Fréttablaðið - 05.03.2020, Qupperneq 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —5 5 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 5 . M A R S 2 0 2 0
UTANRÍKISMÁL „Framferði nýju
valdhafanna í Póllandi hefur
valdið okkur í Norðurlandaráði og
mörgum öðrum áhyggjum á síðustu
árum,“ segir Silja Dögg Gunnars-
dóttir, forseti Norðurlandaráðs, í
grein í Fréttablaðinu í dag.
Silja heimsækir pólska þingið
ásamt sendinefnd 9.-10. mars. Þjóð-
ernis- og íhaldsflokkurinn Lög og
réttur náði meirihluta í kosningum
í október. Segir Silja að breytingar
á dómskerfinu, afskipti af f jöl-
miðlum og afstaða til hinsegin fólks
séu meðal mála sem séu á skjön við
hugsjónir f lestra norrænna stjórn-
málamanna. – atv / sjá síðu 16
Segir Pólland
valda áhyggjum
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þing-
maður og forseti Norðurlandaráðs.
COVID-19 Rúm 44 prósent þeirra
sem taka afstöðu segja að útbreiðsla
kórónafaraldursins hafi mjög eða
frekar mikil áhrif á ferðalög sín til
útlanda á næstu mánuðum. Þetta
sýna niðurstöður nýrrar könnunar
sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir
Fréttablaðið.
Tæp 18 prósent segja að útbreiðsla
veirunnar hafi hvorki mikil né lítil
áhrif á ferðaplönin og tæp 38 pró-
sent telja útbreiðsluna hafa mjög
eða frekar lítil áhrif.
Frá því að fyrsta tilfelli um smit
var staðfest hér síðastliðinn föstu-
dag, hefur þeim fjölgað jafnt og þétt.
Í gær voru tilfellin orðin tuttugu
og sex, en allir þeir einstaklingar
smituðust erlendis.
Embætti landlæknis ræður fólki
frá ferðalögum til svæða sem skil-
greind eru með mikla smithættu.
Þessi svæði eru Kína, Ítalía, Suður-
Kórea og Íran. Þá eru einstaklingar
sem koma frá þessum svæðum
beðnir um að vera í sóttkví í 14 daga
frá heimkomu.
Fleiri konur en karlar segja
útbreiðslu kórónaveirunnar hafa
áhrif á ferðalög. Þannig segja rúm
48 prósent kvenna útbreiðsluna
hafa mikil áhrif, en rúmt 41 pró-
sent karla. Tæp 40 prósent karla
segja útbreiðsluna hafa lítil áhrif á
ferðalög, en tæp 36 prósent kvenna.
Hér er aðeins miðað við þá sem
tóku afstöðu, en tæp 22 prósent
sögðust engin plön hafa um ferða-
lög.
Aldurshópurinn 65 ára og eldri
er mun líklegri til að svara því að
útbreiðsla veirunnar hafi áhrif á
ferðalög, en þeir sem yngri eru.
Tæp 52 prósent í þessum aldurs-
hópi segja útbreiðslu veirunnar
hafa mikil áhrif á ferðalög en tæp 32
Fjölmargir hika við utanferðir
Tæpur helmingur þeirra sem taka afstöðu í nýrri könnun segir að útbreiðsla kórónafaraldursins muni
hafa mikil áhrif á ferðalög til útlanda á næstu mánuðum. Enn þá er allt smit hérlendis rakið til útlanda.
Loft var lævi blandið þegar þátttakendur í útskriftarsýningu hársnyrtinema við Tækniskólann kepptust við að leggja lokahönd á verk sín. Sýningin fór fram í Gamla bíói í gærkvöld og
þegar ljósmyndari Fréttablaðsins leit þar við fyrir sýningu var handagangur í öskjunni. Hársprey og litabrúsar voru á lofti og allt kapp lagt á að útkoman yrði sem best. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hversu mikil eða lítil áhrif telur þú
útbreiðslu COVID-19 hafa á ferða-
lög þín til útlanda næstu mánuði?
✿ Áhrif á ferðalög fólks
prósent lítil áhrif. Minnstra áhrifa
á ferðalög gætir í aldurshópnum
25-34 ára. Þar segja rúm 47 prósent
að veiran hafi lítil áhrif á ferðalög
en rúm 38 prósent að þau hafi mikil
áhrif.
Könnun Zenter, sem er netkönn-
un, var gerð á tímabilinu 28. febrúar
– 4. mars. Í úrtaki voru 2.300 manns
18 ára og eldri en svarhlutfall var 56
prósent. Gögnin voru vigtuð eftir
kyni, aldri og búsetu. – sar / sjá síðu 4
44,4%
17,8%
37,8%
n Mikil áhrif n Hvorki né
n Lítil áhrif
52%
í aldurshópnum 65 ára og
eldri segja COVID-19 hafa
mikil áhrif á ferðalög.
Nýr
réttur!
MEÐ BÉARNAISE-SÓSU OG KARTÖFLUGRATÍNI
Lambasteik
Heit máltíð,
tilbúin á 12 mín.
Hægeldun tryggir að vítamín
og næringarefni halda sér.
Íslensk framleiðsla, íslenskt
kjöt, án allra rotvarnarefna.