Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1972, Qupperneq 21

Hugur og hönd - 01.06.1972, Qupperneq 21
Húfa með skúfum Efni: Þrefaldur plötulopi í þrem litum. Tveir prjónar nr. 3. Húfurnar eru ýmist prjónaðar rönd- óttar eða yrjóttar. Fallegast er að vinda saman tvo sauðaliti og einn litaðan lopaþráð í þær yrjóttu, en hafa tvo garða í sauðalitum og einn í lit í röndóttu húfurnar. Dæmi: Hvítt, grátt og gult: sauðsvart, blátt og grátt; ljós- mórautt, sauðsvart og rautt; mosa- grænt, blátt og dökkblátt. Fitjið upp 28 1, prj sl til baka þann- ig, að einn garður myndist, prj svo 22 1 sl frarn og aftur og loks 16 I sl fram og aftur. Ef húfan á að vera dýpri, eru fitjaðar upp 30 1 og prj á sama hátt, fyrst 30 I, 24 1 og 18 1. Þessir 3 garðar eða 6 umf eru prj þangað til húfan er nógu víð, 78, 81 eða 84 garðar, eftir vídd. Þá er fellt af, ofanfrá á röndóttu húfunum, svo rendurnar standist á að aftan. Takið upp 78, 81 eða 84 I neðan á húfunni með því að stinga prjónin- um gegnum grófu lykkjurnar, sem myndazt hafa þar á röngunni og prj 3 garða með einum lit. Fellt af á röngunni. Húfan saumuð saman að aftan. Band dregið í gegnum kollinn, hert að og saumað niður. Við röndóttu húfurnar þarf að gæta þess, að taka bandið fram fvrir, hve- nær sem skipt er um lit og eins að fella þannig af, að rendur standist á. Þá eru búnir til 2 skúfar: Vefjið ann- að hvort einum eða öllum litunum, sem prj er úr uppá tvö hringlaga spjöld, 10 cm í þvermál og 2 cm gati í miðju, svo lengi að gatið nærri fyllist. Þá er klippt upp úr lopanum við brún spjaldanna, sterkum spotta brugðið á milli þeirra og hert að. Spjöldin eru síðan klippt sundur og fjarlægð. Spottarnir eru hafðir það langir, að festa megi skúfana með þeim á húfuna. Skúfarnir eru jafn- aðir . með skærurn og lagaðir til í hendi. Eru þeir nú festir á aðra hvora hlið húfunnar, oftast þá hægri, ann- ar alveg í brúnina og hinn rétt ofan við. A. S. HUGUR OG HÖND 21

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.