Hugur og hönd - 2018, Blaðsíða 30

Hugur og hönd - 2018, Blaðsíða 30
58 HUGUR OG HÖND 1/2018 Leikskólaföt 2 geymir úrval prjónauppskrifta fyrir leik- skólakrakka. Áhersla er lögð á hlý og þægileg föt fyrir börn frá eins árs og upp að sex ára aldri. Meðal efnis í bókinni eru uppskriftir að sokkum, húfum, vettlingum, klassískum peysum og hettupeysu. Eins og í fyrri bók Prjónafjelagsins, Leikskóla- fötum, er lögð áhersla á að hægt sé að velja um margs konar garn, bæði íslenskt og erlent og er íslenska ullin oftast valkostur. B Æ K U R Lopapeysuprjón er leiðarvísir fyrir byrjendur og lengra komna í lopapeysuprjóni. Bókin hvetur til skapandi hugsunar við prjóna- skapinn, leiðbeinir hvernig megi prjóna eftir eigin hugmyndum og breyta uppskriftum að vild. Markmiðið er að gera lopapeysu- prjón aðgengilegt og áhugavert fyrir hvern sem er, unga jafnt sem aldna. Höfundur bókarinnar, Auður Björt Skúladóttir, hefur lengi hannað uppskriftir og prjónað eftir sínu eigin höfði. IÐNÚ útgáfa ákvað í kjölfar fjölda fyrirspurna að gefa út enska þýðingu af Lopapeysuprjón undir nafninu Create your own Lopa- peysa. Íslenska lopapeysan – uppruni, saga og hönnun byggir á víðtækri rannsókn á rituðum heimildum, ljósmyndum og viðtölum við fjölda aðila. Um er að ræða ritrýnda útgáfu og er það í fyrsta skipti sem gefið er út ritrýnt fræðirit í textíl- greininni. Höfundur bókarinnar, Ásdís Jóelsdóttir, er lektor í textíl við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Bókin, sem er 300 blað- síður, er ríkulega myndskreytt og tilvalin gjafabók auk þess sem henni fylgir úrdráttur á ensku. Íslenska lopapeysan hefur fest sig í sessi sem mikilvæg tísku- og minjavara enda séríslensk frumhönnun sem mótast hefur í samvinnu margra aðila og á uppruni hennar sér dýpri rætur í prjóna- og munstursögu þjóðar- innar en löngum hefur verið talið. Saga hennar er einnig mikilvægur hluti af handverks-, hönnunar-, atvinnu-, iðnaðar- og útflutnings- sögu þjóðarinnar og er markmiðið með bókinni að varðveita þá sögu. 2018 HUGUR OG HÖND 59 Smíðum nýtt, gerum við smíðum inní ef eitthvað hefur týnst eða vantar Staðsett á Akureyri Tryggvabraut 24 w w w .djuls.is fa ce bo ok .c om /d ju ls de si gn s: 694-9811 storkurinn.is storkurinn@storkurinn.is • Einlitt • • Handlitað • • Sprengt • • Spreklótt • • Kaflalitað • • Yrjótt • • Reyrt • GARN

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.