Fréttablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 8
FILIPPSEYJAR Rodrigo Duterte, for-
seti Filippseyja, hefur ákveðið af
aflétta styrkja- og lánabanni gegn
Íslandi og öðrum löndum sem
studdu tillögu Íslands í Mannrétt-
indaráði Sameinuðu þjóðanna í júlí
síðastliðnum. Mega filippseyskar
stofnanir nú taka við styrkjum frá
þessum ríkjum.
Alls studdu 18 ríki íslensku tillög-
una um rannsókn á mannréttinda-
brotum í tengslum við fíkniefna-
stríð Duterte, þar á meðal Bretland,
Danmörk, Spánn, Ítalía, Ástralía,
Argentína, Mexíkó og Úkraína.
Salvador Medialdea, aðalritari
forsetans, sá um að koma banninu
á 27. ágúst og 27. febrúar undir-
ritaði hann skjal til að aflétta því. Í
skjalinu segir Medialdea að það taki
gildi samstundis, en tekið er fram
að öllum lögum verði að fylgja og
skrifleg leyfi að fást, áður en gengið
sé til viðræðna við ríkin átján.
Þegar banninu var komið á til-
kynnti Duterte að það myndi
ekki hafa áhrif á efnahag lands-
ins. Hvorki hann, né neinn af ráð-
herrum hans, hefur gefið skýringu
á af hverju banninu er af létt. Lík-
legast er þó að það tengist versnandi
efnahag landsins. Stór alþjóðleg
fyrirtæki hafa verið að flýja landið,
meðal annars vegna hótana frá
Duterte sjálfum. Verðbólga eykst
hratt og afnám innf lutningshafta
veldur því að innlendir hrísgrjóna-
bændur geta ekki keppt við innflutt
grjón. Fátækt í landinu hefur auk-
ist um 12 prósent á undanförnum
mánuðum og hefur aldrei mælst
hærri en nú, eða 54 prósent. – khg
Duterte leyfir lán og styrki á nýjan leik
Efnahagur Filippseyja fer hratt versnandi og fyrirtæki flýja. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Café
Komdu í kaff i
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Þú finnur allt
á einum stað
í öllum okkar
verslunum!
Mmm ...
bröns!
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
ÁSTRALÍA Lögregla í borginni Para-
matta í Ástralíu þurfti að skerast í
leikinn þar sem kona og karl tókust
á í gær um salernispappír í versl-
uninni Woolworths. Var konan
vopnuð hnífi samkvæmt Daily Mail
og mættu sex lögreglumenn á vett-
vang.
Af ótta við áhrif kórónaveirunnar
munu Ástralir nú vera í óðaönn að
tæma hillur verslana af ýmsum
varningi og þá meðal annars sal-
ernispappír. Stórmarkaðir hafa sett
strangar takmarkanir, samkvæmt
Daily Mail, um hversu mikið af slík-
um pappír hver og einn má kaupa.
Sjónvarpsfréttamaður á Sky
News í Ástralíu biðlaði til landa
sinna að sýna stillingu. „Kóróna-
veiran hefur ekkert að gera með það
hvort þú þarft salernispappír. Að ég
tali nú ekki um heilu kerru-farmana
og full skott,“ sagði Paul Murray á
Sky News. – gar
Dró upp hníf í slag um klósettpappír
Paul Murray hjá Sky News.
DÓMSMÁL Um er að ræða hús sem
stendur nærri Lucca í Toscana-
héraði á Ítalíu. Það ber að afhenda
þrotabúinu. Að auki ber að greiða
nærri 87,5 milljónir til búsins vegna
húseignar á Arnarnesi í Garðabæ og
andvirði Mercedes Benz bifreiðar,
auk dráttarvaxta frá ársbyrjun
2019.
Skömmu fyrir úrskurð um gjald-
þrotaskipti á búi Karls árið 2017,
afsalaði hann fasteigninni á Ítalíu,
húsinu á Arnarnesi og bifreiðinni ,
til félags sem er í eigu sonar hans.
Í dóminum kemur fram að Faxar
ehf., félagið sem um ræðir, hafi áður
verið í eigu Karls.
Um mál er að ræða þar sem
skiptastjóri í búi Karls krafðist rift-
unar þessara yfirfærslna, þar sem
þær hefðu orðið til þess að rýra
möguleika kröfuhafa á að fá fulln-
ustu krafna sinna.
Í málinu taldi dómarinn sannað
að litlar sem engar greiðslur hefðu
komið fyrir þessar eignir við yfir-
færsluna og þær væru því riftan-
legar, með vísan til heimildar í
gjaldþrotaskiptalögum.
Varðandi eignina á Ítalíu, taldi
dómurinn sterkar vísbendingar
um að sala hennar hafi verið til
málamynda, þar sem leigutekjur
af eigninni hefðu áfram runnið til
Karls eftir söluna árið 2017. Varð
niðurstaðan sem áður segir, að
afhenda beri umráð eignarinnar til
þrotabúsins að viðlögðum dagsekt-
um sem nema 150 þúsund krónum
sem byrja að telja þrjátíu dögum frá
dómsuppsögu.
Hvað eignina á Arnarnesi varðar
taldi dómurinn ekki sýnt fram á
að greiðslur fyrir hana hefðu verið
inntar af hendi. Um gjafagerning
hefði verið að ræða sem væri
riftanlegur og bæri því að greiða
þrotabúinu tæplega 80 milljónir
þess vegna.
Að síðustu var fallist á með
þrotabúinu, að andvirði Mercedes
Bens bifreiðar verði skilað til bús-
ins. Lagt var til grundvallar verð-
mæti sambærilegrar bifreiðar á
þeim tíma sem viðskiptin áttu sér
stað eða tæplega átta millljónir.
Karl var umsvifamikill fjárfestir
á árunum fyrir hrun og átti hluti í
fjölda fyrirtækja.
Eiga að afhenda hús á
Ítalíu og greiða bætur
Skila ber eignum sem áður voru í eigu Karls Wernerssonar til þrotabús hans.
Þetta er niðurstaða dóms Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp í
gær. Sannað þótti að litlar sem engar greiðslur hefðu komið fyrir eignirnar.
Karl Wernersson var umsvifamikill fjárfestir fyrir hrun og átti í fjölda fyrir-
tækja. Félag í eigu sonar Karls þarf nú að skila eignum til þrotabús hans.
5 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð