Hugur og hönd - 01.06.1972, Page 13
Pyngjur
Þó íslendingar liafi löngum verið fá-
tæk þjóð, hafa líklegi flestir. sem
auravon höfðu, átt einhvers konar
pyngju. Á söfnum er til fjöldi
gamalla pyngja af ýmsum gerð-
um. Sumar voru skreyttar með
margvíslegum ísaumi, aðrar útprjón-
aðar í skrautlegum litum. Hin-
um prjónuðu er það flestum sameig-
inlegt, að þeim er lokað með málm-
hring, sem situr fastur á prjónuðum
hanka og dreginn yfir opið á pyngj-
unni. Ein slík af Þjóðminjasafni sést
á myndinni hér til hliðar. Á hinni
myndinni eru tvær prjónaðar pyngj-
ur af svolítið annarri og nýrri gerð.
Þær hafa þó greinilega orðið ti! fyrir
áhrif frá hinum gömlu. Þær eru tví-
banda og prjónaðar líkt og litill vettl-
ingur, án þumals. Hankinn prjónaður
á eftir.