Hugur og hönd - 2018, Síða 20

Hugur og hönd - 2018, Síða 20
38 HUGUR OG HÖND 2018 2018 HUGUR OG HÖND 39 Á uppvaxtarárum mínum á sveitabæ í Norður-Noregi átti ég frændfólk sem bjó í Hvalfirði á Íslandi og stundaði hvalveiðar. Frá þessu fólki bárust bréf til móður minnar sem las þau upphátt fyrir okkur systkinin, sjö talsins. Mér fjögurra ára gömlum voru það gæðastundir að heyra af lífi og reynslu frænda míns og frænku á Íslandi. Hugurinn bar mig hálfa leið og ég ákvað að ég skyldi heim- sækja Ísland þegar ég yrði stór. Bróðir minn, ári eldri en ég, átti að taka við býli foreldra okkar. Við hin urðum að finna okkur annað framtíðarstarf. Áhugi minn beindist að því að vinna með við/ tré. Árið 1961 fór ég til Svíþjóðar að heimsækja elstu systur mína sem var gift og bjó nálægt Gauta- borg. Meðan á heimsókninni stóð var mér boðin vinna og það varð til þess að ég ílengdist í Svíþjóð. Í vinnunni hitti ég fallega stúlku sem varð konan mín. Síðan höfum við búið og unnið í Lerum. Ég vann úr viði í frístundum mínum í mörg ár, en aðalstarf mitt var annað. Þegar sonur okkar fæddist hóf ég að smíða leikföng handa honum og keypti mér til þess notaðan hefilbekk á 25 krónur úr skóla sem var að endur- nýja tæki og tól. Árin 1975-1977 stundaði ég nám í handverki á trésmíðaverk- stæði og stuttu síðar útbjó ég mér eigið verkstæði í kjallaranum í húsi okkar. Þar byrjaði ég að smíða hluti til heimilisnota. Ég fór á námskeið ásamt níu konum og lærði ýmsar aðferðir, reyndi að viða að mér eins mikilli þekkingu og unnt var. Við lásum á nám- skeiðinu bók Önnu Maju Nylen um heimilisiðnað og bókin varð okkur hvatning til að gera ýmsar tilraunir. Einnig fór ég um þetta H ö f u n d u r te xta o g m y n d a : Knut Östgård Ísland – eyja drauma minna leyti að halda námskeið á kvöldin og um helgar. Hugtakið heimilisiðnaður finnst mér nátengt nytjahlutum. Við eigum að finna okkur efni- við úr umhverfinu og nýta það á heimilum okkar. Afurðir úr náttúrulegum hráefnum eyðast í náttúrunni án þess að valda skaða þegar þær hafa þjónað hlutverki sínu. Vinnsla á tréverkinu þarf að vera umhverfisvæn. Hönnunin getur fylgt tískustraumum en hún má aldrei verða á kostnað nota- gildisins. Þegar tálga á skeið eða sleif er mikilvægt að velja efni við hæfi, æðarnar í viðnum verða að fylgja forminu. Þá má tálga burt allt umframefni svo að notagildið verði sem mest. Haldið þarf að vera mátulega þykkt. Hafa þarf í huga að rýrnun viðarins verður mest næst úthlið trésins, í miðju trjá- stofnsins er þéttasti efniviðurinn. Best er að finna kvistalausan við. Þá næst besti árangurinn í verkinu og væntanlega munu kaupendur vandaðra hluta leita aftur þangað sem þeir fást. Árið 1983 bauðst mér starf við ráðgjöf í heimilisiðnaði í heima- s v e i t minni. Ég sinnti því starfi þar til ég fór á eftirlaun. Í vinnunni fólst meðal annars að veita upplýs- ingar um hvað heimilisiðnaður er, safna gögnum og heimildum og að aðstoða eftir þörfum þá sem sinna heimilisiðnaði. Ég hef gert níu kvikmyndir þar sem sýndar eru gamlar aðferðir sem eru í þann veginn að hverfa. Ég hef rannsakað og kynnt mér heim- ilisiðnað, hjálpað þeim sem hug hafa á að þróa eigin rekstur, sett upp sýningar og unnið að því að börn læri handverksiðju. Í starfi mínu sem ráðgjafi hef ég unnið að endurmenntun handverksfólks og handverkskennara. Einnig hef ég hvatt til að handsmíðuð verði verkfæri til nota við tálgun. Um þessar mundir vinn ég að því að kenna nýjum leiðbeinendum að sækja gott hráefni í skóginn. Mér finnst norrænt samstarf mjög áhugavert. Árið 1992 var norræn ráðstefna á Íslandi. Þar kynntist ég Guðrúnu Höddu Bjarnadóttur og við urðum góðir vinir. Síðan höfum við skipst á hugmyndum og þekkingu og það samstarf hefur gagnast fólki í báðum löndum okkar. Tvisvar hef ég komið til Akureyrar og tekið þátt í Handverkshá- tíðinni á Hrafnagili, síðast sumarið 2017 þegar sænska sýn- ingin Úr birki var hluti af hátíð- inni. Þar sýndu tuttugu og tveir handverksmenn fjölbreytilega hluti sem allir voru unnir úr einu og sama trénu. Ég kenndi þá tálgun á vel sóttu námskeiði og sýndi og seldi eigin afurðir. Auk þess hef ég haft milligögnu um að útvega til Íslands sænskt handverksfólk til að sýna verk sín og kenna á nám- skeiðum á Hrafnagili. Íslenskt handverksfólk hefur einnig farið til Svíþjóðar til að endurmennta sig. Norrænt samstarf handverks- fólks er mjög mikilvægt og hvetj- andi. Með því þróast handverkið, enda eigum við svipaðan efnivið og menning okkar og saga er náskyld. Allar stéttir þurfa að mennta sig og þróast. Það á einnig við um hand- verksfólk. Við ættum að hafa það í huga þegar við virðum fyrir okkur verðmiðann á fullunnu handverki.

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.