Fréttablaðið - 05.03.2020, Page 14
Einhver stórkostlegasta náttúruperla á suð-vesturhorni landsins er svæðið í kringum Hagavatn, suðaustur af Langjökli, ekki langt frá Gullfossi. Þarna ágirnast orkufyrirtæki jökulvatn sem rennur úr hopandi Eystri-Hagafellsjökli og vilja byggja uppistöðulón,
vegi, veituskurð og rafmagnslínur. Slík framkvæmd
myndi rústa þessum einstöku víðernum sem skarta
einhverri tilkomumestu móbergstindakeðju á Íslandi,
Jarlhettum. Þarna er ekki mikill gróður, en fjölbreytt
litaspjald Hettanna og eyðisandanna umhverfis þær
bætir upp gróðurleysið líkt og hvítur jökullinn og
snotur blágræn jökulvötn í Jarlhettudal.
Umhverfi Hagavatns, og þá sérstaklega Jarlhetturnar
tuttugu, er einstakt á heimsvísu og minnir óneitan-
lega á Hringadróttinssögu. Margir Íslendingar hafa
ekki áttað sig á þeim auðæfum sem fólgin eru í náttúru
landsins og taka henni sem sjálfsögðum hlut. En þarna
á máltækið glöggt er gests augað við því þarna hafa
Hollywood-kvikmyndir verið teknar upp, til dæmis
stórmyndin Oblivion með Tom Cruise.
Hagavatn er um 5 ferkílómetrar, aðeins 60 m djúpt
og er í tæplega 440 m hæð. Í botni þess er mikill aur
og vatnið dökkgrátt af fíngerðum jökulleir. Nokkrum
sinnum hefur hlaupið úr vatninu á sögulegum tíma og
því fylgt flóð sunnar í Biskupstungum. Á tímabili voru
uppi áform hjá Landgræðslu ríkisins um að stífla vatnið
við útfallið og stækka vatnið þannig þrefalt. Með þessu
átti að stöðva áfok frá vatnsbökkum sem talið var ógna
gróðri á afréttum Biskupstungna. Sem betur fer voru
þessi áform blásin af þegar ljóst var að vatnsyfirborðið
með virkjun mundi sveiflast og áfokið aukast.
Umhverfis Hagavatn bjóðast óteljandi gönguleiðir
en skammt frá vatninu er skáli Ferðafélags Íslands með
ágætu tjaldstæði. Gaman er að ganga að Nýjafossi sem
leysti af eldra útfall Hagavatns, Leynifoss, eftir mikið
jökulhlaup 1939. Einstakt er að fylgjast með jökul-
vatninu göslast í gegnum þröngt útfallið en árið 2006
útbjó Ferðafélagið brú yfir það nokkru neðar. Enn
skemmtilegri ganga liggur inn Jarlhettudal meðfram
Jarlhettukvísl. Þarna sjást Jarlhetturnar í návígi en líka
Eystri-Hagafellsjökull og á milli þeirra sandar með jök-
ulsorfnu grjóti. Þarna verður að gæta sín á aurbleytu en
annars er hækkun á þessari gönguleið óveruleg og hún
flestum fær.
Landslagið er dulúðugt og lætur engan
ósnortinn, jafnvel þótt ekki njóti sólar.
Vonandi sleppur Hagavatn við fallöxi
virkjanaframkvæmda en vatnið er eins
og höfuð sem á að vera áfast fallegum
líkama Jarlhetta um aldur og ævi.
Fegurð undir
fallöxinni
Horft yfir Haga-
vatn af Stóru-
Hettu. Í fjarska
sést meðal ann-
ars í Hlöðufell
og Skjaldbreið.
MYND / ÓMB
Gengið á Eystri-Hagafellsjökul upp úr Jarlhettudal. Í fjarska sést í Stóru-Hettu.
Horft í norðaustur eftir Jarlhettum, ekki langt frá Hagavatni. Umhverfið er dulúðugt og minnir á Hringadróttinssögu.
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
5 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð