Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Sep 2019, Page 45

Læknablaðið - Sep 2019, Page 45
LÆKNAblaðið 2019/105 405 fundarherbergi á fjórðu hæð Skaftahlíðar mánudaginn 26. ágúst. „Seinni bylgja breytinga er skipulag sem á að fylgja nýju skipuriti. Þar er ætl- unin að setja inn forstöðuaðila í kringum kjarna, sem langflestir eru klínískir. Það verkefni tekur veturinn.“ Horfir til hugmynda McKinsey Við gerð nýja skipuritsins horfir Páll með- al annars til McKinsey og vinnu þess árið 2013. Þetta alþjóðlega ráðgjafafyrirtæki hafi verið komið með tillögu að skipuriti sem hann hafi litið til þegar hann tók við sem forstjóri árið 2013. „Þær snérust um að búa til þjónustu- línur og fylgja ferli sjúklingsins í gegnum spítalann. Mjög róttækar breytingar voru lagðar til og mér var það alveg ljóst á þeim tímapunkti að þá þurfti spítalinn frekar súrefnisgrímu en fyrirmæli um annað langhlaup, maraþon, í skipulagi spítalans,“ segir hann og að ráðist hafi verið í minni breytingar þar til betra færi gæfist. Hann segir að helsti galli núverandi skipurits með árunum hafi verið að það endurspeglaði ekki þjónustu sjúklinga. Togstreita hafi getað myndast milli sviða á vissum stöðum þar sem sjúklingar færu oft á milli. Páll segir einnig mikinn styrk í flötu skipuriti. „En fyrr má nú rota en dauðrota,“ bætir hann við og ætlar að setja inn nýtt lag forstöðuaðila, þar sem þörf er á, um leið og hann fækkar fram- kvæmdastjórum. „Við erum með 6.000 manns í vinnu en í raun tvö stjórnunarlög, framlínustjórn- endur, það er yfirlækna og deildarstjóra og síðan framkvæmdastjóra og loks forstjóra. Samsvarandi skipurit hjá Reykjavíkur- borg eru sjö til níu lög,“ segir hann. „Flöt skipurit henta vel þekkingarvinnu en hins vegar verður spenna þegar stjórnunar- spönnin verði of mikil.“ Tekur á of flötu skipuriti Páll bendir á að spítalinn sé með framlínu- stjórnendur sem þar sem mest sé séu með hátt í 200 undirmenn. „Núverandi fram- kvæmdastjórar eru síðan með allt að 50 undirmenn, yfirlækna og deildarstjóra. Því fylgir mikið álag. Ég vil bæta við og tel þörf á forstöðumönnum sem koma á milli fram- kvæmdastjóra og framlínustjórnenda,“ segir hann. „Við erum að færa aukna ábyrgð á klíníska stjórnendur og hafa smærri fram- kvæmdastjórn í stefnumótum og heildar- verkefnum spítalans í samvinnu við aðra þætti heilbrigðisþjónustunnar en ekki í stjórnun smáatriða frá degi til dags.“ Páll segir að með breyttu fyrirkomu- lagi verði einingum í auknum mæli raðað saman sem eigi að vinna saman. „Það má segja að tilfinning um síló og að skipuritið hafi ekki alveg fallið að þörfum sjúklinga auk þess sem að langt var liðið frá síðustu breytingum hafi ráðið för.“ Þá sé nýi með- ferðar- og rannsóknarkjarninn einn lykil- þátta breytinganna. „Hönnun bygginganna tekur ekki mið af því hvernig við vinnum núna heldur lagðist fagfólk yfir hvernig best væri að vinna og hannaði í kringum þá sýn. Það gerir þá kröfu að við vinnum öðruvísi en við gerum í dag.“ Breytingarnar nú taki mið af því. Páll segir að hann sjái fyrir sér verulegt hagræði þegar nýi spítalinn verði kominn Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans ætlar að endurnýja framkvæmdastjórn spítalans og skera niður í sjö úr þrettán. Hann er nýfluttur í nýtt skrifstofuhúsnæði þar sem hann sjálfur hefur enga skrifstofu heldur vinnur í verkefnamiðuðu vinnurými. Mynd/gag

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.