Hugur og hönd - 2018, Blaðsíða 4
6 HUGUR OG HÖND 2018 2018 HUGUR OG HÖND 7
Á undanförnum árum hef ég
kynnst einstaklingum og hópum
sem vinna með íslensku ullina.
Ýmist á fræðilegan hátt, atvinnu-
skapandi eða til að varðveita
og miðla gömlu handbragði úr
íslenskri tóvinnu.
Margt blómlegt starf af ólíkum
toga í tengslum við íslensku
ullina hefur verið unnið undan-
farin misseri og má hér nefna
Uppspuna; nýja spunaverksmiðju
Huldu Brynjólfsdóttur, endurgerð
bláa kjólsins - kjóll landnámskonu
frá Ketilsstöðum frá 10. öld unn-
inn af Marianne tóvinnukonu og
Marled Mader; Handverkssmiðj-
una á Kirkjubæjarklaustri þar sem
drífandi konur í Skaftárhreppi
settu upp handverksmiðstöð og
hóp skapandi kvenna fyrir austan
Þjórsá sem kalla sig Spunasystur.
Ein Spunasystra er Maja Siska
sem hefur skapað sér nafn sem
skapandi, drífandi og frumleg
listakona og fjárbóndi. Hún hefur
stóra og bjarta vinnuaðstöðu á
bænum sínum Skinnhúfu í Rang-
árvallasýslu. Þar eru stundum
haldin námskeið, oft af reyndum
útlenskum kennurum, og þar er
gott rými fyrir Maju til að vinna
stór þrívíddar listaverk úr ull af
eigin kindum .
Í mars 2017 tók ég að mér yfir-
setu sýningar Maju Sisku Óður til
kindarinnar sem sett var upp í sal
Grafíkfélagsins við Tryggvagötu.
Umkringd stórum ullar lista-
verkum löngum stundum varð
ég hugfangin af einskonar fjórðu
vídd sem stafaði af þeim eins og
frá myndum Dalí sem vekur upp
bæði spurningar og skilning.
Listaverkin eru unnin með þeim
aðferðum sem mannkynið hefur
notað í árþúsundir til að búa sér
til fatnað: Spuna, vefnaði, sútun og
þæfingu. Í höndum Maju blandast
skáldskapur, tilfinningar, speki og
saga saman við handverkið svo að
úr verða áhrifaríkar innsetningar.
Listasýning Maju Sisku var
tileinkuð íslensku sauðkindinni.
Verkin á sýningunni voru öll unnin
úr ull eða gæru, ullin ýmist þæfð
eða ofin. Hún var spunnin, toguð
og mótuð en þannig er látið reyna
á fjölbreytileika hennar. Með
notkun fornra hefða í handverk-
inu nær listamaðurinn að tengjast
fortíðinni, fjárbúskapnum og ekki
síst þjóðarsálinni. Sýningin miðlar
þakklæti fyrir afurðir hennar, feg-
urð og hugrekki.
Maja Siska, fædd 1969 í Þýska-
landi hefur verið búsett á Íslandi
frá árinu 2000. Hún er menntaður
arkitekt og hefur unnið meðal
annars með olíu á striga og báru-
járn áður en hún sneri sér að ull-
inni. Hún býr í sveit á Suðurlandi
og ullin er þar auðfengið hráefni,
en vanmetið að hennar áliti. Að
vinna úr ull með fornum sem
nýjum aðferðum hjálpar henni
að tengjast landi og þjóð. Það er
þessi tenging sem hún vonast til að
miðla til áhorfenda.
Meira um Maju Sisku:
www.skinnhufa.is
facebook: Icelandisfullofwool
Óður til kindarinnar
Maja Siska
H ö f u n d u r : Marianne Guckelsberger - L j ó s m y n d i r : Maja Siska
V i n s t ra m e g i n á m y n d e r ve rk i ð S Ú T U N : B ot n í u d ó t t i r ( 2 016 ) h a n d s ú t u ð l a m b a gæ ra ú r e i g i n r æ k t u n . Þ á va ra r f e l d u r. L i s t a k o n a n
M aj a S i s k a s t e n d u r v i ð ve rk i ð H A N D S P U N I : H e l i x e s ( 2 015 - 2 017 ) ga r n o g h e s p a , h a n d s p u n n i n .
V E F N A Ð U R : Va ra r f e l d u r, í s l e n s k u l l o g f j ö r u s t e i n a r o f i ð á k l j á s t e i n s ve f s t ó l ú r h a n d s p u n n u b a n d i , ve rk f æ r i m e ð 9 0 0 0 á ra s ö g u .