Fréttablaðið - 05.03.2020, Page 38
MÉR FINNST AÐAL
ATRIÐIÐ VERA AÐ NÁ
Í SJÓNARHORN SEM VIRÐIST
EKKI VERA AF MERKILEGRI FRÁ
SÖGN EN STILLA ÞVÍ SAMT
ÞANNIG UPP AÐ MIKIL SPENNA
SÉ Í MYNDINNI.
Daníel Magnússon sýnir tíu ljósmynda-verk á sýningunni Transit í Hverf is-galleríi. „Í þessum verkum tek ég fyrir
sjónarhorn sem oft fara fram hjá
fólki en eru samt hluti af ákveðinni
heild. Ég kalla þessi sjónarhorn
stundum límið í samfellunni. Ég
reyni að fanga fallegasta sjónar-
hornið, það sem segir nægilega
mikið. Ég vil að verk mín orki eins
og trommutaktur á kviðinn fremur
en höfuðið,“ segir Daníel.
Ljósmyndaverkin eru frá árunum
2010-2019 og voru tekin þegar lista-
maðurinn var á göngu. „Myndirnar
eru úr gönguferðum mínum og
gönguhraðinn er hinn ráðandi
taktur. Ég er alltaf með myndavél
með mér og tek á filmu vegna þess
að mér finnst filman hafa sjarma.
Eina myndin sem er tekin digital
er af píanói sem aldrei hefur verið
spilað á.“
Óvissuástand
Önnur mynd er af rauðri renni-
braut. „Þar leitast ég við að rauði
liturinn og formið fái pláss á
myndinni, en ekki það að um er
að ræða leiktæki.“ Það gekk ekki
alveg átakalaust að taka þá mynd.
„Það voru börn að renna sér í þess-
ari rennibraut þegar mig bar að. Ég
bað þau um að færa sig í augnablik
en þau voru sannarlega ekki til í það
og andmæltu mér fullum hálsi. Ég
þurfti að beita allri minni lagni til
að fá þau til að skipta um skoðun,“
segir listamaðurinn.
Enn önnur mynd er af sundlaug
við sveitabæ rétt fyrir utan Reykja-
vík. „Sú mynd hét upphaf lega
Getse mane af því það er einhver
friður á henni sem ég náði að fanga
á ótrúlegan hátt,“ segir Daníel.
„Þessar myndir eiga það sam-
eiginlegt að fjalla ekki um atburð
eða ástand. Í þeim ríkir visst óvissu-
ástand. Það er eins og eitthvað sé
að fara að gerast eða sé nýbúið
að gerast. Mér finnst aðalatriðið
vera að ná í sjónarhorn sem virðist
ekki vera af merkilegri frásögn en
stilla því samt þannig upp að mikil
spenna sé í myndinni,“ segir Daníel.
Á annan tug einkasýninga
Daníel útskrifaðist úr Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands árið
1987. Hann er einkum þekktur
fyrir skúlptúra og ljósmyndaverk
en hefur jafnframt myndlistinni
hannað og smíðað húsgögn og
unnið leikmyndir fyrir leikhús og
sýningar. Daníel á að baki annan
tug einkasýninga ásamt f jölda
samsýninga bæði innan lands og
utan. Verk hans eru meðal annars
í eigu Listasafns Íslands, Reykja-
víkurborgar, ýmissa ríkisstofnana
og einkaaðila bæði hérlendis og
erlendis.
Sýningin Transit stendur til 28.
mars.
Límið í samfellunni
Transit er yfirskrift sýningar Daníels
Magnússonar í Hverfisgalleríi. Sýnir
ljósmyndaverk sem voru tekin á göngu.
Ég vil að verk mín orki eins og trommutaktur, segir myndlistarmaðurinn Daníel Magnússon. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
5. MARS 2020
Hvað? Ættfræðigrúsk á tölvuöld
Hvenær? 13.00
Hvar? Safnaðarheimili Dómkirkj-
unnar, Lækjargötu 14a, Reykjavík
Stefán Halldórsson, félags- og
rekstrarhagfræðingur, gefur inn-
sýn í möguleika ættfræðigrúsks á
netinu. Veislukaffið hennar Ástu
okkar og skemmtilegt samfélag.
Hvað? Tíðasöngur
Hvenær? 16.45-17.00
Hvar? Dómkirkjan
Tíðasöngur með séra Sveini Val-
geirssyni í Dómkirkjunni. Verið
velkomin og takið með ykkur
gesti.
Hvað? Mynda- og sagnakvöld
Skaftfellingafélagsins
Hvenær? 20.00
Hvar? Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14
Stefán Benediktsson, fyrrverandi
alþingismaður, sýnir myndir og
rifjar upp minningar frá Skafta-
felli, frá æskudögum og síðar sem
þjóðgarðsvörður og Þórir Kjart-
ansson í Vík sýnir myndband um
áhrif eldfjallsins Kötlu á umhverfi
sitt. Aðgangseyrir 1.000 krónur.
Kaffi á könnunni.
Hvað? Djákninn á Myrká – sagan
sem aldrei var sögð
Hvenær? 20.30.
Hvar? Tjarnabíó, Tjarnargötu
Sýningin hefur slegið í gegn hjá
Leikfélagi Akureyrar. Í verkinu er
lesið á milli línanna og komist að
ýmsu áhugaverðu og mis sönnu
um djáknann á Myrká.
Hvað? Frönsk kaffihúsastemning
Hvenær? 21.00-23.00
Hvar? Petersen svítan
Söngkonan Unnur Sara Eldjárn
og píanóleikarinn Þórður Sig-
urðarson flytja lög sem eru þekkt
í f lutningi listamanna á borð við
Serge Gainsbourg og Edith Piaf.
Þetta eru einu tónleikarnir þeirra í
Petersen svítunni á þessu ári.
Hvað? Loljud á Íslandi – kemur fram
ásamt Rauði
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2
Loljud er vel þekkt í Skandinavíu
fyrir tilraunakennda og leikræna
nálgun sína að raftónlist og Rauð-
ur hefur komið fram á tónleikum
og tónlistarhátíðum víða um
Evrópu. Við lofum rafmagnaðri
kvöldstund.
Unnur Sara Eldjárn söngkona flytur frönsk kaffihúsalög í Petersen svítunni
í Ingólfsstræti, ásamt Þórði Sigurðarsyni píanóleikara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
5 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð