Hugur og hönd - 01.06.1972, Blaðsíða 30
Námskeib
Heinidisibnabarféiags íslands
Að vanda gekkst H.I. fyrir nokkrum námskeiðum á
síðastliðnum vetri. Þau hófust eftir áramót í húsnæði
félagsins að Hafnarstræti 3 og voru öll fullsetin.
Eins og áður var almennur vefnaður vinsælastur og
urðu vefnaðarnámskeiðin 3. Kennarar þar voru Sigrún
Sigurðardóttir og Sigurlaug Jóhannesdóttir. Haldið var
eitt tóvinnunámskeið, kcnnari Hulda Á. Stefánsdóttir.
Þá voru teknar fyrir greinar, sem ekki höfðu verið
kenndar áður, s. s. tréskurður, leðurvinna, Makramé-
hnýtingar, útsaumur og vefnaður fyrir börn.
Haldin voru 3 tréskurðarnámskeið, kennari Friðrik
Friðleifsson, 3 hnýtinganámskeið, kennarar Fríða Krist-
insdóttir og Þórleif Drífa Jónsdóttir, 2 útsaums-
námskeið, kennari Hildur Sigurðardóttir, 1 leðurvinnu-
námskeið, kennari Jón Jóhannesson, 1 horn- og spóna-
vinnunámskeið, kennari Ingimundur Olafsson og 1 vefn-
aðarnámskeið fyrir börn, kennari Jóhanna Ragnars-
dóttir. Börnin fengu að vefa á litla borðvefstóla, sem
keyptir höfðu verið frá Danmörku í þessum tilgangi. Var
ánægjulegt að fylgjast með þeim og sjá áhuga þeirra og
gleði við vefstólana. Seinna er áætlað að stofna til fleiri
námskciða fyrir börn, s. s. námskeiða í útsaumi, þar
sem börnin fá á frjálsan hátt að útfæra eigin hugmyndir.
Miklar vonir eru bundnar við barnanámskeiðin, því að
enginn vafi er á því, að mikilvægt er að byrja snemma á
því að þjálfa hendur barna, leitast jafnframt við að glæða
frjótt hugmyndaflug þeirra og vekja hjá þeim skilning
á því, að þau geta notað hendur sínar til að gera marg-
víslega hluti á eigin spýtur. Það eykur án efa sjálfstæði
þeirra og nytsama athafnasemi.
Lengi hefur verið rætt um það innan H.Í., að ekki
væri vansalaust, hve hinu forna handverki, útskurði,
væri lítill sómi sýndur hér á landi. Útskurðarnám-
skeið H.í. eru ætluð sem framlag félagsins til við-
30
HUGUR OG HÖND