum fá
sem flesta til að kíkja, þetta er fyr-
ir alla. Svona hrútasýningar eru góð
fjölskylduskemmtun svo við viljum
endilega að fólk mæti með börnin
sín, fái sér kjötsúpu eða pylsu og
hafi gaman. Þetta er ekki bara fyrir
bændur,“ segir Anna. „Þetta er flott
tækifæri fyrir fólk að hittast, koma
saman og sýna sig og sjá aðra, hvort
sem þeir hafa áhuga á hrútum eða
ekki. Þetta er fyrst og fremst menn-
ingarviðburður,“ bætir hún við.
Sviðaveislan
á sínum stað
Á laugardagskvöldinu verður glæsi-
leg dagskrá í Dalabúð þar sem efnt
verður til sviðaveislu og hagyrð-
ingakvölds. „Frá því fyrsta sviða-
veislan var árið 2008 hefur alltaf ver-
ið troðfullt. Við búumst við að geta
tekið á móti 320 manns og fólk þarf
að panta sæti,“ segir Anna. Jón Ingi
í Þurranesi tekur á móti pöntun-
um í tölvupósti á netfangið thurra-
nes@gmail.com. Fjórir hagyrðing-
ar koma fram í Dalabúð, þeir Sig-
urjón Valdimar Jónsson frá Skolla-
gróf, Helgi Björnsson frá Snartar-
stöðum, Þórdís Sigurbjörnsdótt-
ir frá Hrísum og Þórður Brynjars-
son frá Refsstöðum. Veislustjórn
verður í höndum Sveinbjarnar Eyj-
ólfssonar. Að veislu lokinni verður
dansleikur með Greifunum. „Hægt
verður að kaupa miða á ballið við
inngangin ef það eru einhverjir sem
ekki hafa áhuga á sviðum, kveðskap
og léttu gríni,“ segir Anna og bætir
því við að hún búist við góðri helgi
í Dölunum þann 25. til 27. október
sem enginn ætti að láta fram hjá sér
fara.
arg
Baldur Örn Samúelsson við heysýnatöku úr rúllu.
Breytingar í starfsmannahaldi á RML
Hjalti Sigurðsson við kúadóma.
Hér er Jón Ingi Ólafsson að stýra hrútauppboði á hrútasýningu á Haustfagnaði á síðasta ári. Ljósm. úr safni/sla.
Haustfagnaður í Dölum framundan